Víkurfréttir - 15.12.2016, Page 50
50 fimmtudagur 15. desember 2016VÍKURFRÉTTIR
Vinur minn sagði mér að þetta kallað-
ist bókverk þegar bókin sjálf tekur þátt
í því sem í henni stendur. Meira en
bara innihaldið,“ segir Keflvíkingur-
inn Guðmundur Karl Brynjarsson,
prestur í Landakirkju í Kópavogi en
hann lét óvanalega hugmynd að ljóða-
bók verða að veruleika nú á dögunum.
Ljóðabókin heitir „Hvolf “ og blaða-
maður spyr fyrst út í þá hugmynd. „Já,
hún svona snýr að þér í hillunni en
þú kemst að því þegar þú opnar hana
að þú þarft að snúa henni á hvolf til
þess að lesa hana. Það sem tekur við
þegar þú opnar bókina eru blaðsíð-
urnar umluktar himnu sem þú þarft
að rífa til að komast inn í bókina. Svo
fæðist bókin og lifnar við í höndum
þér þegar þú lest hana. Ég fékk hug-
myndina í kringum nafnið á bók-
inni. Því himnan heldur utan um allt
saman. Sem himna og himinn. Hún
tengir bæði fyrsta og síðasta ljóðið
og heldur utan um allt saman,“ segir
Gummi Kalli sem margir Keflvíkingar
muna eftir en hann bjó við Krossholt í
Keflavík framyfir tvítugt.
Baldinn í bítlabæ
Guðmundur var á köflum baldinn
ungur peyi í Bítlabænum og hann
tengdist tónlist eins og margir en ekki
bítlatónlist. Hann var í pönkhljóm-
sveitinni Vébandinu sem unglingur
en bandið var endurvakið fyrr á þessu
ári þegar hann varð fimmtugur. Þá var
blásið til tónlistarveislu í Lindakirkju
þar sem líka var spiluð hefðbundnari
tónlist eftir Gumma. Pönkið kom
nýju vinum hans á óvart en gömlu
vinunum úr Keflavík sömuleiðis það
nýja líka. Skemmtileg tvenna hjá
kappanum.
En aftur að ljóðabókinni sem er sú
fyrsta hjá nýja ljóðskáldinu. Guð-
mundur hefur verið að skrifa handrit
að barnaþáttum sem hafa verið not-
aðir í sunnudagaskólum hjá þjóð-
kirkjunni. Þá þýddi hann barnabók
árið 2007. Hún heitir „Ég er frábær“
og seldist upp. Hún verður gefin aftur
út í vor og hún var einmitt valin ein
af þremur best þýddu barnabókunum
árið 2007 sem kom mér mjög á óvart
því ég var ekkert í neinum verðlauna-
hug. Það var mjög óvænt ánægja.“
Þá eru nokkur ljóð sem hann hefur
verið að semja í skúffunni hjá honum.
„En þetta er ekki skúffubók. Ég opnaði
ekki skúffuna og notaði það sem ég
átti til heldur fékk ég hugmyndina
að þessari bók í byrjun árs og byrjaði
þá að skrifa konseptið. Þetta eru að
mörgu leyti minningar sem ég byrj-
aði að skrifa nokkuð nákvæmlega,
en gerði síðan að gátum sem lesand-
inn myndi jafvel upplifa sem eitt-
hvað allt annað en stendur í bókinni.
Svo kem ég einnig inn á drauma sem
ég man eftir úr æsku. Að sumu leyti
er þetta ævisaga mín til svona 24 ára
aldurs, sem er þó ekki augljóst, nema
fyrir mér.“
Gamla testamentið
Ljóðin í bókinni tengjast mörg
trúnni og Gamla testamentinu og
Guðmundur segist taka persónur
úr gamla testamentinu og setja þær
á hvolf. „Ég hvolfi þeim inn í nú-
tímann og set þær inn í lífið í dag.
Ég hef alltaf hef verið mikið fyrir
sögur úr gamla testamentinu. Finnst
leiðinlegt hvað það er almennt lítil
þekking á þeim, því þær eru alltaf að
endurtaka sig. Ég sé mikið af fólki
sem ég þekki sem minnir mann á
persónur úr Gamla testamentinu.
Mér fannst þetta skrautlegar per-
sónur sem er skemmtilegt að máta
við okkar raunveruleika.“
Hvernig varð Gummi Kalli prestur?
Þegar ég kem aftur til Keflavíkur og
hitti gamla félaga sem ég þekki þar
segir fólk gjarnan við mig: „Þú varst
skrautlegur maður.“ Það datt engum í
hug að ég ætti eftir að verða prestur og
síst af öllum mér sjálfum. Ég fann það
þegar ég var um tvítugt að ég var að
missa tökin svolítið á sjálfum mér. Ég
var á stað sem ég vildi ekkert vera á.
En þá var bara að sætta sig við það og
sökkva dýpra eða fara á betri braut. Ég
leitaði hjálpar í bæninni, ef guð væri
til, sem ég efaðist um. Svo leiddi þetta
eitt af öðru. En ég gæti skrifað langa
bók um þetta.“
Ef þú ferð 40 ár aftur í tímann þegar
þú varst peyi í Baugholtinu í Kefla-
vík. Hvernig finnst þér nútíminn
vera í dag miðað við þá? Upplifun
krakka þá og nú?
„Ég held að það séu margir krakkar
í dag að upplifa mikla hamingju
sem börn en það er allt annar taktur
í þessu. Ég myndi oft vilja skipta á
minni barnæsku þá og við þau núna
en ég er ekki viss um að þau væru til í
það. Held að það meti hver sinn tíma
á sinn hátt. Fyrir stuttu fór ég á pönk
tónleika hér í bænum og þar hittumst
við nokkrir gamlir Keflvíkingar, hefði
manni dottið í hug að það passaði við
fimmtugt fólk á sínum tíma?
Ég á mjög góðar minningar úr
æskunni í Keflavík. Ég minnist þess
að eldri strákar en ég voru aldrei með
neina stæla við þá sem voru yngri
og ég hugsa oft til þess. Ég man eftir
Valda, Sigga Garðars og Skarpa Njáls
sem bjuggu í götunni. Fínir peyjar.
Það var kannski stríð á milli hverfa en
það var góður andi í hverfinu.“
Þurfum að eiga tíma til
að gleðjast á jólum
Gummi hefur verið að lesa kafla
úr bókinni á aðventunni en hann
segir að það sé ekki beint skynsam-
legt að vera í jólabókaútgáfu þar sem
desember sé mikill annatími hjá
prestum. Ekki sé þó ólíklegt að það
fæðist önnur bók innar tíðar því þetta
hafi verið mjög skemmtilegt. „En það
sem kom mér á óvart þegar ég fékk
bókina í hendur úr prentsmiðjunni,
er hvað mér fannst ég berskjaldaður.
Þetta var bara ég. Svolítið skrýtin til-
finning,“ segir presturinn og rithöf-
undurinn og svarar því aðspurður um
jólahaldið að honum þyki mjög vænt
um jólin. „Við þurfum að eiga tíma
til að gleðjast og leyfa okkur. Þó að
öllum takist ekki að gera það þýðir
það ekki að allir hinir þurfi að lifa í
sektarkennd yfir því. Jólin vekja alltaf
upp hlýjar tilfinningar, en ég þekki
samt marga sem upplifa þau alls ekki
þannig, en það er þá eitthvað sem þarf
að ræða og takast á.“
Reiðin og Rut
Guðmundur segist hafa verið meira
í hefðbundnum kveðskap en það er
óhætt að segja að hann fari nýjar
leiðir í þessari ljóðabók. Hann gantast
með það og segir að einn vinur hans
hafi sagt að næst þyrfti hann að
gefa út skýringarit fyrir bókina.
Eitt ljóðanna fjallar um
reiðina og hljóðar svona:
Reiðin
ber enga virðingu
fyrir tímasetningum.
„Mér finnst þetta vera dæmi-
gert fyrir reiðina, hún ber enga
virðingu fyrir kringumstæðum
eða tímasetningum. Hún bara
springur eins og flugeldar innan-
hús eða eitthvað,“ og Gummi verður
íbygginn þegar hann er spurður
um persónulega reynslu af reiði.
„Ég var einu sinni alveg rosalega
reiður út í einn ákveðinn mann. Það
bara algjörlega sauð á mér. Ég ákvað
að leita í bænina með það og bað guð
að taka burt af mér reiðina. Ég var
svo hissa sjálfur að allt í einu varð ég
ekki lengur reiður. Það var raunveru-
legt og rosalega skrýtið. Mér finnst
best að gangast við reiðinni og tala
um það, upphátt og af hverju. Það er
oft bara ótrúlega mikil hreinsun í því
að tala út áður en að maður sprengir
framan í einhvern. Það kemur oft
miklu meiri skynsemi út úr því.“
Það hafa margir sungið um hana
Rut í sunnudagaskólanum og henni
bregður fyrir í bókinni. Hún hafði
gifst erlendum manni og í Gamla
testamentinu er sorgleg saga Rutar
rakin. Guðmundur tengir þetta
allt við nútímann með flótta-
mennina sem streyma til Íslands
í huga og skrifar ljóð um Rut og
Naomi tengdamóður hennar.
Rut og Naomi
eru alsælar
með félagslegu íbúðina.
Sú gamla er dugleg að bjarga sér
í nýju landi og fer alein í búðina
meðan sú yngri skúrar skrifstofur.
Guðmundur Karl Brynjarsson
„Hvolf “.
Keflvíkingurinn, presturinn og gamli
pönkarinn Guðmundur Karl Brynj-
arsson gefur út ljóðabókina „Hvolf“.
Ævisaga, minningar og draumar.
Bókin sem lifnar við
í höndum þér