Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2017, Blaðsíða 54

Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2017, Blaðsíða 54
Vikublað 24. nóvember 2017 6 Auðbrekku 27, Kópavogi www.bilasprautun.is Um áráttu- og þráhyggjuröskun Fólk sem haldið er áráttu- og þráhyggjuröskun er ákaflega upptekið af reglusemi og smámunum. Margir hafa heyrt talað um O.C.D eða „obsessive compulisive disorder“. Á íslensku er þetta kallað áráttu- og þráhyggjuröskun og flokkast sem persónuleikaröskun svokölluð eða „personality disorder“ á ensku. Til eru alþjóðleg flokkunarkerfi sem greina gerðir persónuleika- raskana. Algengustu persónuleik- araskanirnar eru til dæmis andfélagsleg persónuleikaröskun (antisocial), jaðar persónuleika- röskun (borderline), geðhrifa persónuleikaröskun (hystrion- ics), sjálflæg persónuleikaröskun (narcissistisk), passive-agressive persónuleikaröskun og að lokum þráhyggju- og áráttupersónuleika- röskun (obsessive-compulsive) en um hana ætlum við að fjalla lítillega um í þessari grein. Fólk sem er haldið áráttu- og þráhyggjuröskun eða O.C.D er ákaflega upptekið af reglusemi og smámunum. Fullkomnunaráráttan lýsir sér meðal annars í því að fólk týnir sér í smáatriðunum, er mjög samviskusamt og yfirmáta fast- heldið. Manneskja með áráttu- og þráhyggjuröskun tekur vinnuna yfirleitt alltaf fram yfir tómstundir og vinatengsl, á erfitt með að henda eða losa sig við hluti og sankar oft að sér ýmsu dóti. Svona fólk er mjög varkárt í peningamálum og jafnvel nískt. Eru ljósin örugglega slökkt? Það er mikill munur á eðlilegri var- kárni og varkárni manneskju sem er með þessa persónuleikaröskun. Það er eðlilegt að vilja ganga úr skugga um hvort rafmagnstæki séu aftengd á kvöldin, hvort gleymst hafi að læsa útihurðinni og svo framvegis. Manneskja með áráttu- Allt í röð og reglu Fólk með áráttu- og þráhyggjuröskun upplifir sálarkvalir þegar hlutirnir eru ekki allir í mikilli röð og reglu. og þráhyggjuröskun er hins vegar heltekin af slíkum ótta. Kannar hvort ljósin séu slökkt mörgum sinnum á kvöldi og þvær sér um hendur oft á dag, eftir snertingu við fólk eða hluti. Þráhyggjan veldur því að sömu hugsanir leita síendur- tekið upp í hugann, valda óþægind- um, kvíða, sektarkennd eða jafnvel skömm. Áráttan lýsir sér í þörfinni fyrir að gera eitthvað aftur og aftur, stundum til að létta á þráhyggjutilf- inningunni. Munurinn á þráhyggjuáráttu sem persónuleikaröskun annars vegar, og hugsýki hins vegar, er fyrst og fremst hjá manneskju með persónuleikaröskun af þessu tagi má flokka hegðunina sem eins konar lífsstíl sem veldur ekki kvíða nema brugðið sé út af honum. Í hugsýkinni eru það einkennin (til dæmis sífelldur handþvottur) sem veldur sjúklingnum vanlíðan og óþægindum. Hvað er til ráða? Hugræn atferlismeðferð hefur gefið góða raun gegn áráttu- og þráhyggjuröskun. Þetta er ekki sál- greining, þar sem orsaka er leitað í fortíð, heldur reyna menn að skilja hegðun sína með því að kanna hugsanir, viðbrögð og atferli. Þetta er til dæmis gert með því að skrifa þessar ósjálfráðu hugsanir niður til að átta sig á þeim og í kjölfarið ná tökum á þeim með breyttu hegð- unarmynstri og viðbrögðum. Meðferðarhandbók í hugrænni atferlismeðferð má meðal annars nálgast á heimasíðu Reykjalundar undir slóðinni http://ham.reykjalundur.is/med- ferdarhandbok/
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.