Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2017, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2017, Blaðsíða 32
32 menning Helgarblað 24. nóvember 2017 Á undanförnum árþúsund­ um hefur þróast sú hug­ mynd meðal manna að þeir séu miðja alheimsins, kór­ óna sköpunarverksins, aðskildir frá og yfir náttúruna hafnir. Nátt­ úran hefur verið álitin viljalaust og skyni skroppið efni sem maðurinn getur notað og nýtt að vild án af­ leiðinga eða ábyrgðar. Í verkinu Traces, eftir dansar­ ann og danshöfundinn Rósu Ómarsdóttur, sem verður frum­ sýnt í sviðslistahúsinu Beurs­ schouwburg í Brussel um helgina er hins vegar gerð tilraun til að hverfa frá þessum mannmiðjaða hugsunarhætti. Í verkinu er um­ hverfið ekki síður fullt af lífskrafti en mannskepnan, sem er einfald­ lega einn hluti af síkvikri og lifandi náttúru. Blaðamaður DV leit við á æf­ ingu og ræddi við Rósu um náttúr­ una, leifar af andadýrkun og dans­ lífið í Brussel. Líkaminn alltaf í snertingu við hluti Þrátt fyrir að vera búsett í Belgíu hefur Rósa Ómarsdóttir verið nokkuð áberandi í íslensku dans­ lífi að undanförnu. Hún stund­ aði dansnám í Listdansskóla Ís­ lands og Listaháskólanum áður en hún komst inn í hinn virta dans­ skóla P.A.R.T.S. (Performing Arts Training and Research Studios) í Brussel þaðan sem hún útskrif­ aðist árið 2014. Frá útskrift hefur hún unnið náið með Ingu Huld Hákonar­ dóttur, dansara og danshöfundi, meðal annars í verkunum Wil­ helm Scream, Dada Dans, sem þær unnu með Íslenska dans­ flokknum, og verkinu The Valley, sem þær hlutu sviðslistaverðlaun­ in Grímuna fyrir, sem danshöf­ undar ársins. Af kerskni og húmor hafa þær skoðað tengsl og sam­ runa manns og hluta, þar birtast hlutir með mannlega eiginleika eða maðurinn verður sjálfur að hlut eða formi. „Mér finnst líkaminn mjög áhugavert viðfangsefni, en strax frá byrjun fannst mér svolítið ein­ hæft að pæla bara í honum einum og sér. Við erum aldrei bara líkam­ ar heldur erum við alltaf í tengsl­ um við ýmiss konar hluti. Homo Sapiens varð í rauninni til þegar við byrjuðum að nota tól,“ segir Rósa. „Ég hef því verið að pæla í því hvernig líkaminn tengist umhverfi sínu og ólíkar birtingarmyndir lík­ amans í mismunandi samhengi, hvaða myndir það eru sem birtast í sambandi efna, hluta og líkama. Ég hef bæði verið að skoða þetta algjörlega myndrænt en líka ver­ ið að velta fyrir mér mismunandi ástandi sem líkaminn fer í þegar hann tengist tilteknum hlutum.“ Maðurinn ekki lengur í miðjunni Í nýjasta verki sínu, Traces, sem á íslensku gæti útlagst leifar, um­ merki, eða þræðir fer Rósa lengra með þessar vangaveltur um áhrif umhverfisins á manninn. Áhorf­ endur sitja á pöllum í myrkvuðu rými umhverfis dansarana fjóra og sviðsmyndina. Á gólfinu er lítil plastsundlaug og nokkrar upp­ lýstar pottaplöntur á víð og dreif um sviðið sem varpa regnskógar­ legum skuggum upp á svarta veggina. Þó að sviðsmyndin og leikmunir séu tæknilegir og mann­ gerðir gefa þeir tilfinningu fyrir lífi: vatn, þurrís og slím. Víðs vegar í rýminu eru hljóðnemar sem dansararnir nota til að mynda Manneskjan úr miðjunni Rósa Ómarsdóttir veltir fyrir sér tengslum manns og náttúru í dansverkinu Traces sem sýnt er í Brussel Kristján Guðjónsson kristjan@dv.is „Við ættum að reyna að sjá hlutina í kringum okkur sem lifandi persónur, eins og börn gera. Á uppleið Rósa Ómarsdóttir, dansari og danshöfundur, hefur búið og starfað í Brussel undanfarin ár og frumsýnir þar sitt nýjasta verk um helgina.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.