Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2017, Blaðsíða 46
46 fólk Helgarblað 24. nóvember 2017
„Fæ alltaf orkuna á miðnætti
og af hverju ekki að nýta hana?“
Bára er þrefaldur fitnessmeistari eftir að hafa æft í fimm mánuði
B
ára Jónsdóttir kom, sá og
sigraði þegar hún keppti
á bikarmótinu í fitness
þann 18. nóvember síðast-
liðinn. Þar gerði Bára sér lítið fyrir
og vann þrjá titla á mótinu og er
hún fyrst kvenna til að ná þeim
árangri. Árangur Báru er einnig
afar athyglisverður í ljósi þess að
hún var að keppa á sínu fyrsta fit-
nessmóti eftir að hafa æft íþróttina
í aðeins fimm mánuði.
„Ég er bara í sjokki, ég trúi
þessu varla,“ segir Bára um ár-
angurinn. Bára er 27 ára og vann
byrjendaflokkinn, sinn hæðar-
flokk (yfir 168 sentimetrar) og síð-
an vann hún keppnina í heild,
svokallaðan „over all“-titil.
Fitness hefur heillað Báru í mörg ár
„Það er hálft ár síðan ég byrjaði að
æfa fitness, eða nei, fimm mánuð-
ir,“ segir Bára, sem byrjaði strax
að æfa hjá Konráði Val Gíslasyni
(Konna), sem kallaður er konung-
ur fitness hér á landi. Þrátt fyrir að
vera nýbyrjuð í fitness er Bára með
góðan grunn fyrir íþróttina, en hún
æfir líka súlufitness í Pólarsport og
er búin að gera í tvö ár, en hún tók
sér mánaðarfrí fyrir bikarmótið.
„Það er afskaplega mikill styrk-
ur sem fer í súlufitnessið og var ég
með góðan grunn fyrir bakið, en
það er samt fáránlegur munur á
myndum bara frá því í júní.“
Báru langaði alltaf að prófa
fitness og segir það hafa heillað
hana frá því hún var yngri heima
á Ísafirði að skoða myndir af skvís-
unum í Reykjavík. „Ég myndi segja
að Aðalheiður Ýr, sem þá var að
æfa hjá Konna og varð bikarmeist-
ari árið 2012, hafi vakið mestan
áhuga hjá mér,“ segir Bára, „ég
fékk tilfinningu um að þetta væri
eitthvað sem mig langaði að gera
einhvern tímann. Ég var svona
um tvítugt þegar ég var að byrja að
skoða myndir.“
Bára reyndi fjarþjálfun, en ekk-
ert af viti. Síðan fór hún að æfa
súlufitness og ákvað að lokum að
skella sér í fitness. En af hverju vald-
ir þú Konna sem
þjálfara? „Af því
hann að hefur
þjálfað allar þess-
ar fitnessskvísur
sem ég hef litið upp
til; Aðalheiði, Katrínu
Eddu, Magneu Gunnars,
Kristbjörgu og Írisi Örnu,
og þær hafa alltaf náð ótrú-
lega langt og verið flottar á sviði.
Þannig að það kom enginn ann-
ar til greina og ég hefði sennilega
hætt við þetta allt saman ef hann
hefði ekki verið þjálfarinn minn.“
Ekkert mál að stíga
fáklædd á svið
Var ekkert mál að fara upp á svið?
„Nei, alls ekki, ég var bara svo
spennt. Mér fannst þetta ótrúlega
gaman og það spilar inn í að ég
er búin að sitja fyrir og taka þátt í
tískusýningum. Pole-sportið á líka
þátt í þessu, ég keppti í því í fyrra
og Halldóra eigandi Pole Sport
tók mig í einkatíma í að koma
fram. Ég tel það hafa hjálpað mér
mikið. Svo fór ég á pósunámskeið
hjá Konna og Hrönn, og hún hefur
hjálpað mér ótrúlega mikið í öllu,“
segir Bára. Umrædd Hrönn, sem
var henni gríðarleg hjálparhella,
er Hrönn Sigurðardóttir, marg-
faldur meistari í fitness.
Bára var í öðru sæti í fyrra
þegar hún keppti í súlufitness og
var þá búin að æfa það sport í sex
mánuði, þannig að segja má að
hún sé vön að gefa sig alla í sportið
sem hún stundar og ná góðum ár-
angri á stuttum tíma. Hún ætlar
að sjálfsögðu að halda áfram að
keppa í fitness og er í hópi kepp-
enda sem Konni fer með á Arnold
Classic um mánaðamótin febrúar,
mars á næsta ári.
Kunni ekki að elda áður en hún
byrjaði í fitness
Bára starfar sem flugfreyja í fullu
starfi og aðspurð hvort það hafi
ekki tekið á að halda æfingum og
mataræði í góðu jafnvægi þegar
hún er á vöktum fljúgandi milli
landa og tímabelta segir hún að
svo hafi alls ekki verið.
„Ég hélt að þetta yrði ótrú-
lega erfitt en þetta er bara búið
að ganga vonum framar, þetta
er ekkert mál. Það er alls staðar
hægt að finna rækt úti og ég fór
að finna flottu ræktarstöðvarnar í
stoppum og gera heimsókn þang-
að að einhverju sem ég hlakk-
aði til að gera. Svo er alltaf hægt
að finna betri kostinn í mat, ég
gat alltaf farið með út að borða.
Ég gat til dæmis alltaf fengið mér
steik og sleppt þannig brauði og
sósu, sem ég mátti ekki fá. Og
á Starbucks gat ég fengið mér
egg. Ég var bara með hugann
opinn fyrir öðrum möguleik-
um,“ segir Bára. „Í Los Ang-
eles fór ég í Gold's Gym og
var að vonast eftir að hitta
Arnold Schwarzenegger, en
það gerðist ekki, en kannski
næst,“ segir Bára og hlær.
Vakti hlátur með
næturmyndum í ræktinni
Hvernig er dæmigerður dagur
hjá þér?
„Fyrir
utan flugin þá eru allir
dagarnir mínir mjög svip-
aðir. Ég vakna og fer út með
hundinn, það er svona mín
morgunbrennsla. Ég fór aldrei
á morgunæfingar í World
Class, tók aldrei brennslu þar
af því að mér fannst ég vera að
svíkja hundinn og ég vildi bara
eiga þennan tíma með honum.
Seinni partinn tók ég lyftinga-
æfingu,“ segir Bára. „Ég hef oft
farið og tekið hana á næturnar
í World Class í Kringlunni, ég
er svo mikill nátthrafn og mér
var strítt á því að ég var að taka
myndir þar á æfingum á nótt-
unni. Ég fæ alltaf orkuna á mið-
nætti og af hverju ekki að nýta
hana þá? Það greinilega skilar
sér að fara þegar mér hentar, ekki
fara eftir einhverju öðru plani.
Matarprógrammið frá Konna
er sérstaklega sniðið til að halda
blóðsykrinum réttum og að mað-
ur fái ekki löngun í eitthvað, en
hvenær ég æfði fór einfaldlega
eftir því hvenær ég myndi fá sem
mest úr æfingunni.“ Bára borðar
þrisvar á dag og þrisvar eru milli-
mál. Í niðurskurðinum fyrir mót
er ekki í boði að borða neitt með
sætuefni í, þannig að Bára tók það
allt út. „Ég var bara með egg, fisk
og grænmeti og möndlur voru
millimálin mín.
Ég nenni ekki að elda mikið í
einu og svo verður það orðið frekar
gamalt í restina,“ segir Bára þegar
hún er spurð hvort hún undirbúi
matinn fyrir viku í einu.
„Ég var að undirbúa
mat fyrir tvo daga
í senn. Ég kunni
ekkert að elda
áður en ég
byrjaði að
æfa og það
eina sem ég
át áður en
ég byrjaði hjá
Konna voru
skyndinúðlur
og baunir í dós,
ég hafði ekki einu sinni notað ofn-
inn heima hjá mér,“ segir Bára og
hlær.
„Ég fór oft í Hagkaup og keypti
egg úr salatbarnum, ég nennti
ekki að sjóða egg heima og keypti
eggjasuðuvél undir lokin. Hún er
alveg snilld, skurnin lekur af eggj-
unum.“
Undirbúningur mikill fyrir
keppni
Það þarf þó að gera meira en mæta
á æfingar og borða rétt ef maður
ætlar að koma fram
á sviði. Bára
fór eins
og aðrir
keppendur í brúnkumeðferð: „Þú
ræður hvert þú ferð eða hvort þú
gerir það heima, en maður þarf
að vera mjög dökkur til að vöðva-
rnir sjáist betur í ljósunum sem
beint er að manni á sviðinu. Þetta
er gert til að allir vöðvar og línur
sjáist. Þegar ég horfði á höndina á
mér var ég alveg súkkulaðidökk,
en á myndum teknum af mér á
sviðinu er ég bara gyllt á lit.“
Konur sem keppa í fitness stíga
á svið í bikiníi og Hrönn sérsaum-
aði eitt slíkt handa Báru. „Þetta
er það fallegasta sem ég hef séð.
Hún tók það á annað stig, þetta
var blanda af fitness- og módel-
fitnessbikiníi, lögunin var meira
eins og brjóstahaldari á ská, ekki
tíglar. Buxurnar voru hærri upp og
þetta var svona næntíslegt, mjótt
mitti. Þetta er að koma svo mikið
úti og Hrönn er með puttann á
púlsinum hvað er heitast úti. Hún
er með pallíettur í grunninn, ekki
venjulegt efni og svo steina ofan á
það. Þess vegna var bikiníið extra
glitrandi. Hún er alveg með þetta
og á mikið hrós skilið fyrir alla
hjálpina. Ég kom heim til hennar
seint á kvöldin og við fórum yfir
pósur og slíkt, hún er algjör snill-
ingur, ég er svo þakklát fyrir hvað
hún er búin að vera dugleg að
hjálpa mér.
Mér finnst gaman að fara nið-
ur í Laugar, ég setti mér mark-
mið að ná að gera upphíf-
ingar. Það var svo gaman
þegar það loks tókst að fara
í grindurnar og gera upp-
hífingar eftir æfingu. Ég er
spennt fyrir framhaldinu
og að sjá hvert leiðin
liggur,“ segir Bára, sem
er byrjuð að æfa fyrir
Arnold Classic mótið.
Hvað tekur við að því
loknu mun tíminn
leiða í ljós. n
Bára
ásamt Konna,
þjálfara sínum „Það
verður æðislegt að sjá hana
úti, af því að hún hentar enn
betur þar,“ segir Konni, en
mánaðamótin febrúar,
mars á næsta ári fer hann
með hóp út til að keppa
á Arnold Classic í Colu-
mbus, Ohio, Bandaríkj-
unum. „Hún hefur þessa
útgeislun sem Kaninn
vill, hann vill svona
„showmanship“.“
Um 40 konur keppa
í hverjum hæðar-
flokki á Arnold
Classic. Mynd Mummi Lú
Ragna Gestsdóttir
ragna@dv.is