Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2017, Blaðsíða 50

Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2017, Blaðsíða 50
instagram.com/Birta_vikuBlad Da gur í l ífi Vikublað 24. nóvember 2017 2 Kunningi minn vill meina að karlar þurfi námskeið í að skilja konur því 70% prósent séu alveg týnd. Hann segir að 5 prósent karla séu óforbetranlegir drullusokkar, 5 prósent séu með‘idda og 20 prósent séu vel upp aldir, sætir strákar sem stelpur vilji vera með. 70 prósent séu hins vegar óframfærnir, komplexaðir og viti ekkert í sinn haus, kunni ekkert á „skilaboð“ og rugli öllu saman. Hann nefndi þetta í samhengi við mann vikunnar. Hinn ofur ringlaða Ragnar Önundarson. Ég útskýrði fyrir kunningjanum að allir, bæði karlar og konur, vilji helst vera sætir. Stundum vill það svo til að fólk er bæði sætt og sexí á sama tíma. Sumir sjá eitthvað sexí út úr því sem enginn annar sér og sumir finna kynþokk- anum allt til foráttu. Finnst kynþokki hvorki góður, virðingarverður né „við hæfi“. Líkt og við flest reyndi Ás- laug Arna að velja sæta mynd af sjálfri sér sem prófílmynd á Facebook. Karlinn Ragnar leit á myndina og fannst Ás- laug ekki bara sæt á myndinni heldur LÍKA sexí og það fannst honum slæmt, líklega vegna þess að fæstar fallegar, ungar konur sýna körlum eins og Ragnari kynferðislegan áhuga, - sem er meðal annars ástæða þess að gamlir karlar fara stund- um í rosalega fýlu út í konur. Í gegnum aldirnar hafa fúlir karlar skikkað konur í „búrkur“, smánað kynfrelsi þeirra og reynt að halda þeim niðri með margvís- legum hætti. Á 21. öldinni reynum við að sporna við þessu rugli með druslugöng- um, #metoo-frásögnum og fleiru. Ég held að Ragnar greyið, og 70 prósent kynbræðra hans mundu græða ósköp lítið á námskeiði í að „skilja konur“. Þeim væri hollara að hugsa út í virðingu, mörk og markaleysi og vera svo bara til friðs eins og sætu strákarnir sem fengu sæmilegt uppeldi. Vera góðir og kurteisir við allar stelpur, hvort sem þeim finnst þær sexí – eða ekki. Karlar þurfa ekki námskeið til að skilja konur Margrét H. gústaVsdóttir margret@dv.is „ragnar leit á myndina og fannst Áslaug ekki bara sæt á myndinni heldur LÍKa sexí og það fannst honum slæmt. vikublað - Ritstjóri: Margrét H. Gústavsdóttir Ábyrgðarmenn: karl Garðarsson Markaðssamstarf: Svava kristín Gretarsdóttir s: 690 6900 Hvað er besta ráð sem þér Hefur verið gefið? besta ráðið kemur frá mömmu minni. „aldrei að treysta fólki sem borðar ekki harðfisk og drekkur ekki kaffi.“ Þetta hefur reynst mér mjög vel í samskiptum enda eitthvað hættulegt við þá sem kunna ekki að njóta þessara guðsgjafa. Hvaða ráð getur þú gefið öðrum? Ef maður kemst að því hver maður er og hvernig maður sjálfur er skrúfaður saman þá er mikið auðveldara að hlusta á sinn innri mann. Þaðan koma bestu ráðin – ill ráð hefir maður oft þegið annars brjóstum úr. Hvað vildirðu að þú Hefð- ir vitað fyrr? Ég hefði átt að kaupa miða á tónleika með Ramo- nes þegar þeir voru enn að spila saman. Mig hefði aldrei grunað að ég væri enn svekktur yfir því að hafa aldrei séð þetta uppáhalds- band mitt spila á tónleikum. Flosi Þorgeirsson fæddist þann 16. febrúar 1968 og sleit barns-skónum í austurbæ Kópavogs. Faðir hans, Þorgeir Guðmundsson, verkstjóri hjá Vegagerðinni, lést í vinnuslysi árið 1976 þegar Flosi var átta ára en móðir hans, Jóhanna Gunnarsdóttir, 95 ára, er enn við góða heilsu, drekkur eitt glas af sér- ríi á dag og dansar allar helgar. Flosi flosnaði upp úr menntaskólanum í Kópavogi og gekk til liðs við hljóm- sveitina HAM árið 1989. Hann á tvö börn, Hörð, 24 ára, og Unu, 23 ára. Flosi býr í Vesturbænum þar sem hann deilir fjögurra herbergja íbúð með Dieter félaga sínum frá Þýskalandi. 10.00–15.00 Fótaferðartíminn minn fer alveg eftir því hvenær ég þarf að mæta til vinnu. Stundum sef ég langt fram yfir hádegi. Ef ég er ekki að vinna þá get ég vaknað einhvers staðar á milli níu fyrir hádegi til þrjú eftir hádegi. Það er algjört kaos alltaf í öllu hjá mér. Morgunmaturinn minn er heldur ekkert ákveðið, í mesta lagi fæ ég mér eina skál af múslí. Mér finnst bara frekar pirrandi að borða og sem betur fer hef ég frekar litla hungurtilfinningu. 12.00–16.00 Eftir að ég vakna, hvenær sem það nú er, þá ákveð ég hvað ég fer að gera þann daginn. Hvort ég eigi að heimsækja einhvern eða hvað. Núna er ég til dæmis að reyna að klára mastersritgerð í sagnfræði. Ég er ömurlega latur en ætla samt að reyna að ljúka þessu fljótlega. Ég er að skrifa ritgerð um Þorska- stríðin sem ég hef mikinn áhuga á en kannski er ég bara kominn með námsþreytu, enda búinn að vera í Háskólanum síðan 2012. Ef mér tekst ekki að koma mér í að skrifa þá fer ég oft að lesa eitthvað eða pæla í tónlist. Draumurinn hefur alltaf verið að gefa út sólóplötu en mér hefur reynst erfitt að finna tíma. Svo er ég þunglyndur sem heftir mig líka talsvert. Reyndar fór ég að taka þunglyndislyfið Venlafaxíne í ársbyrjun og finnst áhrifin af því al- veg frábær en því miður þá gerir það mig ekki meira drífandi þó að mér finnist skemmtilegra að lifa. 16.00 Einhvern tímann seinni part dags fer ég gjarna í sund eða út að ganga. Mér finnst oftast best að fara í sund eftir að myrkrið er skollið á eða þegar veður er vont. Helst bara kalt og rok í bland. Ég fer aðallega í Vesturbæjarlaugina sem er núna opin til tíu öll kvöld. Ég er mjög ánægður með það hvað laugin er opin lengi og finnst að fleiri laugar mættu hafa opið fram eftir. Göngut- úrar hjálpa mér líka í baráttunni við þetta þunglyndi mitt. Ég geng til dæmis út að Gróttu eða eitthvert niður í bæ ef ég þarf að hitta fólk. Núna er ég reyndar kominn á bíl og finn strax hvað það er hættu- legt. Ég hef gengið mikið minna eftir að ég fékk mér bílinn. Svo er styttra í gremju og leiðindi sem er óeðlilegt fyrir mig. Ég hef staðið mig að brautarbræði, sem beinist sérstaklega að óöruggum túristum í umferðinni og ég kann alls ekki við þessi einkenni hjá sjálfum mér. Ætla að laga þetta. Hugleiða frekar og anda djúpt. 19.00–00.00 Á kvöldin fer ég oft á hljómsveita- ræfingu, horfi á góða bíómynd eða sjónvarpsþætti eða les uppi á Landsbókasafni. Núna er ég að lesa Íslandssöguna enda byrjaður að vinna sem leiðsögumaður allt árið og þá er fínt að vera vel að sér í þessum efnum. Ef ég dembi mér í lestur þá verð ég eiginlega að skilja snjallsímann eftir úti í bíl. Annars freistast maður yfirleitt til að fara á Facebook eða eyða tímanum í einhverja símavitleysu sem truflar lesturinn. Flosi Þorgeirsson -Þorskastríðið, brautarbræði, sundferðir, símavitleysa og venlafaxíne„ef ég er ekki að vinna þá get ég vaknað ein- hvers staðar á milli níu fyrir hádegi til þrjú eftir hádegi. Það er algjört kaos alltaf í öllu hjá mér. m yn d si g tr yg g u r ar i
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.