Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2017, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2017, Blaðsíða 16
16 sport Helgarblað 24. nóvember 2017 Þ að vakti mikla athygli á dögunum þegar Sigurð- ur Ragnar Eyjólfsson var ráðinn þjálfari kvenna- landsliðs Kína. Um er að ræða mikla viðurkenningu fyrir Sig- urð og það starf sem hann hefur unnið í kvennafótboltanum. Sig- urður stýrði kínverska félagsliðinu Jiangsu Suning í eitt ár áður en hann tók við landsliðinu. Þar vann hann frábært starf og varð meðal annars bikarmeistari. Áður starf- aði Sigurður á Íslandi, fyrst sem þjálfari ÍBV og síðar þjálfari ís- lenska kvennalandsliðsins. „Árangur minn með íslenska kvennalandsliðið og kvennalið Jiangsu Suning vakti athygli kín- verska knattspyrnusambandsins. Það vakti mikla athygli þegar ís- lenska kvennalandsliðið fór í úr- slitaleik Algarve-bikarsins árið 2011 og í 8 liða úrslit EM 2013. Út frá því fór ég í starfsviðtal árið 2015 hjá kínverska sambandinu en fékk ekki landsliðsþjálfarastarfið þá. Eftir ár í Kína sem þjálfari Jiangsu Suning þá þekki ég deildina vel og lands- liðið. Ég veit þeir leituðu sér líka upplýsinga um hvers konar þjálf- ari ég er og viðtalsferlið var langt og strangt. Ég þurfti að fara mjög ítar- lega yfir hvernig leikstíl ég vil spila og hvernig ég myndi fara að því að bæta leik kínverska landsliðsins. Þetta var mjög lærdómsríkt ferli,“ sagði Sigurður við DV aðspurður hvernig starfið varð hans. Íslenskir aðstoðarmenn Sigurður fékk til sín tvo íslenska að- stoðarmenn sem eru nú með hon- um í verkefni. „Ég fékk Dean Martin og Halldór Björnsson til liðs við okkur og þeir smellpassa inn í það sem við erum að gera enda frábær- ir á sínu sviði. Ég vissi hvað ég var að fá enda hef ég unnið með þeim báðum áður. Dean Martin var að- stoðarþjálfarinn minn hjá ÍBV og ég spilaði með honum hjá ÍA. Halldór Björnsson var markmannsþjálfari kvennalandsliðsins í þrjú ár og fór með okkur í úrslitaleik Algarve Cup og í 8 liða úrslit EM. Þetta eru fag- menn, ólíkir að mörgu leyti en hafa sömu gildi og ég, eru metnaðarfull- ir, duglegir og árangursmiðaðir. Ég er gríðarlega ánægður og stoltur að hafa náð að sannfæra þá um að stökkva á þetta einstaka tækifæri. Þeir voru báðir í spennandi störf- um heima en voru til í þessa áskor- un með mér. Að hafa gott teymi til að vinna með sér er eitt það mikil- vægasta sem þarf til að ná árangri. Þarna er ég með menn í lands- liðsklassa, sem eru sérfræðingar og betri en ég á sínu sviði.“ Mikil ferðalög Kína er stórt og mikið land en liðin sem eru þar eru þó ekki svo mörg. Sigurður og aðstoðarmenn hans munu ferðast um allt landið til að vera vissir um að velja bestu leikmennina í sinn hóp. „Það eru bara átta lið i efstu deild og átta lið í næstefstu deild svo það eru ekki svo mörg lið í Kína. Ég tel mig hafa nokkuð góða sýn yfir deildirnar en við þurfum að skipta með okk- ur verkefnum og fylgjast mjög vel með framgangi allra þessara liða til að vera vissir um að velja bestu leikmenn landsins í landsliðið. Kína er stórt land og við munum fljúga á umrædda staði eða taka hraðlest og deila okkur niður svo við sjáum sem flesta leiki. En öll þessi 16 lið eru atvinnumannalið og það er mun meiri breidd í Kína en á Íslandi. Jafnframt er sjaldgæft að leikmenn hér skipti um lið og því geta góðir leikmenn leynst alls staðar og það verður okkar hlut- verk að reyna að finna þær bestu.“ Frábært vinnuumhverfi Miklir fjármunir eru í Kína og því fær Sigurður allt sem til þarf svo liðinu vegni vel. „Vinnuumhverfið í kringum liðið er mjög gott. Fyrir utan okkur þrjá þjálfara frá Ís- landi erum við með tvo kínverska aðstoðarþjálfara, markmanns- þjálfara, tvo lækna, sjúkraþjálfara, vídeóupptökumann, fjölmiðla- fulltrúa, starfsmann sem sér um praktísk atriði og yfirmann liðsins. Liðið fer þrisvar í æfingabúðir til Bandaríkjanna á næsta ári og á Algarve Cup í Portúgal. Auk þess verða nokkrar æfingabúðir innan Kína og við spilum á mótum í Jap- an, Jórdaníu, Kína og Indónesíu á næstu mánuðum. Við verðum bú- settir í Peking því höfuðstöðvar knattspyrnusambandsins eru þar.“ Gott ár með Jiangsu Suning Sigurður er stoltur af ári sínu með Jiangsu Suning þar sem hann varð bikarmeistari. „Árið með Ji- angsu Suning var mjög eftirminni- legt og skemmtilegt. Við unnum bikarkeppnina, lentum í 3. sæti í deildinni og 3. sæti í National Games, sem er risastórt mót innan Kína sem er haldið á fjögurra ára fresti. Okkur tókst að hjálpa nokkrum leikmönnum að fá tæki- færi með landsliðinu, móta nýj- an leikstíl og gera liðið samkeppn- ishæft við bestu lið Kína á mjög stuttum tíma. Árið áður hafði liðið lent í umspili um fall og var 16 stig- um frá efsta sæti. Í ár munaði fimm stigum. Við unnum til dæmis Kína- meistarana Dalian fjórum sinnum á árinu, í fjórum leikjum. Svo fram- tíð Jiangsu Suning er björt og ég er þeim þakklátur fyrir að hafa leyft mér að taka við landsliðinu þrátt fyrir að eiga ár eftir af samningnum mínum. Þeim fannst það heiður að kínverska knattspyrnusambandið vildi ráða þjálfarann sinn. Sam- starfið við Daða Rafnsson aðstoðar- þjálfara gekk mjög vel og við vorum gott teymi og þetta var mikið ævin- týri. Hann verður ekki lengi að finna sér gott starf heima. Ég var hrika- lega sáttur við árið, við spiluðum 33 keppnisleiki, unnum 24, gerðum þrjú jafntefli og töpuðum sex leikj- um, markatalan var 82-22. Hjá liði með óbreyttan leikmannahóp milli ára, fyrir utan tvo erlenda leikmenn sem við fengum, þá held ég að ég og Daði getum gengið stoltir frá okkar störfum fyrir félagið.“ Langar að mæta Íslandi Sigurður starfaði lengi vel með ís- lenska kvennalandsliðið og vann magnað starf. Hann langar að mæta Íslandi í starfi sínu núna. „Ég mun alltaf bera mikla virðingu fyr- ir íslenska kvennalandsliðinu og starfi KSÍ með liðið. Ég er þakk- látur KSÍ fyrir minn tíma þar sem fræðslustjóri og A-landsliðsþjálfari kvenna, mér var sýnt mikið traust hjá sambandinu hvað þau stóru verkefni áhrærir. Starfsfólk KSÍ og landsliðsins er frábært. Þeim hefur tekist að byggja upp frábæra um- gjörð og liðið náði stórkostlegum úrslitum á móti Þýskalandi fyrir stuttu. Ég vona innilega að liðinu takist á komast á HM í Frakklandi. Það er frábært tækifæri til þess núna. Það yrði mjög skrýtin tilfinn- ing ef við mættum Íslandi í lands- leik en það gæti gerst til dæmis á Algarve Cup í febrúar eða á HM. Jafnframt er ekki útilokað að við gætum spilað vináttuleik á móti Ís- landi. Mig langar gjarnan að koma með liðið til Íslands einhvern tí- mann og spila, ef KSÍ hefur áhuga fyrir því, og eins er möguleiki að við gætum boðið Íslandi á mót til okkar í Kína. Ég held að í fram- tíðinni muni ég alltaf halda með tveimur landsliðum, Íslandi og Kína. Þegar Ísland og Kína mæt- ast á næstu þremur árum mun ég halda með Kína en bera ómælda virðingu fyrir íslenska landsliðinu,“ sagði þessi geðþekki þjálfari að lokum í samtali við DV. n Árangur Sigurðar með Ísland tryggði honum starfið í Kína n Frábært vinnuumhverfi n Langar að mæta Íslandi Hörður Snævar Jónsson hoddi@433.is „Þeim fannst það heiður að kínverska knattspyrnu- sambandið vildi ráða þjálfarann sinn Fiskur er okkar fag - Staður með alvöru útsýni Opið allt árið, virka daga, um helgar og á hátíðisdögum Kaffi Duus v/ Smábátahöfnina í Keflavík - Aðeins 5 mínútur frá Leifstöð, lítið við í leiðinni • Sími: 421 7080 • duus@duus.is • Opið frá kl. 10:30 - 23:00 alla daga Allt það besta í íslenskri og indverskri matargerð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.