Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2017, Blaðsíða 68
4 Skreytum heimilið Helgarblað 24. nóvember 2017KYNNINGARBLAÐ
Heillandi jólabirta
Þróunin er sú að sífellt fleiri nýta sér þessa þjónustu – að láta
okkur setja upp jólaseríur
á hús sín. Hins vegar finnst
okkur íburðurinn ekki vera
að aukast heldur er fólk að
sækjast eftir einföldum, stíl-
hreinum seríuuppsetningum.
Minna er meira, þannig virðist
tíðarandinn vera núna.“
Þetta segir Hjörleifur
Björnsson, eigandi Garða-
þjónustu Íslands ásamt
Róberti Bjargarsyni. Mjög
hefur færst í vöxt að lands-
menn kaupi hjá þeim
jólaskreytingarþjónustu á
aðventunni sem felst þá í
uppsetningu jólasería utan á
hús, á tré og í görðum.
Garðaþjónusta Íslands
veitir húseigendum afar
fjölbreytta og umfangsmikla
þjónustu eins og lesa má um
á heimasíðu fyrirtækisins,
garda.is. Á þessum árstíma
býður fyrirtækið einnig upp á
hálkueyðingu og snjómokstur,
sem margir nýta sér.
Að sögn Hjörleifs hefur
mikil framþróun orðið í gerð
þeirra pera sem eru í ljósa-
seríunum þeirra:
„Við erum nær eingöngu
með svokallaðar LED-seríur
sem hafa ekki þessa skæru
stingandi birtu heldur fal-
lega birtu sem tónar vel við
umhverfið og andann. Einu
skiptin sem við notum ekki
LED-perur er þegar fólk á
gamlar seríur sjálft eða biður
sérstaklega um annað.“
Hægt að skreyta fyrir bæði
mikinn og lítinn pening
Fólk getur valið um að
kaupa seríur af Garðaþjón-
ustunni eða nota seríur sem
það á sjálft. Einnig er í boði
að geyma seríur hjá Garða-
þjónustunni. Í sumum tilvik-
um hefur fólk seríuna utan
á tré allt árið en slekkur á
ljósunum eftir jólin eða í lok
skammdegis tímans.
Hægt er að skreyta fyrir
háar fjárhæðir ef fólk vill
mikið umfang og síðan er líka
hægt að skreyta fyrir mjög
viðráðanlega upphæð með
einföldum en fallegum seríum
sem gefa frá sér aðlaðandi
jólabirtu.
Nánari upplýsingar um
þjónustuna veita:
Hjörleifur Björnsson
í síma 844-6547,
netfang hjorleifur@garda.is
Róbert Bjargarson
í síma 866-9767,
netfang robert@garda.is
Eigendur Garðaþjónustu Íslands Róbert
Bjargarson (t.v.) og Hjörleifur Björnsson (t.h.)
SÍFELLt FLEiRi LÁtA SkREytA HúS SÍN FyRiR jóLiN
GARðAÞjóNuStA ÍSLANDS