Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2017, Blaðsíða 20
20 sport Helgarblað 24. nóvember 2017
Í
slenskt knattspyrnuáhugafólk
bíður þess spennt að sjá hvern-
ig ný treyja KSÍ og íþróttavöru-
framleiðandans Errea mun líta
út. Treyjan mun koma fyrir manna
sjónir fyrir Heimsmeistaramótið
í Rússlandi. Sumir hafa gagnrýnt
Errea og KSÍ fyrir að vera ekki
með treyjuna klára fyrir jólin eins
og margar þjóðir. Treyjan hefði
orðið vinsæl jólagjöf enda íslenska
landsliðið afar vinsælt eftir gott
gengi síðustu ár.
Fulltrúar KSÍ, Errea og lands-
liðsmenn voru í Parma í vikunni
í höfuðstöðvum Errea, þar sem
farið var yfir allan fatnað og bún-
að sem íslenska landsliðið mun
nota á næsta ári. Það er til merk-
is um það hversu vel íslenskur fót-
bolti gengur að leikmenn fá nú að
velja allan þann fatnað sem þeir
vilja klæðast. Leikmenn fá að velja
hvaða efni er notað í allan fatnað
og hvernig snið er á honum.
„Þetta er í ferli sem við förum
í þegar nýir búningar koma út.
Þá tökum við landsliðsfólk með
í slíka vinnuferð. Það er verið að
velja allan fatnað. Það er verið að
velja allt sem landsliðsfólk klæð-
ist í svona ferðum, það eina sem
landsliðsfólk kemur með sjálft í
ferðir er snyrtitaska og fótbolta-
skór. Þarna er verið að velja til að
mynda hótelfatnað, ferðafatnað,
æfingafatnað og allt sem er notað í
svona ferðum. Það kemur allt nýtt
næsta vor,“ sagði Þorvaldur Ólafs-
son, eigandi Errea á Íslandi, við
DV um málið.
Ekkert gefið upp
um nýju treyjuna
Þorvaldur er þögull sem gröfin
þegar spurt er út í nýju treyjuna
sem strákarnir eiga að nota á
Heimsmeistaramótinu í Rússlandi
næsta sumar. „Það er í vinnsluferli,
það verður ekkert meira gefið upp
um það að sinni,“ sagði Þorvaldur
en íslenskt knattspyrnuáhuga-
fólk bíður spennt eftir treyjunni.
Síðasta treyja vakti mikla lukku
og seldist afar vel eftir gott gengi
hjá strákunum á Evrópumótinu í
Frakklandi, fólk úti um allan heim
fór að sækjast eftir treyjunni.
Alveg sama hvað aðrir gera
Borið hefur á því að Errea og KSÍ
séu gagnrýnd fyrir það hversu
seint treyjan mun koma í sölu, en
margar þjóðir hafa nú þegar kynnt
treyju sína fyrir heimsmeistara-
mótið. Bent hefur verið á að treyj-
an hefði orðið ansi vinsæl jólagjöf.
Markaðsfræðingur sem DV ræddi
við sagði að Errea og KSÍ hefðu lík-
lega aðeins sofið á verðinum, lík-
lega hefði treyjan orðið ein allra
vinsælasta jólagjöfin hér á landi
í ár. Knattspyrnukrakkar hefðu
viljað eignast nýju treyjuna til
að mæta á æfingu klæddir eins
og hetjurnar sem þeir líta upp
til. Þá taldi markaðsfræðingur-
inn einnig ólíklegt að fólk myndi
kaupa treyjuna sem notuð var í
síðustu keppni, margir ættu hana
nú þegar og hún yrði svo úreld
snemma á næsta ári þegar nýja
treyjan kæmi. Hann benti þó að
að treyjan myndi án nokkurs vafa
seljast vel næsta vor en jólin hefðu
verið flottur tími í þetta.
Mikil spenna
Íslenska landsliðið er orðið eitt það
stærsta sem Errea hefur á sínum
snærum og hefur umfangið í kring-
um landsliðið aukist til muna. „Það
er mikil tilhlökkun hjá öllum og all-
ir að gera sitt besta þannig að allar
óskir frá okkar landsliðsfólki verði
uppfylltar. Leikmenn vilja
hafa buxurnar svona en
ekki hinsegin, úr þessu
efni en ekki hinu. Til-
gangurinn með
þessari ferð var að
klára svona hluti,
leikmenn fá alfar-
ið að ráða þessu.
Við förum betur
yfir þetta þegar
allt verður kynnt,
karlalands-
liðið er ekki með
sömu þarfir og
kvennalandsliðið.
Strákarnir vilja snið
sem stelpurnar hafa
kannski ekki áhuga
á.“
Allt hefur breyst
„Það eru ekki nema nokk-
ur ár síðan ekki seldist upp
á A-landsleiki karla sem dæmi.
Núna er alltaf allt fullt, íslensk
knattspyrna hefur tekið gríðar-
legum framförum. Það sést best
á því að við erum að fara á HM
og við fórum mjög verðskuldað
á Evrópumótið í Frakklandi. Allt
í kringum fótboltann er á hærra
plani. Það er mjög gaman að taka
þátt í þessu, breytingin er gríðar-
leg. Kröfurnar eru allt aðrar, ég er
ekki viss um að landsliðsmenn í
dag myndu vilja vera í þeim bún-
ingi sem Ásgeir Sigurvinsson var í
á sínum tíma. Stuttbuxurnar voru
eins og stuttar hjólabuxur þá,“
sagði Þorvaldur við DV en Errea
er með samning til ársins 2020.
Dregið í riðla eftir viku
Það verður eftir slétta viku sem
knattspyrnuáhugafólk fær að
vita hvaða liðum Ísland mætir
á Heimsmeistaramótinu í Rúss-
landi, dregið verður í riðla klukk-
an 15.00 næsta föstudag. Þá
kemur í ljós hvaða þjóðir munu
berjast við Ísland í nýjum bún-
ingi frá Errea. Treyjan hefur alltaf
vakið athygli, stundum verið um-
deild, en síðustu ár hefur hún
selst afar vel. n
Nýr búningur í vinnslu
fyrir HM í Rússlandi
n Errea og KSÍ gagnrýnd fyrir seinagang n Margar þjóðir hafa þegar kynnt treyju sína
Hörður Snævar Jónsson
hoddi@433.is
Treyjur
á HM í
Rússlandi
2018
eftir framleiðendum
Þýskaland
Rússland
ArgentínaBelgía
Kólumbía
Japan
Mexíkó
Spánn
England
Panama
Serbía
Úrúgvæ
Sviss
Kostaríka
Danmörk
Ísland
Túnis
Senegal
Pólland
Portúgal
Frakkland
Króatía
Suður-Kórea
Sádi-Arabía
Ástralía
Nígería
Brasilía
Marokkó
Egyptaland
Íran
Svíþjóð
„Það er mikil
tilhlökkun
hjá öllum og allir
að gera sitt besta
Frá vinnufundum í Parma Það var farið yfir sviðið í Parma í vikunni en þar voru Emil
Hallfreðsson, Berglind Björg Þorvaldsdóttir og Arna Sif Ásgrímsdóttir landsliðsmenn. Að
auki voru Gunnar Gylfason og Ragnheiður Elíasdóttir, starfsmenn KSÍ, auk fulltrúa Errea á
Íslandi sem voru þeir Hafsteinn Ómar Gestsson sölustjóri og Þorvaldur Ólafsson, eigandi
Errea á Íslandi, og Ásu Maríu Reginsdóttur, eiginkonu Emils.
Landsliðið í Errea Hvernig verða
treyjurnar í Rússlandi? MyND DAvÍð ÞóR