Dagblaðið Vísir - DV - 24.11.2017, Blaðsíða 50
instagram.com/Birta_vikuBlad
Da
gur
í l
ífi
Vikublað 24. nóvember 2017 2
Kunningi minn vill meina að karlar þurfi námskeið í að skilja konur því 70% prósent séu alveg týnd. Hann
segir að 5 prósent karla séu óforbetranlegir
drullusokkar, 5 prósent séu með‘idda og 20
prósent séu vel upp aldir, sætir strákar sem
stelpur vilji vera með.
70 prósent séu hins vegar óframfærnir,
komplexaðir og viti ekkert í sinn haus,
kunni ekkert á „skilaboð“ og rugli öllu
saman. Hann nefndi þetta í samhengi við
mann vikunnar. Hinn ofur ringlaða Ragnar
Önundarson.
Ég útskýrði fyrir kunningjanum að allir,
bæði karlar og konur, vilji helst vera sætir.
Stundum vill það svo til að fólk er bæði
sætt og sexí á sama tíma.
Sumir sjá eitthvað sexí út úr
því sem enginn annar sér
og sumir finna kynþokk-
anum allt til foráttu. Finnst
kynþokki hvorki góður,
virðingarverður né „við
hæfi“.
Líkt og við flest reyndi Ás-
laug Arna að velja sæta mynd
af sjálfri sér sem prófílmynd
á Facebook. Karlinn Ragnar
leit á myndina og fannst Ás-
laug ekki bara sæt á myndinni heldur LÍKA
sexí og það fannst honum slæmt, líklega
vegna þess að fæstar fallegar, ungar konur
sýna körlum eins og Ragnari
kynferðislegan áhuga, - sem
er meðal annars ástæða þess
að gamlir karlar fara stund-
um í rosalega fýlu út í konur.
Í gegnum aldirnar hafa
fúlir karlar skikkað konur í
„búrkur“, smánað kynfrelsi
þeirra og reynt að halda
þeim niðri með margvís-
legum hætti. Á 21. öldinni
reynum við að sporna við
þessu rugli með druslugöng-
um, #metoo-frásögnum og fleiru.
Ég held að Ragnar greyið, og 70 prósent
kynbræðra hans mundu græða ósköp lítið á
námskeiði í að „skilja konur“.
Þeim væri hollara að hugsa út í
virðingu, mörk og markaleysi og vera svo
bara til friðs eins og sætu strákarnir sem
fengu sæmilegt uppeldi.
Vera góðir og kurteisir við
allar stelpur, hvort sem þeim
finnst þær sexí – eða ekki.
Karlar þurfa ekki námskeið til að skilja konur
Margrét H.
gústaVsdóttir
margret@dv.is
„ragnar leit
á myndina
og fannst Áslaug
ekki bara sæt á
myndinni heldur
LÍKa sexí og það
fannst honum
slæmt.
vikublað - Ritstjóri: Margrét H. Gústavsdóttir Ábyrgðarmenn: karl Garðarsson Markaðssamstarf: Svava kristín Gretarsdóttir s: 690 6900
Hvað er besta ráð sem þér
Hefur verið gefið? besta
ráðið kemur frá mömmu minni.
„aldrei að treysta fólki sem borðar
ekki harðfisk og drekkur ekki kaffi.“
Þetta hefur reynst mér mjög vel í
samskiptum enda eitthvað hættulegt
við þá sem kunna ekki að njóta
þessara guðsgjafa.
Hvaða ráð getur þú gefið
öðrum? Ef maður kemst að því
hver maður er og hvernig maður
sjálfur er skrúfaður saman þá er
mikið auðveldara að hlusta á sinn
innri mann. Þaðan koma bestu
ráðin – ill ráð hefir maður oft þegið
annars brjóstum úr.
Hvað vildirðu að þú Hefð-
ir vitað fyrr? Ég hefði átt að
kaupa miða á tónleika með Ramo-
nes þegar þeir voru enn að spila
saman. Mig hefði aldrei grunað
að ég væri enn svekktur yfir því að
hafa aldrei séð þetta uppáhalds-
band mitt spila á tónleikum.
Flosi Þorgeirsson fæddist þann 16. febrúar 1968 og sleit barns-skónum í austurbæ Kópavogs.
Faðir hans, Þorgeir Guðmundsson,
verkstjóri hjá Vegagerðinni, lést í
vinnuslysi árið 1976 þegar Flosi var
átta ára en móðir hans, Jóhanna
Gunnarsdóttir, 95 ára, er enn við
góða heilsu, drekkur eitt glas af sér-
ríi á dag og dansar allar helgar. Flosi
flosnaði upp úr menntaskólanum í
Kópavogi og gekk til liðs við hljóm-
sveitina HAM árið 1989. Hann á
tvö börn, Hörð, 24 ára, og Unu, 23
ára. Flosi býr í Vesturbænum þar
sem hann deilir fjögurra herbergja
íbúð með Dieter félaga sínum frá
Þýskalandi.
10.00–15.00
Fótaferðartíminn minn fer alveg
eftir því hvenær ég þarf að mæta til
vinnu. Stundum sef ég langt fram
yfir hádegi. Ef ég er ekki að vinna þá
get ég vaknað einhvers staðar á milli
níu fyrir hádegi til þrjú eftir hádegi.
Það er algjört kaos alltaf í öllu hjá
mér. Morgunmaturinn minn er
heldur ekkert ákveðið, í mesta lagi
fæ ég mér eina skál af múslí. Mér
finnst bara frekar pirrandi að borða
og sem betur fer hef ég frekar litla
hungurtilfinningu.
12.00–16.00
Eftir að ég vakna, hvenær sem það
nú er, þá ákveð ég hvað ég fer að
gera þann daginn. Hvort ég eigi
að heimsækja einhvern eða hvað.
Núna er ég til dæmis að reyna að
klára mastersritgerð í sagnfræði.
Ég er ömurlega latur en ætla samt
að reyna að ljúka þessu fljótlega.
Ég er að skrifa ritgerð um Þorska-
stríðin sem ég hef mikinn áhuga á
en kannski er ég bara kominn með
námsþreytu, enda búinn að vera
í Háskólanum síðan 2012. Ef mér
tekst ekki að koma mér í að skrifa þá
fer ég oft að lesa eitthvað eða pæla
í tónlist. Draumurinn hefur alltaf
verið að gefa út sólóplötu en mér
hefur reynst erfitt að finna tíma.
Svo er ég þunglyndur sem heftir
mig líka talsvert. Reyndar fór ég að
taka þunglyndislyfið Venlafaxíne
í ársbyrjun og finnst áhrifin af því al-
veg frábær en því miður þá gerir það
mig ekki meira drífandi þó að mér
finnist skemmtilegra að lifa.
16.00
Einhvern tímann seinni part dags
fer ég gjarna í sund eða út að ganga.
Mér finnst oftast best að fara í sund
eftir að myrkrið er skollið á eða
þegar veður er vont. Helst bara
kalt og rok í bland. Ég fer aðallega
í Vesturbæjarlaugina sem er núna
opin til tíu öll kvöld. Ég er mjög
ánægður með það hvað laugin er
opin lengi og finnst að fleiri laugar
mættu hafa opið fram eftir. Göngut-
úrar hjálpa mér líka í baráttunni
við þetta þunglyndi mitt. Ég geng
til dæmis út að Gróttu eða eitthvert
niður í bæ ef ég þarf að hitta fólk.
Núna er ég reyndar kominn á bíl
og finn strax hvað það er hættu-
legt. Ég hef gengið mikið minna
eftir að ég fékk mér bílinn. Svo er
styttra í gremju og leiðindi sem er
óeðlilegt fyrir mig. Ég hef staðið
mig að brautarbræði, sem beinist
sérstaklega að óöruggum túristum í
umferðinni og ég kann alls ekki við
þessi einkenni hjá sjálfum mér. Ætla
að laga þetta. Hugleiða frekar og
anda djúpt.
19.00–00.00
Á kvöldin fer ég oft á hljómsveita-
ræfingu, horfi á góða bíómynd
eða sjónvarpsþætti eða les uppi
á Landsbókasafni. Núna er ég að
lesa Íslandssöguna enda byrjaður
að vinna sem leiðsögumaður allt
árið og þá er fínt að vera vel að sér
í þessum efnum. Ef ég dembi mér í
lestur þá verð ég eiginlega að skilja
snjallsímann eftir úti í bíl. Annars
freistast maður yfirleitt til að fara
á Facebook eða eyða tímanum í
einhverja símavitleysu sem truflar
lesturinn.
Flosi Þorgeirsson
-Þorskastríðið, brautarbræði, sundferðir, símavitleysa og venlafaxíne„ef ég er ekki
að vinna þá
get ég vaknað ein-
hvers staðar á milli
níu fyrir hádegi til
þrjú eftir hádegi.
Það er algjört kaos
alltaf í öllu hjá mér.
m
yn
d
si
g
tr
yg
g
u
r
ar
i