Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2017, Page 2
2 Áramótablað 29. desember 2017fréttir
Láttu þér ekki vera kalt
Sími 555 3100 www.donna.is
hitarar og ofnar
Olíufylltir ofnar 7 og 9
þilja 1500W og 2000 W
Keramik hitarar
með hringdreifingu
á hita
Hitablásarar
í úrvali
Ný vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf
35
„Ásgerður Jóna
braut á Kolbrúnu
og fjölskyldu með
því að nafngreina hana
oftar en einu sinni í
viðtalinu. Ég hlustaði á
viðtalið. Ég spyr, hvað er
kona eins og Ásgerður Jóna
Flosadóttir að gera sem
formaður Fjölskylduhjálpar
sem leyfir sér að brjóta
trúnað á skjólstæðingi
Fjölskylduhjálpar í
morgunútvarpi
Bylgjunnar?“
Hulda Vatnsdal fordæmdi
Ásgerði Jónu Flosadóttur fyrir
að nafngreina konu sem lýsti
yfir vonbrigðum vegna jólahjálpar
Fjölskylduhjálpar Íslands.
28
„Ef þetta hefði
komið upp þá
hefði hún setið
uppi með skömmina og
enginn trúað henni, móðir
hennar hefði þurft að
ganga í gegnum það með
henni og þetta hefði getað í
besta falli orðið kusk á
hvítflibba föður hennar,
það hefði öll
samtryggingarelítan
passað upp á sinn mann,
það þarf hugrekki til að
koma svona fram. Gleðileg
jól.“
Jón Svansson hrósaði Önnu
Rögnu Magnúsardóttur fyrir að
stíga fram og lýsa misnotkun
föður síns. Hann benti á muninn á því að
stíga fram í dag og árið 1978 þegar faðir
hennar lést.
Vinsæl
ummæli
við fréttir DV í vikunni
U
m eitt hundrað starfsmenn
fjárfestingabankans Kviku
hf. fengu glæsilega Nes-
presso kaffivél að gjöf í til-
efni jólanna. Um var að ræða kaffi-
vél af svokallaðri Citiz-gerð með
mjólkurflóara en listaverð grips-
ins er 34.995 krónur. Það vekur
athygli því fráfarandi varaformað-
ur stjórnar bankans, Jónas Hagan
Guðmundsson, er stærsti eigandi
Perroy ehf., sem er dreifingaraðili
Nespresso á Íslandi. Ákvörðun yf-
irstjórnanda bankans um gjöf til
starfsmanna kom því fyrirtæki
Jónasar óneitanlega vel.
Samkvæmt heimildum DV fékk
bankinn 20% afslátt af kaffivélinni
og því má reikna með að heildar-
kaupverð hafi verið um 2,8 milljón-
ir króna. Það að 100 kaffivélar hafi
verið seldar er, eins og áður seg-
ir, ágætis búbót fyrir dreifingar-
aðila kaffisins. Þeir sem nota kaffi-
vélarnar þurfa að kaupa sérstök
Nespresso-kaffihylki og verslun-
in sem selur þá munaðarvöru er
verslun Perroy ehf. í Kringlunni,
sem var opnuð þann 30. nóvember
síðastliðinn. Það eru því enn meiri
hagsmunir fólgnir í því að starfs-
menn Kviku verði áskrifendur að
lúxuskaffi um ókomna tíð.
Í lok október síðastliðinn var
greint frá því að Jónas Hagan hefði
selt hlut sinn og viðskiptafélaga
síns, Gríms Garðarssonar, í Kviku.
Hlutinn áttu þeir í gegnum fjár-
festingafélag sitt, Varða Capital. Alls
átti félagið 7,7% hlut í Kviku. Í kjöl-
farið gekk Jónas út úr stjórn Kviku
hf. en það gekk í gegn í byrjun des-
ember. Ákvörðunin um
jólagjafakaupin var
hins vegar tekin
á meðan Jónas
var enn varafor-
maður stjórnar
bankans. n
Banki keypti 100 kaffi-
vélar af stjórnarmanni
Kvika gaf starfsmönnum Nespresso-kaffivélar í jólagjöf
Jónas Hagan
Guðmundsson
Hefur gist á KeflavíKur-
flugvelli í fimm mánuði
n „Ekkert ónæði af manninum“ n Hafnaði boði um flugmiða frá ISAVIA
B
rottfararsalur Flugstöðv-
ar Leifs Eiríkssonar gengur
undir nafninu „Hótel FLE“
meðal starfsmanna. Ástæð-
an er sú að á hverri nóttu eru allt að
þrír tugir einstaklinga sem hafa þar
næturgistingu. Flestir eru að spara
sér rándýra hótelgistingu síðustu
nóttina fyrir brottför heim til sín en
það á þó ekki við um alla. Pólskur
maður hefur haft þar næturgistingu
í rúma fimm mánuði. „Það er ekk-
ert ónæði af manninum, hann er
ekki í neinni neyslu og því hefur
hann fengið að sofa þarna óáreittur.
Þetta ástand getur samt ekki varað
til lengdar,“ segir umhyggjusamur
starfsmaður sem undrast aðgerðar-
leysi félagsmálayfirvalda.
Starfsmenn buðust
til að borga flugmiða
„Hann byrjaði að venja komur
sínar hingað fyrir rúmlega fimm
mánuðum. Hann kemur inn í
brottfararsalinn um klukkan
tíu flest kvöld, kemur
sér fyrir á afviknum stað
og leggst til svefns. Það
kemur fyrir að hann
missi úr eina og eina
nótt en þær eru sárafá-
ar,“ segir starfsmaður-
inn, sem vill ekki
láta nafns síns
getið. Að
hans sögn
er ekki
óvana-
legt að
farþegar
leggist til svefns inni í brottfarar-
salnum og því hafi starfsmenn ekki
veitt manninum sérstaka athygli
fyrr en hann hafði gist í talsverðan
tíma í salnum.
„Það eru allir sem vinna þarna
meðvitaðir um stöðu þessa
manns. Það hefur enginn séð
ástæðu til þess að stugga við hon-
um því það er ekkert ónæði af veru
hans þarna. Þá buðust allnokkr-
ir starfsmenn til þess að leggja
saman í púkk fyrir flugmiða handa
honum til Póllands en hann af-
þakkaði boðið. Hann sagði ein-
faldlega að þetta líf hérna á Íslandi
væri betra en það sem væri í boði
þar ytra. Það er auðvitað mjög
dapurlegt,“ segir starfsmaðurinn.
Starfsmenn Isavia hafa ver-
ið í þó nokkrum samskiptum
við manninn, sem að sögn
heimildarmannsins glím-
ir við andleg veikindi. „Það
litla sem við vitum um sögu
hans er að hann kom hing-
að til að vinna í byggingar-
iðnaði á vegum starfs-
mannaleigu og fékk
húsnæði að Ásbrú,“
segir starfsmað-
urinn. Að hans
sögn hafi mað-
urinn að lokum
misst vinnuna og síðar húsnæðið.
„Hann fær einhvers konar fram-
færslu eða bætur frá hinu opin-
bera þannig að hann sveltur ekki.
En það er að sjálfsögðu óboðlegt
að maðurinn hafi í engin önnur
hús að venda en flugstöðina. Fé-
lagsmálayfirvöld verða að grípa
inn í,“ segir starfsmaðurinn.
Félagsmálayfirvöldum gert viðvart
DV hafði samband við Guðjón
Helgason, upplýsingafulltrúa
Isavia. Að hans sögn getur fyrir-
tækið ekki tjáð sig um einstaka
mál en ef að upplýsingar berist
um að fólk haldi til í lengri eða
skemmri tíma í innritunar- eða
komusal flugvallarins þá sé fé-
lagsmálayfirvöldum sveitarfélaga
gert viðvart. „Keflavíkurflugvöll-
ur er opinn allan sólarhringinn,
alla daga ársins. Fólki er að sjálf-
sögðu frjálst að koma þangað en
það er rétt að taka fram að flug-
stöðin er ekki dvalarstaður,“ segir
Guðjón. Hann segir vissulega rétt
að dæmi séu um að fólk hafi dval-
ið yfir nótt í innritunar- og komu-
sal flugvallarins. „Isavia gerir ekki
athugasemdir ef fólk sem á bók-
að flug snemma morguns kemur
snemma í innritunar- og komusal
og er þar yfir nótt,“ segir Guðjón.
DV óskaði eftir viðbrögðum frá
Reykjanesbæ vegna málsins en
svör höfðu ekki borist þegar blað-
ið fór í prentun. n
Flugstöð Leifs Eiríkssonar
Guðjón Ólafsson,
upplýsingafulltrúi Isavia.
Næturgestur Hér sést maðurinn leggja sig milli tveggja innritunarvéla í flugstöðinni.
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is