Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2017, Side 4
4 Áramótablað 29. desember 2017fréttir
Alhliða veisluþjónusta
Kökulist | Firðinum í miðbæ Hafnarfjarðar | Sími: 555 6655 og 662 5552 | kokulist@kokulist.is
Valgeirsbakarí | Hólagötu 17 | Reykjanesbæ | Sími: 421 2630 | kokulist@kokulist.is
Eingöngu fyrsta flokks hráefni
Tertur – Tapas snittur – Spjót – Súrdeigsbrauð
Konfekt – Kransakökur – Súpur – Brauðréttir
Gerðu daginn eftirminnilegan
l li veisl j st
Kökulist | Firðinum í miðbæ Hafnarfjarðar | Sími: 555 6655 og 662 5552 | kokulist@kokulist.is
Eingöngu fyrsta flokks hráefni
Tertur – Tapas snittur – Spjót – Súrdeigsbrauð
Konfekt – Kransakökur – Súpur – Brauðréttir
i fti i il
Útskrift · Brúðkaup · Skírn · Ferming Útskrift · Brúðkaup · Skírn · Ferming
A
ðfaranótt Þorláksmessu
réðust þrír karlmenn inn
í vinnustofu í Reykjavík
og lúskruðu á parinu Dýr
finnu Benitu, tónlistar og mynd
listarkonu, og Þórð Inga Jónsson
tónlistarmann, betur þekktum
sem Lord Pusswhip. Að sögn Dýr
finnu má rekja árásina til flokka
drátta í kjölfar þess að hún sak
aði fyrrverandi kærasta sinn, Inga
Kristján Sigurmarsson, um nauð
gun. Ingi Kristján er þekktur fyr
ir að hafa kallað Egil Einarsson,
Gillzenegger, „rapist bastard“.
Málið hefur tvístrað listahópum
svo sem RWS, Grandabræðrum og
Skiltamálun Reykjavíkur, en hluti
meintra árásarmenn voru með
limir í þeim öllum. RWS er hópur
sem stendur að baki veggjalist eða
veggjakroti og má sjá skammstöf
unina víðsvegar um höfuðborgar
svæðið. Grandabræður er hópur
hönnuða og myndlistarmanna frá
Listaháskóla Íslands sem hafa stað
ið að baki ýmsum viðburðum svo
sem Happy Festival. Skiltamálun
Reykjavíkur er fyrirtæki sem setur
upp veggverk listamanna, svo sem
Ragnars Kjartanssonar í Breiðholti.
Guðmundur Páll Jónsson lög
reglufulltrúi segir í samtali við DV
að rannsókn málsins sé nýbyrjuð
og þann 27. desember hafi verið
tekin skýrsla af brotaþolum.
Braut tönn
Dýrfinna greindi frá málinu
á Facebooksíðu sinni á Þor
láksmessu. „Klukkan sex í morgun
var ráðist inn í stúdíó þar sem ég
og kærasti minn Þórður og vin
ir okkar, Marteinn og Alfreð, vor
um að vinna saman í tónlist og
eiga góðar stundir. Það var bank
að á hurðina og Þórður fer til dyra
til að athuga hver væri við. Er hann
opnar hurðina þá grípur Brynjar
Andrésson, þekktur sem Bibbi eða
Kiddo, í hárið á honum og byrjar
að kýla hann ítrekað í andlitið og
fleygja honum um vinnustofuna,
með Brynjari í för eru bræðurn
ir Högni Þorkelsson, þekktur sem
Hógó, og Daníel Stefán Þorkels
son, þekktur sem Daníel Bachman
eða DUST,“ skrifaði Dýrfinna.
Viðurnefnin Kiddo og Dust vísa til
veggjakrots eða „graff“ sem má sjá
víða í Reykjavík.
Dýrfinna segir í samtali við DV
að bæði hún og Þórður Ingi séu
lemstruð eftir árásina. Hún hafi
slasast í bakinu enda bakveik fyrir
en Þórður hafi brotið tönn, fengið
vægan heilahristing og sé nú mar
inn og bólginn á andliti og höfði.
Hún segir að lögregla hafi mætt á
vettvang en þá hafi mennirnir þrír
verið horfnir á bak og burt.
Tilraun til þöggunar
Dýfinna segist fullviss um ástæðu
árásarinnar. Hún telur þetta hafi
verið tilraun til þöggunar vegna
#metoo byltingarinnar en bæði hún
og Þórður skrifuðu stöðufærslur
þar sem þeir gagnrýndu fyrrnefnda
listahópa. „Þessir ofbeldismen voru
ekki ánægðir með það að ég opn
aði mig og sagði sannleikann um
þeirra siðferði. Þeir hafa ekkert sið
ferði. Ég þekki þessi stráka vel og
var í þeirra vinahóp út af því að fyrr
verandi kærasti minn, Ingi Kristján
Sigurmarsson, er samstarfsmað
ur og vinur þessa árasamanna. Og
hann er ástæðan sem þetta allt byrj
aði. Þegar við vorum saman nauðg
aði hann mér tvisvar og þessi vin
hópur gerði lítið úr því og héldu
áfram í vinasambandi og samstarfi
við hann þrátt fyrir að vita að ég hafi
verið beitt þessu ógeðslega ofbeldi,“
segir Dýrfinna.
Dýrfinna segist hafa búið með
Inga Kristjáni í tvö ár í kjallara heim
ilis foreldra hans en þess má geta að
hann er sonur Álfheiðar Ingadóttur,
fyrrverandi ráðherra VG.
Ekki hamingja í huga
Dýrfinna skrifaði stöðufærslu í
október þar sem hún gagnrýndi
listhópanna harðlega og þá sér í
lagi RWS og Grandabræður en þá
stóð yfir svokölluð Happy Festi
val í húsakynnum þeirra á Granda.
Sú veisla hefur verið geysivinsæll
undanfarin ár innan listaheims
ins og var til að mynda sagt frá því
á Vísi árið 2015 að Dagur B. Egg
ertsson borgarstjóri, Andri Snær
Magnason rithöfundur og Ingvar E.
Sigurðsson leikari hafi allir mætt í
veisluna. Í ár stigu á svið þjóðþekkt
ir listamenn svo sem Ragnar Kjart
ansson, Emmsjé Gauti og Sigurð
ur Guðmundsson, í það minnsta
samkvæmt dagskrá, því sérsveitin
stöðvaði hátíðarhöld.
Dýrfinna sagði að sér væri ekki
hamingja í huga þegar hún hugs
aði um þessa hátíð. Fyrir tveimur
árum opnaði hún sig um kynferð
isbrot sem hún hefur orðið fyrir af
höndum fjögurra manna og birtu
st viðtöl við hana bæði á mbl.is og
í Fréttatímanum. Í þeim viðtölum
nefndi hún ekki hver hefði brotið
gegn henni en sagði þó að fyrrver
andi kærasti hafi ekki sýnt mikinn
stuðning þegar hún kærði annan
mann fyrir nauðgun.
„Þú ættir bara að fara“
Stuttu eftir að hún tjáði sig var
henni boðið á fyrrnefnda Happy
hátíð, sama ár og borgarstjóri
mætti. „Allir voru þarna, ég var
kurteis og dansaði með vinum
mínum. Svo kemur minn fyrrver
andi, sér mig og verður reiður. Af
því að hann vildi ekki að ég „klag
aði hann“. Hann fer að ýta mér. Ég
dett en ýti til baka. Hann virðist
tilbúinn að meiða mig í alvöru en
vinir okkar stoppa bardagann. Ég
hafði ekkert gert,“ segir Dýrfinna.
Meðlimir RWS hafi svo tekið
hana afsíðis og reynt að róa hana.
Þeir hafi spurt hana hvernig stæði
á þessu ósætti og þá sagði hún
þeim að „hann hafi nauðgað sér“
og óttaðist að hún myndi segja frá
því. „Allir þeirra sögðu: „Við vilj
um trúa þér, en hann er vinur okk
ar og þetta gerðist fyrir svo löngu.
Við erum að leigja þessa vinnu
stofu saman og halda þetta partý
saman. Hann ræður hverjir mega
vera á svæðinu. Þú ættir bara að
fara.“ Eftir þetta hafa þeir látið
eins og þetta atvik hafi ekki gerst
og reynt að halda samskiptum við
mig í lágmarki. Mér var ekki boð
ið á Happy Festival í ár,“ skrifaði
Dýrfinna í október.
Dýrfinna segir að eftir þetta hafi
sumir meðlimir fyrrnefndra list
hópa verið með ógnandi tilburði
sumra meðlima. „Brynjar hafði
verið með ógnandi tilburði við
Þórð eitt skipti, eftir #metoo póst
inn minn. Eftir að hafa stutt mig
opinberlega. Svo 21. desember ger
ir hann það sama við mig og 22.
desember sé ég hann stara á mig úr
hliðarsjón minni,“ segir Dýrfinna.
Vikið úr samtökunum
Eftir að Dýrfinna greindi frá mál
inu á Þorláksmessu skrifuðu bæði
Grandabræður og Björn Loki,
einn helsti meðlimur Skiltamál
un Reykjavíkur, stöðufærslur á
Facebook en þeim báðum verið
eytt. Í færslu Grandabræðra sagði:
„Brynjar Andrésson og Daníel Þor
kelsson koma ekki lengur að Fé
lagasamtökunum Grandabræð
ur og muna ekki gera framvegis.
Högni Kjartan Þorkelsson hefur
aldrei komið að Grandabræðrum.
Grandabræður styðja ekki ofbeldi.“
Björn Loki sagði á hinn boginn:
„Ég hef sagt mig úr félagasamtök
um RWS og Grandabræðra til að
mótmæla ofbeldi tveggja með
lima hópanna á Þórð Inga. Ég tek
þessu mjög alvarlega enda er verið
að benda mig og alla mína vinnu
síðustu ára við ofbeldisverk þeirra.
Brynjar og Daníel munu ekki
koma lengur að fyrirtækinu Skilta
málun Reykjavíkur.“
Dýrfinna segir viðbrögðin já
kvæð að hluta en afhjúpandi: „Þau
eru jákvæð en ekki tæmandi. Því
þegar botninum er hvolft þá er
engin afstaða þarna tekin gegn of
beldinu sem ég þurfti að líða og
hunsunina sem ég þurfti að upp
lifa trekk í trekk. Skilaboðin eru
skýr: „það skiptir bara máli ef að
karlmaður sé laminn, en ef kona
er nauðguð þá ekki.“ n
ÁrÁs Á ÞorlÁksmessu
n Dýrfinna og Þórður lamin vegna ásakana um nauðgun n Málið skekur listheiminn
Hjálmar Friðriksson
hjalmar@dv.is
Dýrfinna og Þórður
Hún segir að þau séu
bæði slösuð. Hann hafi
brotið tönn meðan hún
sé með verk í bakinu.
Högni og Daníel Í sumar greindi DV frá því að nokkrir menn hafi verið gómaðir við
veggjakrot. Tveir þeirra eru sagðir árásarmenn nú. Bræðurnir Högni, lengst til vinstri, og
Daníel, lengst til hægri, Þorkelssynir.