Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2017, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2017, Page 6
6 Áramótablað 29. desember 2017fréttir Góðar sængur sem má þvo við 95° hita Teygjulök, í öllum stærðum á góðu verði. 100% cotton satin með 300TH. 60/60µ. Dýnuhlífar, rakaheldnar, þola þvott við 95° Rúmfatnaður, vandaður, 100% cotton satin með 300TH. 60/60µ. Handklæði, gæðavara, 500 gsm. 100% cotton. Frábærar vörur fyrir hótel, og bændagistingu og sjúkrastofnanir Stórhöfði 17 • 110 Reykjavík • Sími 5877685 • Netfang: elias@egheild.is • www.egheild.is HEILD EHF Opið frá kl. 13 til 18 virka daga. Vinsamlegast sendið net- skilaboð. M ótorhjólasamtökin Bad Breed MC, sem hafa aðset- ur í Garðabæ, hafa fengið formlega inngöngu í hina svokölluðu rauðu og gylltu fjöl- skyldu, nokkurs konar stuðnings- samtök hinna alræmdu glæpasam- taka Bandidos. Með öðrum orðum, þá eru íslensku samtökin ekki leng- ur „tilvonandi“ (e. prospect) held- ur fullgild og sjálfstæð eining. Þetta kemur fram á Facebook-síðu sam- takanna þar sem þau eru furðu- virk í að segja frá nýjustu tíðindum. Til gamans má geta að þar má sjá myndir frá jólahlaðborði íslensku samtakanna árið 2016. Lögregla hefur áður sagst fylgj- ast grannt með klúbbnum og sagði til að mynda Runólfur Þórhalls- son aðstoðaryfirlögregluþjónn í viðtali við RÚV í fyrra að lögregla hefði reglulega afskipti af mönnum merktum Bad Breed. Bandidos eiga að baki blóði drifna sögu sem nær aftur til 1966. Skemmst er að minn- ast stríðs Bandidos og Hells Angels á Norðurlöndum á tíunda áratugn- um sem leiddi til tólf dauðsfalla og tæplega hundrað særðra. Dóp, sterar og byssur Ásamt tilkynningunni um að sam- tökin væru nú fullgild fylgir mynd af Antoni Samúel Sigurðssyni og Karli Þórðarsyni, oft kallað- ur Kalli málari, sem er forseti klúbbsins samkvæmt umfjöll- un Stundarinnar í fyrra. Anton Samúel fékk tveggja mánaða skilorðsbundinn dóm í fyrra fyrir fíkniefna-, vopnalaga- og lyfjalagabrot. Mótorhjólasam- tök, svo sem Hells Angels og Bandidos, eru helst þekkt á heimsvísu fyrir að stunda við- skipti með fíkniefni og vopn. Anton Samúel var tekinn með um 20 grömm af amfetamíni og ríflega 250 grömm af kanna- bis á heimili sínu. Ásamt því var hann með nokkurt magn hinna ýmsu tegunda anabólískra stera á heimili sínu. Að lokum var hann dæmdur fyrir að hafa geymt mikið magn skotfæra í ólæstum hirslum, svo sem tvær haglabyssur, sverð, tvo fjaðurhnífa og úðavopn sem lögreglumenn fundu á heimili hans. Í dómi kemur fram að hann hafi ekki áður gerst sekur um refsi- verða háttsemi svo kunnugt sé. „Rauða og gyllta fjölskyldan“ Þótt margt sé líkt með fullgildingu Bad Breed og þegar Fáfnir fékk inngöngu í Hells Angels fyrir nokkrum árum þá er þó nokkur munur þar á. Bad Breed mun ekki taka upp nafnið Bandidos því fyrr- verandi móðursamtökin í Svíþjóð með sama nafni, nú systursamtök, eru svokallaður „aðstoðarklúbb- ur“ (e. support club). Í löggæslu er þó yfirleitt litið á slíka klúbba sem lepp og framlengingu Bandidos. Forsíðumynd Red and Gold Family á Facebook sýnir þetta nokkuð vel. Þar má sjá merki ellefu mótorhjólaklúbba í Svíþjóð auk þess íslenska. Fyrst kemur merki Bandidos í Svíþjóð ásamt ellefu „aðstoðarklúbbum“. Munurinn á þessu tvennu má sjá á litavali en Bandidos hafa rauða bókstafi með gylltan bakgrunn meðan það er öfugt hjá aðstoðarklúbbum. Bad Breed á Íslandi eru því nú fullgild- ur aðstoðarklúbbur sem svarar beint til Bandidos í Svíþjóð. Hagsmunasamtök brotinna manna Helgi Gunnlaugsson, afbrota- fræðingur og prófessor við Háskóla Íslands, segir í samtali við DV að þótt það sé ekki jákvætt að klúbbar sem þessir skjóti rót- um á Íslandi þá sé ljóst að lög- regla fylgist gífurlega vel með þeim, enda merktir bak og fyr- ir. Hann segir að líta megi á klúbba sem þessa sem nokkurs konar hagsmunasamtök brot- inna manna. „Þetta er oft og tíðum samtök einstaklinga og hópa sem eru á jaðrinum og eru nokkurs konar regnhlífarsam- tök fyrir menn sem hafa kom- ið við sögu lögreglu eða verið á jaðrinum í samfélaginu og stund- að smáglæpi. Oft eru þetta einstak- lingar sem eru ekkert endilega allir í glæpum. Á Norðurlöndum þekk- ist það í þessum klúbbum að það er misjafn sauður í mörgu fé eins og annars staðar. Samt sem áður þá eru þarna einstaklingar sem hafa kom- ist í kast við lögin og þeir taka sér bólfestu í hverfum og það er ami af svona klúbbum,“ segir Helgi. Vel fylgst með þeim Helgi segir að á Íslandi hafi bæði lögregla og stjórnvöld verið sér- staklega á tánum gagnvart mót- orhjólaklúbbum. „Það má segja að það hafi gengið nokkuð vel og það hefur verið hægt að stugga við þessu að mestu leyti. Helst vilj- um við vera laus við svona söfn- uð en á móti má segja að íslenskt samfélag er fámennt og stjórn- völd hafa alla burði til að fylgjast vel með þessu og það hefur verið fylgst vel með meðlimum þessara klúbba. Þá veltir maður fyrir sér, þessir klúbbar merkja sig vel, þeir eru í einkennisklæðnaði, sjálf- lýsandi á götunum, sem gerir það auðveldara að fylgjast með þeim. Þá veltir maður fyrir sér hvert sé aðdráttaraflið, hvers vegna vilja menn endilega vera merktir sam- tökum sem þessum?“ spyr Helgi. Ferð að finna til þín í búningi Hann segir að mörg svör geti átt við þessu en yfirleitt sé það til að virka sem karl í krapinu. „Oft er það þannig að jaðarhóparnir að ein- hverju leyti finna til sín en þarna eru þeir allt í einu orðnir karlar í krap- inu, komnir í alvöru klúbba með alvöru karlmönnum. Gildakerfið er svolítið öðruvísi en hjá venju- legum borgurum, sem myndu ekki vilja tengjast þessu á neinn hátt, en ef þú ert búinn að vera á jaðrinum og kannski utan okkar samfélags og finnst þú kannski aldrei hafa feng- ið neitt frá þessu samfélagi, jafnvel bitur, þá ferðu að finna til þín þegar þú ert kominn í einkennisbúnað og fólk horfir á þig óttablöndnum augum. Fyrir fólk sem hefur aldrei komist almennilega inn í samfélag- ið þá verður þetta allt í einu vegs- auki,“ segir Helgi að lokum. n Bad Breed í Garðabæ fullgildir aðstoðarmenn Bandidos „Hagsmunasamtök brotinna manna,“ segir Helgi Gunnlaugsson afbrotafræðingur Hjálmar Friðriksson hjalmar@dv.is Fjölskyldan Hér má sjá merki Bandidos í Svíþjóð og „aðstoðarklúbba“ þeirra. Íslenski klúbburinn er þriðji frá vinstri í efri röð. Kalli málari og Anton Myndinni var deilt á Facebook rétt fyrir jól þegar þeir fögnuðu því að Bad Breed væru fullgild samtök undir Bandidos.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.