Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2017, Qupperneq 6
6 Áramótablað 29. desember 2017fréttir
Góðar
sængur
sem má
þvo við
95° hita
Teygjulök, í öllum stærðum á góðu verði.
100% cotton satin með 300TH. 60/60µ.
Dýnuhlífar,
rakaheldnar, þola þvott við 95°
Rúmfatnaður, vandaður,
100% cotton satin með 300TH. 60/60µ.
Handklæði,
gæðavara, 500 gsm. 100% cotton.
Frábærar vörur fyrir hótel, og bændagistingu
og sjúkrastofnanir
Stórhöfði 17 • 110 Reykjavík • Sími 5877685 • Netfang: elias@egheild.is • www.egheild.is
HEILD EHF
Opið frá
kl. 13 til 18
virka daga.
Vinsamlegast
sendið net-
skilaboð.
M
ótorhjólasamtökin Bad
Breed MC, sem hafa aðset-
ur í Garðabæ, hafa fengið
formlega inngöngu í hina
svokölluðu rauðu og gylltu fjöl-
skyldu, nokkurs konar stuðnings-
samtök hinna alræmdu glæpasam-
taka Bandidos. Með öðrum orðum,
þá eru íslensku samtökin ekki leng-
ur „tilvonandi“ (e. prospect) held-
ur fullgild og sjálfstæð eining. Þetta
kemur fram á Facebook-síðu sam-
takanna þar sem þau eru furðu-
virk í að segja frá nýjustu tíðindum.
Til gamans má geta að þar má sjá
myndir frá jólahlaðborði íslensku
samtakanna árið 2016.
Lögregla hefur áður sagst fylgj-
ast grannt með klúbbnum og sagði
til að mynda Runólfur Þórhalls-
son aðstoðaryfirlögregluþjónn í
viðtali við RÚV í fyrra að lögregla
hefði reglulega afskipti af mönnum
merktum Bad Breed. Bandidos eiga
að baki blóði drifna sögu sem nær
aftur til 1966. Skemmst er að minn-
ast stríðs Bandidos og Hells Angels
á Norðurlöndum á tíunda áratugn-
um sem leiddi til tólf dauðsfalla og
tæplega hundrað særðra.
Dóp, sterar og byssur
Ásamt tilkynningunni um að sam-
tökin væru nú fullgild fylgir mynd
af Antoni Samúel Sigurðssyni
og Karli Þórðarsyni, oft kallað-
ur Kalli málari, sem er forseti
klúbbsins samkvæmt umfjöll-
un Stundarinnar í fyrra. Anton
Samúel fékk tveggja mánaða
skilorðsbundinn dóm í fyrra
fyrir fíkniefna-, vopnalaga- og
lyfjalagabrot. Mótorhjólasam-
tök, svo sem Hells Angels og
Bandidos, eru helst þekkt á
heimsvísu fyrir að stunda við-
skipti með fíkniefni og vopn.
Anton Samúel var tekinn
með um 20 grömm af amfetamíni
og ríflega 250 grömm af kanna-
bis á heimili sínu. Ásamt því var
hann með nokkurt magn hinna
ýmsu tegunda anabólískra stera
á heimili sínu. Að lokum var hann
dæmdur fyrir að hafa geymt mikið
magn skotfæra í ólæstum hirslum,
svo sem tvær haglabyssur, sverð,
tvo fjaðurhnífa og úðavopn sem
lögreglumenn fundu á heimili
hans. Í dómi kemur fram að hann
hafi ekki áður gerst sekur um refsi-
verða háttsemi svo kunnugt sé.
„Rauða og gyllta fjölskyldan“
Þótt margt sé líkt með fullgildingu
Bad Breed og þegar Fáfnir fékk
inngöngu í Hells Angels fyrir
nokkrum árum þá er þó nokkur
munur þar á. Bad Breed mun ekki
taka upp nafnið Bandidos því fyrr-
verandi móðursamtökin í Svíþjóð
með sama nafni, nú systursamtök,
eru svokallaður „aðstoðarklúbb-
ur“ (e. support club). Í löggæslu er
þó yfirleitt litið á slíka klúbba sem
lepp og framlengingu Bandidos.
Forsíðumynd Red and Gold
Family á Facebook sýnir þetta
nokkuð vel. Þar má sjá merki ellefu
mótorhjólaklúbba í Svíþjóð auk
þess íslenska. Fyrst kemur merki
Bandidos í Svíþjóð ásamt ellefu
„aðstoðarklúbbum“. Munurinn á
þessu tvennu má sjá á litavali en
Bandidos hafa rauða bókstafi með
gylltan bakgrunn meðan það er
öfugt hjá aðstoðarklúbbum. Bad
Breed á Íslandi eru því nú fullgild-
ur aðstoðarklúbbur sem svarar
beint til Bandidos í Svíþjóð.
Hagsmunasamtök brotinna manna
Helgi Gunnlaugsson, afbrota-
fræðingur og prófessor við Háskóla
Íslands, segir í samtali við DV
að þótt það sé ekki jákvætt að
klúbbar sem þessir skjóti rót-
um á Íslandi þá sé ljóst að lög-
regla fylgist gífurlega vel með
þeim, enda merktir bak og fyr-
ir. Hann segir að líta megi á
klúbba sem þessa sem nokkurs
konar hagsmunasamtök brot-
inna manna. „Þetta er oft og
tíðum samtök einstaklinga og
hópa sem eru á jaðrinum og eru
nokkurs konar regnhlífarsam-
tök fyrir menn sem hafa kom-
ið við sögu lögreglu eða verið á
jaðrinum í samfélaginu og stund-
að smáglæpi. Oft eru þetta einstak-
lingar sem eru ekkert endilega allir
í glæpum. Á Norðurlöndum þekk-
ist það í þessum klúbbum að það
er misjafn sauður í mörgu fé eins og
annars staðar. Samt sem áður þá eru
þarna einstaklingar sem hafa kom-
ist í kast við lögin og þeir taka sér
bólfestu í hverfum og það er ami af
svona klúbbum,“ segir Helgi.
Vel fylgst með þeim
Helgi segir að á Íslandi hafi bæði
lögregla og stjórnvöld verið sér-
staklega á tánum gagnvart mót-
orhjólaklúbbum. „Það má segja
að það hafi gengið nokkuð vel og
það hefur verið hægt að stugga við
þessu að mestu leyti. Helst vilj-
um við vera laus við svona söfn-
uð en á móti má segja að íslenskt
samfélag er fámennt og stjórn-
völd hafa alla burði til að fylgjast
vel með þessu og það hefur verið
fylgst vel með meðlimum þessara
klúbba. Þá veltir maður fyrir sér,
þessir klúbbar merkja sig vel, þeir
eru í einkennisklæðnaði, sjálf-
lýsandi á götunum, sem gerir það
auðveldara að fylgjast með þeim.
Þá veltir maður fyrir sér hvert sé
aðdráttaraflið, hvers vegna vilja
menn endilega vera merktir sam-
tökum sem þessum?“ spyr Helgi.
Ferð að finna til þín í búningi
Hann segir að mörg svör geti átt
við þessu en yfirleitt sé það til að
virka sem karl í krapinu. „Oft er það
þannig að jaðarhóparnir að ein-
hverju leyti finna til sín en þarna eru
þeir allt í einu orðnir karlar í krap-
inu, komnir í alvöru klúbba með
alvöru karlmönnum. Gildakerfið
er svolítið öðruvísi en hjá venju-
legum borgurum, sem myndu ekki
vilja tengjast þessu á neinn hátt, en
ef þú ert búinn að vera á jaðrinum
og kannski utan okkar samfélags og
finnst þú kannski aldrei hafa feng-
ið neitt frá þessu samfélagi, jafnvel
bitur, þá ferðu að finna til þín þegar
þú ert kominn í einkennisbúnað
og fólk horfir á þig óttablöndnum
augum. Fyrir fólk sem hefur aldrei
komist almennilega inn í samfélag-
ið þá verður þetta allt í einu vegs-
auki,“ segir Helgi að lokum. n
Bad Breed
í Garðabæ
fullgildir
aðstoðarmenn
Bandidos
„Hagsmunasamtök brotinna manna,“ segir Helgi Gunnlaugsson afbrotafræðingur
Hjálmar Friðriksson
hjalmar@dv.is
Fjölskyldan Hér má sjá merki Bandidos í Svíþjóð og „aðstoðarklúbba“ þeirra. Íslenski klúbburinn er þriðji frá vinstri í efri röð.
Kalli málari og Anton
Myndinni var deilt á Facebook
rétt fyrir jól þegar þeir fögnuðu
því að Bad Breed væru fullgild
samtök undir Bandidos.