Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2017, Blaðsíða 10
10 Áramótablað 29. desember 2017fréttir
Svarthöfði verðlaunar þá Sem Stóðu Sig beSt á árinu
n Rifrildi n Hljómsveit n Skilnaður n Ástarævintýri
Árið 2017 fer í sögubækurnar fyrir ýmsar sakir. Ríkis-
stjórnin sprakk, fólk reifst, konur risu upp á meðan
dónakarlar fengu á baukinn. Svarthöfði hefur tekið
saman hitt og þetta sem stóð upp úr á árinu 2017
og verðlaunar þá sem stóðu sig best – og verst – á
ýmsum sviðum hins daglega lífs á árinu sem er að
líða.
Umdeild ummæli ársins
Stuðningsmenn
Ingu Sæland
froðufelldu í
kommentakerfi
Eyjunnar þegar
Þóra Kristín
Ásgeirs-
dóttir lét þessi orð
falla um foringja
Breiðholtsins
Hljómsveit/Tríó ársins
Það hlýtur að vera Bjarni Benediktsson, Sigurður Ingi
Jóhannsson og Katrín Jakobsdóttir. Það bjóst enginn við að þau
myndu stofna sveit
saman. Hvort þau ná
svo að spila og syngja
í takt á tíminn eftir að
leiða í ljós.
Íslendingar eru alla
vega spenntir en 75
prósent hafa trú á að
þau muni gera góða
hluti.
Rifrildi ársins
Tara Margrét Vilhjálmsdóttir og
Sindri Sindrason sjónvarpsmað-
ur tókust á í sjónvarpssal þar sem
rætt var um fitufordóma í
samfélaginu. Sagði Tara að Sindri
væri einn af þeim í samfélaginu
sem væri í forréttindastöðu.
„Veistu hvað ég er í mörgum
minnihlutahópum?“ spurði Sindri
og bætti við: „Ég er hommi, ég á
litað barn, það er ættleitt, ég er
fyrsti samkynhneigði maðurinn til
að ættleiða á Íslandi, ég er
giftur útlendingi –
eða hálfum
útlendingi
– þannig að við
skulum ekki
fara þangað.“
Fundur ársins
Björt framtíð stóð fyrir fundi ársins þann 15. september.
Stjórn BF hélt rafræna kosningu og ákvað að slíta
ríkisstjórnarsamstarfinu. Björt framtíð ákvað að slíta
samstarfinu vegna trúnaðarbrests Bjarna Benediktsson-
ar, formanns Sjálfstæðisflokksins. Fundurinn hafði
gríðarleg áhrif en Björt framtíð þurrkaðist út af þingi og
Bjarni myndaði ríkisstjórn með Vinstri grænum og
Framsóknarflokknum.
Svik ársins
Bergi Þór Ingólfssyni leikara tókst hið
ótrúlega, að fella heila ríkisstjórn og
fékk mikið hrós fyrir. Bergur skilur
sjálfsagt lítið í Katrínu Jakobsdóttur
sem virtist hafa gleymt af hverju var
boðað til kosninga. Liðsmenn Vg
suðuðu um atkvæði til að koma
íhaldinu frá. Eins og sannir íslenskir
pólitíkusar sviku þau það loforð undir
eins og ekki leið á löngu þar til íhaldið og
Vg voru komin í sleik. Verður fróðlegt
að sjá hversu mörg loforð Vg svíkur á
kjörtímabilinu.
Skilnaður ársins
Sigmundur Davíð og
Sigurður Ingi hættu saman í
fyrra eftir hörð átök. Á meðan
Sigmundur stýrði
þjóðarskútunni lék allt í lyndi
á milli parsins. Þegar
Sigmundur ákvað að stíga til
hliðar í kjölfar umfjöllunar um
Panamaskjölin tók Sigurður
við. Hann kunni svo vel við sig
að hann ákvað að sitja þar
áfram. Sigmundur var áfram í
sambandinu en var eiginlega
aldrei heima og töluðust
Sigmundur og Sigurður Ingi
ekki við. Hann ákvað svo
endanlega að ganga úr
sambandinu í haust og ríkir
nú einn yfir Miðflokknum.
Afsökun ársins
Magnús Ólafur Garðarsson, fyrrverandi
forstjóri United Silicon á Íslandi, á afsökun
ársins. Teslu-Magnús var handtekinn á
Reykjanesbraut grunaður um að hafa með
vítaverðum akstri valdið umferðarslysi. DV
hafði samband við Magnús sem þvertók
fyrir það að hafa verið handtekinn. „Ég
bað lögregluna um far í vinnuna,“
sagði Magnús þegar hann var
spurður hvers vegna lögreglan hafi
ekið honum af slysstað. Hann kunni
þó engar skýringar á því af hverju
lögreglan vistaði hann í fangaklefa
meðan á frumrannsókn málsins
stóð.
Góðverk ársins
Launahækkun kjararáðs til þingmanna og nú síðast biskups. Biskup
fékk í jólagjöf afturvirka hækkun frá kjararáði upp á 3,3 milljónir króna
á meðan þúsundir Íslendinga hafa ekki efni á að halda jól í góðærinu
sem hamrað er á íslenskri þjóð að ríki hér
á landi. Eins og íslensk þjóð veit hafði
Agnes óskað eftir leiðréttingu sem er
engin furða, enda með aðeins rétt
rúma milljón á mánuði. Þá var
Agnes enn að jafna sig eftir að
hafa aðeins fengið 7,15 prósent
hækkun fyrir ári og þá tók
virkilega á að neyðast til að vera á
dagpeningum í Svíþjóð við
ritgerðarsmíð og fá aðeins tæplega
milljón fyrir það haustið 2015. Agnes
stígur nú út úr áfallinu og getur loks líkt
og þingmenn keypt í matinn. Hvort
Agnes og þingmenn taki forseta
Íslands sér til fyrirmyndar
og gefi hækkun eða
hluta hennar til þeirra
sem eiga ekki til
hnífs og skeiðar í
góðærinu mikla er
önnur saga.
Flík ársins
Galvan-kjóllinn sem vinkona
Bjartar Ólafsdóttur fékk
umhverfisráðherrann þáverandi
til að klæðast í þingsal hlýtur að
vera umtalaðasta flík ársins. Málið
byrjaði á Instagram og þróaðist út
í hlátrasköll ráðherrans á
Facebook á kostnað feðraveldis-
ins. Upp úr því varð flíkin að
heimspekilegum vangaveltum um
friðhelgi Alþingis og hvar
myndavélar mega vera staddar til
að afhelga ekki salinn. Málið
endaði svo með afsökunarbeiðni
Bjartar. Flíkin sjálf hlýtur að enda
uppi á vegg á Hard Rock Café eða
Hamborgarafabrikkunni.
„Ég skil svolítið kjósendur í
Breiðholtinu, úti á landi eða
eitthvað svona, sem að hlaupa í
fangið á Ingu Sæland. Blind kelling
úr Breiðholtinu, sextug, voða hress.
Talar um lífeyrisþega ... hvaða líf-
eyrisþegar eru á listum innan flokk-
anna?“ Inga Sæland var sjálf
óhress og sagði: „Þetta er
bara dóni, kurteisi kostar
ekki neitt. Svo er þetta
ekki alveg satt. Ég er
sjónskert miðaldra
kona í Grafarholti.