Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2017, Qupperneq 11
Áramótablað 29. desember 2017 fréttir 11
Svarthöfði verðlaunar þá Sem Stóðu Sig beSt á árinu
n Rifrildi n Hljómsveit n Skilnaður n Ástarævintýri
Heimskulegustu ummæli ársins
Ragnar Önundarson um
Áslaugu Örnu Sigurbjörns-
dóttur. Ragnar hélt áfram
að grafa eigin gröf þegar
hann hrósaði Áslaugu fyrir
að skipta um mynd eftir að
hann lét ummælin falla. Það
var alls ekki rétt. Myndin sem
Ragnar lét hin ósmekklegu
ummæli falla við var göm-
ul og hafði ekki verið not-
uð í marga mánuði. Ljóst
er að Ragnar hefur lagt á sig
að fletta gömlum profile-
myndum af Áslaugu og svo
hneykslast þegar hann loks
fann eina sem var honum
ekki að skapi. Ragnar er vel
að þessum titli kominn.
Ástarævintýri ársins
Ástarævintýri
ársins er
án efa
samband
Bjarna
Bene-
diktssonar
og Katrínar
Jakobsdóttur
forsætisráð-
herra. Fáir bjuggust við því að
sambandið yrði að veruleika.
Íslendingar vissu ekki að
ástarævintýrið var fyrir löngu
hafið en Sigrún Sól leikkona
sagði í samtali við Vísi að hún
hefði heyrt Steingrím J. Sigfússon
ræða við ónefndan mann í flugi
frá Akureyri um samstarf eftir
kosningar.
Drama ársins
Sigrún Sigurpálsdóttir og
Sólrún Diego léku aðalhlutverk í
stóra ilmkúlumálinu. Sigrún
mælti með að nota ilmkúlur við
þvott og spritt við þrif. Sólrúnu
fannst það ótækt og mælti gegn
því ráði enda aðdáandi ediks við
þrif. Margrét Sigfúsdóttir,
skólastjóri
Hús-
stjórnar-
skólans,
steig svo
fram og
sagði dramadrottningar ársins á
villigötum. „Marg ar ung ar stúlk ur
í net heim um eru að leiðbeina
fólki að nota ed ik blandað vatn á
allt, og sum ar nota líka spritt, sem
er endem is þvæla.“
Glataðasta kosningaloforð ársins
Það gerist ekki tækifærissinnaðra og Framsóknarlegra en
„Svissneska leiðin“. Leiðin sjálf er ekkert ömurleg en hún felur í sér
að einhverjir fá að eyða einhverjum peningum sem þeir eiga kannski
í framtíðinni í dag, hver segir nei við fríum peningum? Enginn. Það
glataða við þetta kosningaloforð voru auglýsingarnar þar sem farið
var yfir það hversu glatað það er að vera með fullorðin afkvæmi á
heimilinu. Það þarf ekki að auglýsa fyrir þeim sem þurfa að búa við
slíkt, hvað þá með jóðli í útvarpinu. Sem betur fer hefur ekkert frést
af þessu Alparugli eftir að
Framsókn settist í
ríkisstjórn, fyrir utan örlitla
línu í stjórnarsáttmálanum
um að það eigi hugsanlega
kannski að skoða það.
Óvinir ársins
Þeir Gunnar Hrafn Jónsson,
þá þingmaður Pírata, og
Brynjar Níelsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins, voru
ágætir mátar þegar þeir fóru
saman út að reykja fyrir utan
Alþingi en í ágúst slettist
allverulega upp á vinskapinn.
Gunnar Hrafn krafðist þess að
fá að vita
um tengsl
Brynjars
við
sáluga
strípi-
staðinn
Bóhem og
barn-
aníðinginn Robert Downey.
Brynjar sagði á móti að honum
þætti Gunnar Hrafn bestur
þegar hann talaði um veikindi
sín, túlkaði Gunnar Hrafn það
sem árás á andlega veikt fólk.
Mun Brynjar hafa forðast
augnsamband við Píratann í
kjölfarið en fór
svo á netið
og hæddist
að Pírötum
fyrir að vilja
„slefa fyrir
framan
tölvuna allan
daginn á
borgaralaun-
um“.
Vonbrigði ársins
Hér er af ýmsu að taka. Íslenskir stjórnmálamenn, margir hverjir að
minnsta kosti, ollu mörgum vonbrigðum með gjörðum sínum og
orðum. Margir urðu fyrir vonbrigðum í haust þegar ýmislegt benti til
þess að eldgos væri að hefjast, en svo gerðist bara ekki neitt. Svo má
ekki gleyma því að íslenska handboltalandsliðið olli vonbrigðum á
HM í handbolta í janúar síðastliðnum. Tap fyrir Frökkum í 16 liða
úrslitunum sendi Ísland heim. Loks verður að nefna árangur
kvennalandsliðsins á EM í Hollandi í
sumar. Eftir góðan árangur
karlalandsliðsins á EM í Frakklandi
sumarið 2016 voru margir sem
bjuggust við því að stelpurnar myndu
einnig koma á óvart. Liðið tapaði öllum
leikjum sínum og endaði á botni
riðilsins. Húh!
Hetja ársins
Það eru tveir menn sem eiga
þessa nafnbót skuldlausa. Annars
vegar Bergur Þór Ingólfsson
leikari og hins vegar Grímur
Grímsson yfirlögregluþjónn.
Bergur Þór var
áberandi í
um-
ræðunni
um
uppreista
æru og
barðist
mjög fyrir
málefnum
þolenda
kynferðisbrota. Barðist hann hart
gegn þeirri leynd sem ríkti yfir
gögnum í máli Roberts Downey.
Grímur Grímsson fór fyrir
rannsókninni á hvarfi Birnu
Brjánsdóttur og
var vakinn og
sofinn yfir
málinu svo
vikum
skiptir.
Skúrkur ársins
Íslenski dónakarlinn er skúrkur ársins. Að undanförnu hefur hver
sagan á fætur annarri um kynferðislega áreitni karla dunið yfir
þjóðinni og ljóst að margir þurfa að líta í eigin barm. Hér er um að
ræða leikara, stjórnmálamenn, fjölmiðlamenn, stjórnendur
fyrirtækja og svo miklu, miklu fleiri sem hafa gerst sekir um
ósæmilega háttsemi í garð kvenna á undanförnum árum. Nú er kom-
ið að skuldadögum, strákar.
Klúður ársins
Ákvörðun Bjartrar
framtíðar um að
slíta stjórnarsam-
starfinu hlýtur að
vera klúður ársins.
Trúnaðarbresti og
leyndarhyggju var
kennt um en sannleik- urinn
er sá að Björt framtíð taldi að með
þessu yrði staða flokksins sterkari
þegar loks kæmi að kosningum.
Ég meina, hver vill ekki kjósa
prinsippfólk á Alþingi? Allur þessi
gjörningur snerist upp í
andhverfu sína og Björt framtíð
þurrkaðist eftirminnilega út af
þingi. Það eru ekki ýkja margir
sem sakna flokksins.
Par ársins
Um fá pör var rætt meira um á
árinu en Benedikt Sveinsson
kaupsýslumann og Hjalta
Sigurjón Hauksson barnaníðing.
Aðeins örfáir vissu að þeir væru
par fyrr en hulunni var flett ofan
af þeim í sumar. Samband þeirra
er vægast sagt dularfullt og
hvorugur maðurinn vill segja hvar,
hvenær eða hvernig þeir kynntust.
Benedikt var mjög umhugað um
að Hjalti Sigurjón væri í vinnu og
að hann væri ekki einmana þegar
hann sat inni á Kvíabryggju.
Dóni ársins
Íslenski leigusalinn sem bauð
Hörpu Lind Pálmarsdóttur,
ungri konu í örvæntingarfullri
leit að húsnæði, lægra
leiguverð gegn því að hann
fengi að stunda með henni
kynlíf, er dóni ársins. DV
fjallaði um málið í haust en
maðurinn var afhjúpaður með
falinni myndavél blaðamanna
DV. Var hann tilbúinn að
lækka leiguna um 50 þúsund
krónur gegn því að fá að
stunda kynlíf með henni.
Leigusalinn, sem er tæplega
sextugur, kærði umfjöllun DV
til siðanefndar Blaðamannafé-
lags Íslands en nefndin
úrskurðaði DV í vil.
„Þessi unga kona
var í sjónvarpi í
kvöld að ræða um kyn-
ferðislega áreitni við kon-
ur í stjórnmálum. Með-
fylgjandi mynd hefur hún
notað sem ,,prófílmynd” á
FB. Sjálfsagt finnst sum-
um engu skipta hvernig
myndir fólk í stjórnmál-
um notar til að kynna sig.
Dæmi hver fyrir sig.“
„Steingrímur
talaði um mikil-
vægi þess að hér yrði
tveggja flokka stjórn
og virtist á honum að
þetta væri allt þegar
klappað og klárt milli
VG og D. [...] Þau voru
búin að ákveða þetta
– fyrir löngu.