Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2017, Side 12
12 Áramótablað 29. desember 2017fréttir - innlendur fréttaannáll
Janúar
4. janúar
Vanhelgun
Akureyrarkirkju
Skemmdarverk voru unnin á Ak-
ureyrarkirkju og þremur öðr-
um kirkjum á Akureyri aðfara-
nótt miðvikudagsins 4. janúar.
Skemmdarverkin voru í formi
klúryrða gagnvart kristinni trú
sem spreyjuð voru á veggi og
hurðir kirknanna. Hraðar hend-
ur þurfti að hafa í Akureyrarkirkju
þar sem útför átti að fara fram
þennan dag. Spreybrúsi fannst
við hurð kirkjunnar og var lög-
regla kölluð á vettvang. Maður á
þrítugsaldri var handtekinn degi
seinna. Hann játaði og var sleppt
í kjölfarið.
9. janúar
Ferðamaður lést við
Reynisfjöru
Fjögurra manna þýsk fjölskylda
sem var á ferðalagi um Ísland
sogaðist út með briminu skammt
austan við Reynisfjöru laust eftir
klukkan 13 mánudaginn 9. janú-
ar. Um var að ræða hjón með tvö
börn og náði eiginmaðurinn og
bæði börnin að koma sér á land
án þess að verða meint af. Björg-
unarsveitarmenn, skip og þyrla
voru kölluð til en aðstæður til leit-
ar voru mjög erfiðar vegna brims.
Konan, sem var 47 ára, fannst um
klukkutíma síðar og var hún úr-
skurðuð látin skömmu eftir kom-
una á sjúkrahús.
10. janúar
Stjórnarsáttmáli
undirritaður
Alþingiskosningarn-
ar 29. október 2016
skildu eftir sig
flókna stöðu í
stjórnmálunum
og erfiðlega gekk
að koma saman
ríkisstjórn. Í þriðju
tilraun náðu Sjálf-
stæðisflokkur, Viðreisn
og Björt framtíð saman en flokk-
arnir þrír mynduðu meirihluta
með 32 þingmönnum, minnsta
mögulega mun. Stjórnarsáttmál-
inn var undirritaður í Gerðarsafni
í Kópavogi. Allnokkrir innan
bæði Sjálfstæðisflokks og Bjartrar
framtíðar höfðu þó lýst efasemd-
um um samstarfið og hinn tæpa
meirihluta.
15. janúar
Leitað að
Birnu Brjánsdóttur
Eitt umfangsmesta fréttamál Ís-
lands hófst þegar móðir hinnar
tvítugu Birnu Brjánsdóttur til-
kynnti lögreglu að hún væri týnd.
Birna hafði verið úti að skemmta
sér föstudagskvöldið 13. janúar
og ekkert sést til hennar síðan um
nóttina. Þegar hún mætti ekki til
vinnu daginn eftir fór fjölskyld-
an að hafa áhyggjur og hóf leit að
henni. Lögreglan lýsti eftir
upplýsingum um ferðir
hennar á sunnudeg-
inum 15. janúar. Degi
seinna var óskað eft-
ir upplýsingum um
ferðir rauðrar Kia Rio-
bifreiðar.
17. janúar
Skór Birnu finnast
Straumhvörf urðu í leitinni að
Birnu Brjánsdóttur þegar tveir
bræður og leitarmenn fundu Dr.
Martens-skó, sem síðar var stað-
fest að væru hennar, við Hafnar-
fjarðarhöfn. Leit fór nú að beinast
meira að hafnarsvæðinu. Síðar
þennan sama dag kemur í ljós að
skipverjar á grænlenska togar-
anum Polar Nanoq, sem lá við
höfnina en var þá farinn úr landi,
hefðu haft umrædda Kia Rio-bif-
reið á leigu. Þennan sama dag var
hald lagt á bifreiðina í Kópavogi.
18. janúar
Skipverjar handteknir
Síðdegis þriðjudaginn 17. jan-
úar var grænlenska togaranum
Polar Nanoq snúið við en hann
var þá kominn út úr íslenskri lög-
sögu. Um hádegisbil 18. janúar
flaug þyrla Landhelgisgæslunn-
ar á móti skipinu með vopnaða
sérsveitarlögreglumenn um borð.
Lögreglumennirnir sigu í skipið
og handtóku tvo skipverja, sem
grunaðir voru að búa
yfir upplýsingum
um hvarf Birnu
Brjánsdóttur.
Nálægt
miðnætti
kom skip-
ið að höfn
í Hafnarf-
irði og voru
mennirnir þá
færðir til yfirheyrslu.
Við leit í skipinu fundust mun-
ir og lífsýni tengd Birnu en einnig
umtalsvert magn af hassi.
22. janúar
Lík Birnu finnst
Rúmri viku eftir að Birna Brjáns-
dóttir hvarf fannst lík hennar í
fjöruborðinu við Selvogsvita í Ölf-
usi. Á blaðamannafundi tilkynnti
lögregla um líkfundinn og jafn-
framt að yfirgnæfandi líkur væru
á að henni hefði verið ráðinn
bani. Seinna var öðrum skipverj-
anum, Nikolaj Olsen, sleppt laus-
um eftir gæsluvarðhald en hinn,
Thomas Möller Olsen, var ákærð-
ur fyrir morðið á Birnu.
28. janúar
Fórst í snjóflóði á Esju
Birgir Pétursson, 25 ára, fórst í
snjóflóði í Esju síðdegis laugar-
daginn 28. janúar. Birgir var á
göngu ásamt tveimur öðrum
mönnum þegar snjóflóðið
féll á vel þekkt göngusvæði
fjallsins. Hinir tveir komust
upp úr flóðinu af sjálfsdáð-
um og voru þeir fluttir á
slysadeild til aðhlynningar.
Kalla þurfti til björgunarsveit
til að finna Birgi. Um hundrað
manns tóku þátt í leitinni ásamt
þyrlu Landhelgisgæslunnar og
fannst hann látinn á níunda
tímanum.
Febrúar
1. febrúar
Hlutabréf
Icelandair
hríðfalla
Í kjölfar tilkynningar ársuppgjörs
Icelandair Group hríðféllu hluta-
bréf félagsins í Kauphöll Íslands,
eða um 22,85%. Ástæðan fyrir
slæmu uppgjöri var rakin til þess
að bókanir á flugferðum voru
hægari en gert var ráð fyrir.
2. febrúar
Átta ára fangelsi fyrir
manndrápstilraun og
nauðgun
Héraðsdómur Reykjaness dæmdi
karlmann í átta ára fangelsi fyr-
ir tilraun til manndráps, frelsis-
sviptingu, nauðgun og sérstaklega
hættulega líkamsárás gegn sam-
býliskonu sinni og barnsmóður í
Hafnarfirði í fyrrasumar. Var hann
talinn hafa misþyrmt konunni í
um tvær klukkustundir.
3. febrúar
Birna borin til grafar
Útför Birnu Brjánsdóttur fór fram
í Hallgrímskirkju. Birna hvarf
að morgni 15. janúar og fannst
látin við Selvogsvita 22. janúar,
eftir mikla leit lögreglu, björg-
unarsveita, Landhelgisgæslu og
almennings. Aðstandendur af-
þökkuðu blóm og kransa og fóru
þess á leit við fjölmiðla að taka
ekki myndir af syrgjandi fólki.
6. febrúar
Benedikt vill draga
úr notkun reiðufjár
Benedikt Jóhannesson, fjármála-
og efnahagsráðherra, skipaði
nefnd sem skoða átti aðstæður og
leiðir þess hvernig minnka mætti
notkun reiðufjár hér á landi, í við-
leitninni til að berjast gegn svartri
atvinnustarfsemi. Benedikt lagði
til að fyrirtæki hættu að greiða
laun í peningum og verðþak
mætti setja á varning í smásölu,
sem greiddur væri með reiðu-
fé. Hugmyndir Benedikts hlutu
mikla gagnrýni.
6. febrúar
Birgitta laus úr
Brasilíufangelsi
Birgitta Gyða Bjarnadóttir var
dæmd í fimm ára fangelsi í Bras-
ilíu árið 2015 fyrir kókaínsmygl
ásamt kærasta sínum, Hlyni
Kristni Rúnarssyni. Hún var látin
laus 6. febrúar eftir að hafa áfrýj-
að dómnum, en hún lýsti aðstæð-
unum í fangelsinu sem „skelfi-
legum“.
7. febrúar
Þórdís hélt
fyrirlestur
með nauðgara
sínum
Þórdís Elva Þorvalds-
dóttir hélt áhrifamikinn
TED-fyrirlestur, sem miðlað
var á netinu, ásamt Tom Stranger,
manninum sem nauðgaði Þór-
dísi er hún var 16 ára. Tilefnið
2017: Ár ólgu, átaka,
upprisu og samstöðu
n Kosningar, ofbeldismál og upprisa gegn kynferðislegu ofbeldi standa upp úr