Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2017, Qupperneq 20
20 Áramótablað 29. desember 2017fréttir - innlendur fréttaannáll
á göngu ásamt tveimur öðrum
þegar hún hrapaði um fimmtíu
metra.
12. júlí
Heilabilaður maður
skikkaður til að greiða
tvöfalda leigu
Mál hins 69 ára gamla Lýðs Æg-
issonar komst í deigluna eftir að
upplýst var að hann þyrfti að greiða
leigu fyrir tvo staði á vegum Hjúkr-
unarfélagsins EIR, samanlagt 574
þúsund krónur og mun meira en
hann hafði efni á. Lýður, sem glím-
ir við ýmis veikindi, gat ekki lengur
búið í öryggisíbúð sinni og þurfti að
flytja inn á hjúkrunarheimilið. Fjöl-
skylda Lýðs og forsvarsmenn Eirar
hafa deilt um málið í fjölmiðlum,
hvenær leigu öryggisíbúðarinnar
hafi verið sagt upp.
17. júlí
Kona á Stokkseyri
taldi að um íkveikju
væri að ræða
Íbúi á Stokkseyri, Andrea Kristín
Unnarsdóttir, missti heimili
sitt og barnið sem hún
bar undir belti í mikl-
um bruna á heimili
sínu klukkan hálf
sex um morgun-
inn. Andrea sagði
að maður hefði
komið inn til sín
og skvett eldfim-
um vökva yfir hana
og kveikt í. Hún komst af
sjálfsdáðum út úr húsinu, velti sér
í grasinu og náði að slökkva eldinn
í sjálfri sér en húsið gereyðilagð-
ist. Hlaut hún mikil brunasár og
dvaldist á spítala eftir brunann.
Lögregla sagði að um grafalvarlegt
mál væri að ræða en varðist frétta
um hvort málið væri rannsakað
sem morðtilraun.
19. júlí
Hælisleitandi fellur
í Gullfoss
22 ára hælisleitandi frá Georgíu,
Nika Begades, féll í Gullfoss um
klukkan fimm síðdegis. Óljóst er
hvað gerðist en málið var rann-
sakað sem slys. Fólk á staðnum
sá Nika milli fossa en svo hvarf
hann sjónum. Björgunarsveitar-
menn og þyrla voru kölluð á stað-
inn sem komu á vettvang um sex
leytið. Leitað var dagana á eftir en
árangurslaust. Sporhundar röktu
ferðir Nika frá bifreið að útsýnis-
pallinum og svo niður undir ána.
Um miðjan ágúst fannst lík hans
neðan Brúarhlaða á austurbakka
Hvítár.
21. júlí
Nauðgaði tveimur
stúlkum en komst
fljótlega á Vernd
DV greindi frá því að í desem-
ber árið 2016 hafi átján ára piltur
verið dæmdur í fimm og hálfs árs
fangelsi fyrir að nauðga tveimur
fimmtán ára stúlkum á hrotta-
legan hátt með aðeins viku milli-
bili. Hálfu ári eftir uppkvaðningu
dómsins var pilturinn kominn á
áfangaheimilið Vernd og keyrði
daglega um götur borgarinnar.
Þolendur hans gátu því átt von
á því að mæta honum hvar sem
er aðeins tæpu ári eftir að brotin
áttu sér stað. Samkvæmt lögum
eru reglur um reynslulausn
rýmri ef um ungt fólk er
að ræða en þá aðeins í
málum þar sem brot
eru ekki talin alvarleg.
25. júlí
Kynnisferðir í
ölduróti
Sumarið var stormasamt hjá rút-
ufyrirtækinu Kynnisferðir/Reykja-
vik Excursions. 25. júní birtist
myndband af glæfraakstri öku-
manns. Sléttum mánuði síðar
greindi DV frá því að rúta félags-
ins hefði verið notuð til að smygla
áfengi og fleiru til landsins. Hinn
3. ágúst var á annan tug starfs-
manna sagt upp. 6. ágúst greindi
DV frá því að rútubílstjóri Kynn-
isferða hafi verið handtekinn við
Jökulsárlón undir áhrifum við
akstur ferðamanna. Þann 7. sept-
ember gáfu Kynnisferðir út til-
kynningu um að Kristján Daníels-
son, framkvæmdastjóri til sex ára,
myndi láta af störfum.
31. júlí
Stóra kjólamálið
Björt Ólafsdóttir, um-
hverfisráðherra
og þingmaður
Bjartrar framtíð-
ar, komst í hann
krappan eft-
ir að hafa orðið
uppvís að því að
brjóta reglur Al-
þingis um mynda-
tökur í þingsal. Björt var
mynduð fyrir framan ræðupúltið
í kjól frá tískuvöruframleiðand-
anum Galvan London. Björt og
Sóla Káradóttir, listrænn stjórn-
andi framleiðandans, eru vinkon-
ur. Mörgum, þar á meðal Smára
McCarthy, þingmanni Pírata,
fannst athæfið ekki auka virðingu
Alþingis. Málið fór hátt og flest-
ir höfðu skoðun á því. Bubbi
Morthens sagði til dæmis að þetta
væri „ekki ráðherra sæmandi“.
Björt hló hins vegar að málinu.
„Það gæti auðvitað endanlega far-
ið með feðraveldið eins og það
leggur sig.“
Ágúst
3. ágúst
Fyrsti samkynhneigði
presturinn á Íslandi
Stefanía Guðlaug Steinsdótt-
ir verður fyrsti samkynhneigði
prestur þjóðkirkjunnar er hún
hefur störf í Glerárprestakalli.
„Já, mér skilst það. Ég hef ekki
mætt neinum fordómum enda
hefur afstaða almennings til
samkynhneigðar tekið jákvæð-
um breytingum á undanförnum
árum og áratugum. Opinberlega
telst ég vera fyrsti samkynhneigði
prestur þjóðkirkjunnar og ég er
þakklát kirkjunni fyrir að velja
mig til þessarar ábyrgðarstöðu,“
sagði Stefanía við N4 á Akureyri.
5. ágúst
Ólæti meðal unglinga
á Flúðum
Mikill erill var á fjölskylduhátíð-
inni Flúðir um Versló um versl-
unarmannahelgina, en slagsmál
brutust út meðal stórs unglinga-
hóps hvar margir voru und-
ir áhrifum fíkniefna og vopnað-
ir hnífum, sem er þó ekki talið að
hafi verið beitt. Lögreglan kom
á svæðið undir klukkan sjö
að morgni, en gat lítið að-
hafst vegna manneklu,
þar sem gæslufólk er
af skornum skammti
þessa annasömu helgi.
Töldu margir að gæslu-
mál hefðu verið í lama-
sessi.
8. ágúst
Brynjar Níelsson neitar
að upplýsa um
meðmælendabréfin
Brynjar Níelsson, formaður stjórn-
skipunar- og eftirlitsnefndar fyr-
ir Sjálfstæðisflokkinn, segist vita
hvaða tveir valinkunnu einstak-
lingar mæltu með að Róbert Dow-
ney hlyti uppreist æru. Róbert get-
ur því samkvæmt lögum starfað
sem lögmaður þó svo hann hafi
verið dæmdur í þriggja ára fang-
elsi fyrir kynferðisbrot gegn fjórum
stúlkum og misst þar af leiðandi
lögmannsréttindi sín. Brynjar neit-
aði að upplýsa um gögnin og segir
þau trúnaðarmál. Fjölmiðlar hafa
reynt að nálgast gögnin, en ávallt
verið neitað af dómsmálaráðu-
neytinu. Hefur sú ákvörðun ver-
ið kærð til úrskurðarnefndar um
upplýsingamál.
11. ágúst
Magakveisufaraldur
skáta á Úlfljótsvatni
Á nokkrum dög-
um veiktust
hátt í sjötíu
piltar sem
dvöldu
í Úti-
lífsmið-
stöð skáta
á Úlfljóts-
vatni, en talið
er að um nóró-
sýkingu hafi verið að ræða. Sýni
voru greind og send til rannsókn-
ar, en sumir þurftu að fá næringu
í æð. Um 170 skátadrengir voru
fluttir frá Úlfljótsvatni í fjölda-
hjálparstöð í Hveragerði þar sem
heilbrigðisstarfsfólk hlúði að
þeim.
16. ágúst
Ósætti beinist
að Hjörleifi
Myndinni af íslenska sjómannin-
um sem prýtt hafði Sjávarútvegs-
húsið við Skúlagötu í um tvö ár,
var sárt saknað þegar kom í ljós
að málað hafði verið yfir hana.
Einn aðdáenda myndarinnar var
Þórólfur Júlían Dagsson, sjómað-
ur og Pírati, sem vandaði Hjör-
leifi Guttormssyni, fyrrverandi
ráðherra, ekki kveðjurnar, en
Hjörleifur býr í hverfinu og hafði
barist fyrir því að myndin yrði
fjarlægð. „Hann ætti að skamm-
ast sín. Þetta er honum ekki til
framdráttar. Ég er nokkuð viss um
að sjómenn fyrir austan eru ekki
ánægðir með fyrrverandi ráð-
herra. Sjómennskan er arfleifð
okkar og við eigum að vera stolt af
henni,“ sagði Þórólfur.
18. ágúst
Vilja loka United Sil-
icon vegna mengunar
Samtök andstæðinga stóriðju í
Helguvík sendu frá sér yfirlýsingu
hvar þeir hvöttu til þess að verk-
smiðju United Silicon í Helguvík
verði lokað. Hluti íbúa Reykjaness
er sagður hafa orðið fyrir veruleg-
um óþægindum og vanlíðan vegna
mengunar frá verksmiðjunni, sem
gangi þvert á starfsleyfi hennar og
sé ólíðandi með öllu. Er nefnt að
astmaeinkenni, hæsi, sviði í aug-
um og þurrkur í hálsi sé meðal þess
sem plagi íbúa. Þá er skorað á yfir-
völd að loka verksmiðjunni.
19. ágúst
Og hvað á Samfylk-
ingin að heita?
Í kjölfar afhroðs Samfylkingarinn-
ar í kosningunum 2016 kom upp
sú umræða að hugsanlega þyrfti
að endurnýja heiti flokksins. Rit-
höfundurinn Guðmundur Andri
Thorsson, nú þingmaður Samfylk-
ingarinnar, stakk upp á nafnbótinni
„Jafnaðarmannaflokkurinn“ í pistli
sínum á Facebook. Honum varð
ekki að ósk sinni. Enn þá.
21. ágúst
Hoppukastali fullur af
börnum fauk á hliðina
Betur fór en á horfðist þegar
hoppukastali, fullur af ánægðum
börnum að leik, fauk um koll á
bæjarhátíðinni Blómstrandi dög-
um í Hveragerði. Mikil skelfing
greip um sig og kallaður var til
sjúkrabíll. Engin meiðsli hlutu-
st þó af. Kastalinn var ekki festur
niður á neinn hátt, líkt og gjarnan
tíðkast. Starfsmaður Sprell.is, sem
sér um hoppukastalann, sagði þó
á vettvangi að of mörg börn hefðu
safnast saman við enda kastalans.
21. ágúst
Réttað yfir Thomasi
Möller Olsen
Vitnaleiðslur í einum stærstu
réttarhöldum Íslandssögunn-
ar hófust í Héraðsdómi
Reykjaness. Réttað var yfir
Thomasi Möller Olsen, skip-
verja af grænlenska togaranum
Polar Nanoq, fyrir að hafa banað
Birnu Brjánsdóttur í janúar. Tugir
báru vitni, bæði viðstaddir og er-
lendis frá í gegnum síma. Athygli
vakti að Thomas breytti fram-
burði sínum töluvert frá skýrslu-
tökunum og virtist beina sökinni
að félaga sínum, Nikolaj Olsen.
Fjölmiðlafólk fyllti salinn en var
vísað út á meðan réttarmeina-
fræðingur sýndi gögn.