Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2017, Side 22
22 Áramótablað 29. desember 2017fréttir - innlendur fréttaannáll
September
4. september
Svisslendingur í
nálgunarbann gagn-
vart 13 ára dreng
Martin Gasser, jarðfræðingur frá
Sviss og íbúi á Breiðdalsvík, var
settur í nálgunarbann gegn 13 ára
dreng. Var hann sakaður um að hafa
lagt hendur á drenginn og hafa lagt
hann í einelti í tvö ár. Faðir drengs-
ins sagði að málið hefði byrjað eft-
ir að drengurinn hafi skemmt staur
í svokölluðum „plánetustíg“ sem
Gasser vann að. Í samtali við DV
sagðist Gasser hins vegar að dreng-
urinn hefði margsinnis áreitt fjöl-
skyldu sína og hann hafi þurft að
verjast.
7. september
Sprenging í Skipholti
Á ellefta tímanum varð mikil
sprenging í bílskúr við Skipholt 45
og í kjölfarið varð mikill eldsvoði.
Allt tiltækt slökkvilið var sent á stað-
inn sem réð niðurlögum eldsins
nokkuð fljótt. Bílskúrinn var inn-
réttaður sem heimili og slasað-
ist íbúi skúrsins við sprenginguna.
Upphaflega var greint frá því að
lögreglan leitaði tveggja annarra
manna sem kynnu að hafa meiðst
í slysinu en það var síðan borið til
baka. Ekki var vitað hvað olli slys-
inu.
9. september
Mótmæli
vegna
Mary og
Haniye
Fjölmenn
mótmæli
voru á Aust-
urvelli vegna
brottvísun-
ar tveggja ungra
stúlkna, Mary Iserien frá Kenýa
og Haniye Maleki frá Afganistan.
Um 15 þúsund manns skrif-
uðu undir áskorun til stjórn-
valda um að snúa ákvörðuninni
við hjá Útlendingastofnun. Lagt
var fram frumvarp um að stúlk-
urnar fengju ríkisborgararétt og
var það samþykkt á lokadögum
þingsins.
14. september
Ungir sjálfstæðismenn
kúkuðu í ruslatunnu
Sambandsþing ungra sjálfstæðis-
manna, SUS, fór fram á Eskifirði.
Þingið komst í fréttir fyrir hat-
ramma og útsmogna baráttu for-
mannsefnanna, Ingvars Smára
Birgissonar og Ísaks Einars Rúnars-
sonar. Smalað var á þingið og ölv-
un talsverð á svæðinu. Eskfirðingar
voru ekki hrifnir af umgengni ung-
liðanna. Einn sagði: „Dæmi eru um
að kúkað hafi verið í ruslatunnu,
tómatsósu og sinnepi sprautað á
hús í bænum og einhverjir tóku
upp á því að fleyta kerlingar með
leirtauinu af barnum.“
14. september
Sigríður upplýsti
Bjarna
Sigríður Andersen dómsmálaráð-
herra sagði í kvöldfréttum Stöðv-
ar 2 að hún hefði upplýst Bjarna
Benediktsson forsætisráðherra í
lok júlí um að faðir hans, Bene-
dikt Sveinsson, hefði veitt níð-
ingnum Hjalta Sigurjóni Hauks-
syni meðmæli um uppreista æru
á síðasta ári. Sagðist hún hafa
fengið þessar upplýsingar frá
embættismönnum í ráðuneytinu
og talið rétt að láta Bjarna vita
strax í ljósi aðstæðna.
15. september
Stjórnin fallin
Ríkisstjórn Sjálfstæðis-
flokks, Viðreisnar og Bjartr-
ar framtíðar var slitið laust
eftir miðnætti aðfaranótt
15. september. Aðdrag-
andi stjórnarslitanna var
mál níðingsins Hjalta Sigur-
jóns Haukssonar sem Benedikt
Sveinsson, faðir Bjarna Bene-
diktssonar, skrifaði umsögn um
uppreista æru fyrir. Stjórn Bjartr-
ar framtíðar taldi að um trúnað-
arbrest hafi verið að ræða þegar
samstarfsflokkum Sjálfstæð-
isflokksins hafi ekki verið til-
kynnt strax um að Benedikt hefði
skrifað undir. Ríkisstjórninni
var slitið eftir rafræna kosningu
stjórnarmanna.
18. september
Kjördagur ákveðinn
Guðni Th. Jóhannesson, for-
seti Íslands, féllst á tillögu Bjarna
Benediktssonar forsætisráðherra
um að þing yrði rofið og gengið
til alþingiskosninga 28. október,
aðeins um ári eftir síðustu kosn-
ingar. Enginn grundvöllur var til
að mynda nýja ríkisstjórn með
þeim þingheimi sem sat og settu
engir sig upp á móti nýjum kosn-
ingum. Starfsstjórn ráðherra frá-
farandi ríkisstjórnar sat fram að
kosningum.
21. september
Lettnesk kona
myrt á Hagamel
Sanita Brauna, 44 ára þriggja
barna móðir, var myrt á
hrottafenginn hátt á heimili sínu
á Hagamel. Sanita sem var frá
Lettlandi hafði búið hér á landi í
tvö ár. Khaled Cairo, meintur ger-
andi og hælisleitandi frá Jemen,
var handtekinn á staðnum ásamt
íslenskum manni sem var fljót-
lega sleppt. Khaled mun hafa átt
í samskiptum við Sanitu á netinu
og orðið ósáttur þegar hún sýndi
honum ekki áhuga. Barði hann
hana ítrekað með glerflöskum
og slökkvitæki og herti að hálsi
hennar. Var hann ákærður fyrir
verknaðinn 18. desember.
24. september
Sigmundur Davíð
hættir í Framsóknar-
flokknum
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson, fyrr-
verandi forsætisráð-
herra og formaður
Framsóknarflokks-
ins, sagði sig úr
flokknum eftir það
sem hann kallaði að-
för flokkseigendafélagsins.
Eftir að Sigmundur tapaði naum-
lega í formannsslag fyrir Sigurði
Inga Jóhannssyni hafði staða
hans verið mjög óljós í langan
tíma. Í aðdraganda kosninganna
vildi Þórunn Egilsdóttir fella hann
af stóli oddvita Norðausturkjör-
dæmis og þá lét hann til skarar
skríða. Fleiri sögðu sig úr Fram-
sóknarflokknum, þar á meðal
Gunnar Bragi Sveinsson, fyrrver-
andi utanríkisráðherra, og stofn-
uðu Miðflokkinn.
28. september
Logi með verð-
mætasta typpið
Logi Már Einarsson
brást keikur við
því að teiknað-
ar nektarmynd-
ir af honum
væru í dreifingu á
netinu. Myndirn-
ar eru frá mennta-
skólaárum Loga
þegar hann vann sér inn
vasapening hjá föður sínum sem
var myndlistarkennari. Dagskrár-
gerðarfólk á Útvarpi Sögu vildi
hæða Loga fyrir þetta en hann
sagðist feginn að þær væru frá
þeim tíma þegar hann var 18 ára.
Mögulega væru þetta teikningar
eftir þekkta listamenn. Sagði
hann: „Það er því mögulegt að ég
sé með verðmætasta typpið á Al-
þingi.“
29. september
Thomas Olsen
í 19 ára fangelsi
Thomas Möller Olsen var dæmdur
í Héraðsdómi Reykjaness til 19 ára
fangelsisvistar fyrir morðið á Birnu
Brjánsdóttur og stórfellt fíkniefna-
brot. Um 20 kíló af hassi fund-
ust um borð í Polar Nanoq
sem hann játaði að hafa
í vörslu sinni. Kol-
brún Benediktsdóttir,
saksóknari í málinu,
hafði farið fram á 18
ára dóm og var hann
því þyngri en búist
var við. Dómarar tóku
það til greina að hann hafi
reynt að koma sök á félaga sinn
í vitnaleiðslum. Málið verður vænt-
anlega eitt af þeim allra fyrstu sem
koma fyrir nýstofnaðan Landsrétt.
Október
3. október
Sigmundur segist ætla
í mál við fjölmiðla
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson,
formaður Miðflokksins, sagðist
ætla að höfða mál gegn þrem-
ur fjölmiðlum vegna umfjöllunar
þeirra á fjármálum hans og eig-
inkonu hans, Önnu Sigurlaugar
Pálsdóttur, í tengslum við Wintr-
is-málið svokallaða. Kom hann
með þessa yfirlýsingu eftir að
úrskurður yfirskattanefnd-
ar lá fyrir um hans
mál. Í grein Sigmund-
ar, sem bar yfirskrift-
ina „Málalok“, segist
hann fagna úrskurðin-
um sem staðfesti það
sem hann hafi áður
sagt um greiðslu skatta.
Ekki gaf hann upp hvaða fjöl-
miðla hann myndi lögsækja en
vildu margir meina að Sigmund-
ur beindi spjótum sínum gegn
Kjarnanum og Stundinni.
3. október
Hestur Miðflokksins
vekur athygli
Merki hins nýstofnaða Mið-
flokks var kynnt og mátti þar sjá
hvítt, prjónandi hross með norð-
urljósin í bakgrunni. Óhætt er
að segja að ekkert annað merki
stjórnmálaflokks hafi fengið við-
líkt umtal og um fátt annað var
rætt næstu daga. Sumir hentu
gaman að merkinu á meðan aðr-
ir voru hrifnir. Reynt var að ráða
í merkingu þess og rætt var um
hvort það væri stolið. Sumir vildu
meina að hrossið sjálft væri alls
ekki íslenskt heldur arabískt.
4. október
Vinstri grænir í
hæstu hæðum
Skoðanakannanir fyrir þingkosn-
ingarnar í október voru flestar
allar á einn veg. Samkvæmt þeim
myndu Vinstri grænir verða óum-
deildir sigurvegarar kosning-
anna og næstum tvöfalda þing-
styrk sinn. Í könnun 4. október