Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2017, Side 26
26 Áramótablað 29. desember 2017fréttir - innlendur fréttaannáll
25. nóvember
Björt formaður Bjartr-
ar framtíðar
Björt Ólafsdóttir var kjörin for-
maður Bjartrar framtíðar, en
hún tók við embættinu af Óttari
Proppé. Björt framtíð beið afhroð
í kosningunum í haust og náði
ekki manni á þing.
28. nóvember
Gylfi Ægisson
heimilislaus
DV greindi frá því
að tónlistarmað-
urinn Gylfi Ægis-
son væri heimilis-
laus og byggi í húsbíl
í Laugardalnum.
Þegar DV ræddi við
hann hafði hann gist þar
í tvær nætur. „Ég er hérna
í Moby-Dick bílnum mínum og
í nótt, ég ligg hérna við glugga,
þá var koddinn hálf frosinn. Það
lá við að ég þyrfti að rífa hann af
hárinu,“ sagði Gylfi.
Desember
3. desember
Fyrrverandi borgar-
stjóri greinir frá hót-
unum um nauðganir
Steinunn Valdís Óskarsdóttir,
fyrrverandi borgarstjóri og þing-
maður Samfylkingarinnar, kom
fram í þættinum Silfrinu á RÚV
og lýsti því hvernig henni hafði
verið hótað kynferðislegu ofbeldi
vegna starfa hennar sem stjórn-
málamanns. Steinunn Valdís þáði
milljóna styrki frá fyrirtækjum í
aðdraganda prófkjörs og var mót-
mælt fyrir framan heimili hennar
vegna þessa árið 2010. Steinunn
sagði af sér þingmennsku vegna
mótmælanna. Farið var að heim-
ilum fleiri stjórnmálamanna, til
dæmis Guðlaugs Þórs Þórðarson-
ar, Bjarna Benediktssonar og Þor-
gerðar Katrínar Gunnarsdóttur.
3. desember
Manndráp á
Austurvelli
Tvítugur Albani, Klev-
is Sula, var stunginn
á Austurvelli ásamt
félaga sínum. Sula
fékk mörg stungu-
sár, þar á meðal í
hjartastað, og lést
hann 8. desember.
Dagur Hoe Sigurjóns-
son, 24 ára, var grunað-
ur um verknaðinn en hann
flúði af vettvangi. Var hann hand-
tekinn á heimili ömmu sinnar
og afa í Garðabæ skömmu síðar
undir áhrifum vímuefna. Dag-
ur hafði orðið fyrir alvarlegri lík-
amsárás af hópi albanskra manna
nokkrum vikum áður.
6. desember
Fordæmalausar vin-
sældir nýrrar stjórnar
Ný ríkisstjórn Vinstri grænna,
Sjálfstæðisflokks og Framsóknar-
flokks mældist með 78 prósenta
stuðning í könnun Fréttablaðsins.
Vakti þetta sérstaka athygli í ljósi
þess að samanlagt fylgi flokk-
anna mældist aðeins rúmlega 60
prósent. Björn Valur Gíslason,
fyrrverandi varaformaður Vinstri
grænna og einn heitasti stuðn-
ingsmaður stjórnarinnar, sagði
í samtali við Eyjuna að ástæðan
fyrir þessum miklu vinsældum
væri vandvirkni í gerð stjórnar-
sáttmálans og samráð við hags-
munaaðila.
8. desember
Hallbjörn slapp við fang-
elsi en barnabarnið ekki
Kántríkóngurinn Hallbjörn Hjart-
arson hlaut þriggja ára fangels-
isdóm árið 2015 fyrir að misnota
að minnsta kosti tvo drengi, þar
á meðal hans eigið barnabarn.
Misnotkunin stóð yfir í nokkur ár
og þegar minningarnar hvolfd-
ust yfir drenginn á fullorðinsárum
beitti hann afa sinn ofbeldi ásamt
öðru fórnarlambi eitt örlagaríkt
kvöld. DV greindi frá því að Hall-
björn, sem er 82 ára gamall, hafi
aldrei setið inni fyrir glæpi sína.
Ástæðan var sögð sú að ekki væri
hægt að ætlast til þess að fanga-
verðir sinntu aðhlynningu gam-
almenna og fór afplánunin því
fram á hjúkrunarheimili. Þeir sem
beittu Hallbjörn ofbeldi fengu
hins vegar 18 mánaða dóm og
sátu hluta af honum inni.
17. desember
Verkfall flugvirkja
Klukkan sex um morguninn skall
á verkfall flugvirkja hjá Icelanda-
ir eftir árangurslausar samninga-
umleitanir fram á rauða nótt með
ríkissáttasemjara. Hafði þetta
strax áhrif og var flugi félagsins
annaðhvort seinkað eða fellt nið-
ur. Verkfallið stóð yfir í tæpa tvo
sólarhringa en skrifað var undir
samninga klukkan fjögur aðfara-
nótt 19. desember og var því þá
frestað í fjórar vikur. Samanlagt
hafði verkfallið áhrif á um 20 þús-
und flugfarþega.
18. desember
Fimm handteknir
í umsvifamiklu
fíkniefnamáli
Lögreglan tilkynnti á blaða-
mannafundi að fimm menn
hefðu verið handteknir
hér á Íslandi í tengsl-
um við umsvifamik-
ið fíkniefnamál
sem teygði anga
sína til Póllands
og Hollands.
Meðal þeirra sem
sátu fyrir svörum
voru Kamil Bracha,
rannsóknarlögreglu-
stjóri Póllands, og Zoltan
Nagy, fulltrúi Europol. Rann-
sóknin sneri að innflutningi am-
fetamíns og MDMA sem var ætl-
að til sölu hérlendis. Einnig sneri
málið að fjársvikum og peninga-
þvætti. Gerðar voru húsleitir í
verslunum Euro Market og lagt
hald á eignir. Allir þeir sem hand-
teknir voru eru Pólverjar búsettir
hér á landi.
19. desember
Biskup fær mikla
launahækkun
Kjararáð birti úrskurð sinn um
kjör biskups Íslands og voru laun-
in hækkuð um 21 prósent, upp
í rúmlega eina og hálfa millj-
ón króna. Ákveðið var að hækk-
unin yrði afturvirk frá 1. janúar
síðastliðnum og fær Agnes Sig-
urðardóttir því 3,3 milljóna króna
eingreiðslu frá ríkinu. Sjálf sendi
Agnes kjararáði bréf haustið 2015
þar sem hún bað um að kjör bisk-
ups yrðu endurmetin. Eftir að
úrskurðurinn lá fyrir sagðist hún
ekki tjá sig efnislega um hann.
Búist er við því að laun presta og
prófasta muni hækka umtalsvert í
kjölfarið.
19. desember
Atli Rafn rekinn úr
Borgarleikhúsinu
Leikaranum Atla Raf-
ni Sigurðarsyni var sagt
upp störfum hjá Borg-
arleikhúsinu aðeins
viku fyrir frumsýn-
ingu verksins Medea,
að sögn vegna ásakana
um kynferðislega áreitni
í kjölfar #metoo byltingar-
innar. Atli Rafn gaf út yfir-
lýsingu þar sem hann harmaði
að nafnlausar ábendingar hafi
valdið brottrekstrinum og að
honum hefði ekki verið tjáð hvers
eðlis þær væru. Kristín Eysteins-
dóttir leikhússtjóri sagði hins
vegar að brottreksturinn kæmi
vegna beinna tilkynninga annars
starfsfólks.
21. desember
Tveir Stefánar
stíga til hliðar
Stefán Hallur Stefánsson leikari
steig til hliðar úr starfi sínu sem
stundakennari við Listaháskóla
Íslands vegna ásakana um kyn-
ferðislega áreitni í tengslum við
#metoo. Sama dag var tilkynnt að
Stefán Jónsson, fagstjóri sviðs-
listadeildar, myndi stíga til hliðar
úr vissum verkefnum og láta af
störfum næsta sumar. Kom það
eftir að Birna Rún Eiríksdóttir,
leikkona lýsti því hvernig Stefán
talaði til sín og vildi að hún sýndi
hold í leiksýningum.