Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2017, Page 39

Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2017, Page 39
umræða 39Áramótablað 29. desember 2017 Passamyndir Einars Más og sumardvöl nafna í Færeyjum Færeyjar, Bretland, Frakkland Ég varð furðu góður í að tala fær- eysku á þessum tveimur sumr- um, þótt ég sé til allrar skammar að mestu búinn að týna henni aft- ur niður. Það dugði reyndar ekkert annað en að reyna að ná málinu þegar ég var háseti á færeyskum útilegubát, ef maður ætlaði ekki að vera gersamlega utanveltu í áhöfninni. Þegar við nafnar vorum að kveðja eyjarnar þarna í ágúst- mánuði 1978 biðum við í Þórs- höfn eftir að ferjan Smyrill legði úr höfn áleiðis til Skotlands, en þang- að var ferð okkar heitið fyrst um sinn. Ég var að kjafta við einhver færeysk ungmenni á veitingastað í „Havninni“ og þau höfðu orð á því að þótt ég talaði rétta fær- eysku þá væri hún samt lituð af hreim; spurðu hvaðan ég væri. Ég sagðist vera frá Klakksvík, við töl- uðum bara svona þarna á norð- ureyjunum. Tilfellið er að það er töluverður mállýskumunur á milli staðanna; ef Klakksvíkingar tala um beinustu leið – beina veginn – þá bera Klakksvíkingar það fram „bojna veginn“ en í Þórshöfn er sagt „bæna veginn“. Ekki held ég samt að ungmennin sem ég var að tala við hafi fyllilega keypt þessa skýringu mína. En semsé, við Einar héldum af stað þarna um kvöldið siglandi til Skotlands, fórum þaðan á putt- anum suður allar Bretlandseyjar og alla leið til Dover, þaðan sem við sigldum til Frakklands, og eft- ir þvæling um það land þvert og endilangt komum við loksins heim eftir tæplega hálfs árs úthald. Um ævintýri okkar má semsé lesa í bókinni minni Hvar frómur flæk- ist og vilji menn vita hvað á daga Einars Más dreif sumarið eftir, þá má mæla með nýju bókinni hans, Passamyndir. n Það besta og versta í samfélaginu árið 2017 M eToo-byltingin, stöð- ugt efnahagsástand og gróska í íslensku menn- ingarlífi er það sem álits- gjafar DV nefna þegar þeir eru beðnir um að lýsa því besta í ís- lensku samfélagi árið 2017. Morð, ákvarðanir kjararáðs um launa- hækkanir, gróðafíkn og aukin ítök stórfyrirtækja eru meðal þess versta. DV leitaði til nokkurra álitsgjafa og fékk þá til að lýsa því besta og versta sem einkenndi samfélagið á árinu sem er að líða. Álitsgjafar DV segja frá því sem stóð upp úr á árinu 2017 að þeirra mati Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri á Útvarpi Sögu Það besta: Það sem var best fyrir samfélagið í heild var að verðbólgan hélst niðri á árinu og stöð- ugleiki var á skuldastöðu fólks og fyrirtækja. Ferðamönnum heldur áfram að fjölga og krónan hefur ekki verið að veikjast mikið. Þetta eru utanaðkomandi áhrif sem hafa þessi góðu áhrif á efnahagslífið. Það versta: Ákvörðun kjararáðs að stórhækka laun alþingismanna, eða um 45%, og æðstu emb- ættismanna landsins var eitt af því versta sem gerðist á árinu. Þessi ákvörðun hleypir óánægju af stað í þjóðfélaginu og margir upplifa þetta sem verulega mismunun á milli þegnanna. Það er til skammar að ríkisstjórnin sjái ekki ástæðu til að bæta kjör þeirra sem verst standa á sama tíma og þetta gerist. Það virðast vera til peningar þegar um „gæluverkefni“ er að ræða og menn hika ekki við að setja inn í fjáraukalög ótrúlegustu kostnaðarliði. Kjarasamningar eru lausir á næstunni og þarna skapast viðmið sem atvinnulífið á erfitt með að standa undir með tilliti til þess að skattaálögur á fyrirtæki eru enn háar og gætu leitt til uppsagna í atvinnulífinu í stórum stíl. Að auki gætu þessar ákvarðanir skapað hættu á aukinni verðbólgu. Hilda Jana Gísladóttir, sjónvarpsstjóri á N4 Það besta: Sem móðir þriggja stúlkna, ekki síður en sem kona, eiginkona og vinkona, þá tel ég að #metoo-byltingin sé stórkostlegt framlag og geti, ef við veljum það, orðið til aukinna mannréttinda, a.m.k. í hinum vestræna heimi. Ég vona að okkur, bæði körlum og konum samstiga, öðlist að sjá hvað það er sem byltingin er að segja okkur og hvernig við getum bætt samskipti okkar þannig að hún hafi jákvæð áhrif á sem flesta, til lengri tíma litið. Það versta: Þegar Donald Trump var vígður í embætti forseta Bandaríkjanna og bætist þar með í vafasaman hóp valdamestu manna heims. Ég skil ekki hvernig hann, Vladimir Pútín, Kim Jong-un, Bashar al-Assad og Xi Jinping, svo einhverjir séu nefndir, séu menn sem við sem mannkyn sættum okkur við að hafi jafn mikil völd og raun ber vitni. Þá er auðvitað staða Róhingja mér ofarlega í huga enda er hún alveg hryllilega sorgleg. Egill Helgason fjölmiðlamaður Það besta: Mér dettur fyrst í hug látlaus gróska í íslensku menningarlífi. Bókmenntum, tónlist, leikhúsi, kvikmyndum. Ég nefni dæmi úr tveimur fyrstu greinunum, ég hef mestan áhuga á þeim. Ég hef haldið því fram að í bókmenntunum séum við að lifa gullöld. Það er ekki síst vegna þess að íslenskir höfundar eru núorðið þýddir á fjölmörg tungu- mál, einangrunin hefur verið rofin, lesendahópurinn hefur stækkað og um leið hafa höfundarnir okkar orðið djarfari í efnistökum. Sumir af stóru eldri höfundunum gáfu ekki út bækur á þessu ári, en í staðinn fáum við bækur eftir ungt fólk sem margar lofa afar góðu. Víkingur Heiðar Ólafsson á eina af vinsælustu klassísku plötunum í heiminum á þessu ári, hljóðritanir á verkum Philips Glass, hann er heimspíanisti. Það er haldin íslensk tónlistarhátíð í tengslum við Los Angeles Philharmonic í Disney Hall í LA. Þar er fremstur í flokki tónskáldið Daníel Bjarnason. Verk eftir Önnu Þorvaldsdóttur eru flutt víða um heim. Hljómsveitin Kaleo er heimsfræg og túrar með Rolling Stones. Það er líka mikil gróska í djassinum, hann mætti fá meiri athygli. Músíklífið byggir á gríðarlega góðu starfi sem er unnið í tónlistarskólum landsins. Það versta: Það sem mér er efst í huga þegar spurt er hvað sé verst á árinu er síaukin völd stór- fyrirtækja í heimi upplýsinga- og nettækni. Áhrif Google, Facebook og Amazon eru fordæmalaus. En það er eins og ekki megi hrófla við þessum fyrirtækjum – þá virkar það eins og maður sé á móti framtíðinni. Við lifum á tíma blindrar tæknihyggju, við látum tæknina stjórna því hvert við förum í stað þess að reyna að stjórna því sjálf hvert tæknin leiðir okkur. Við erum að færast inn á svið gervigreindar. Mannshöndin verður óþörf við ýmis störf og mannshugurinn líka. Fjöldi fólks tapar vinnunni, verður jafnvel utanveltu í samfélögunum, en gróðinn safnast á sífellt færri hendur án þess að við höfum nokkra hugmynd um hvernig við ætlum að deila honum réttlátlegar eða nokkur áform þar um. Stóru fyrirtækin safna sífellt meiri upplýsingum um einstaklingana sem veldur því að erfiðara verður að keppa við þau eða hrinda þeim af stallinum. Við sjáum út um allt misnotkun þessara upplýsinga, hún á bara eftir að færast í aukana. Falskar fréttir og markauglýsingar eru bara byrjunin. Á sama tíma mega hefðbundnir fjölmiðlar – sem eru nauðsynlegir fyrir siðuð og heilbrigð samfélög – sín einskis gagnvart netrisunum. Þeir stjórna aðganginum. Illu heilli er það gróðafíknin ein sem knýr stórfyrirtækin áfram, viljinn til að stækka sífellt og öðlast meiri völd. Það er helst að Evrópusambandið skynji hættuna og reyni að koma böndum á risana, en það virðist því miður vera vonlítið verk. Menn hefðu þurft að vakna fyrir alllöngu og byrja að brjóta upp þessi fyrirtæki, líkt og Roosevelt gerði með auðhringana í upphafi tuttugustu aldar. Máni Pétursson, útvarpsmaður á X-inu 977 Það besta: Það besta á árinu er klárlega metoo- byltingin. Menn sjá það kannski ekki strax en komandi kynslóðir munu sjá það og upplifa. Auðvitað er hægt að setja út á eitthvað í þessari byltingu eins og öllum byltingum á undan þessari. En á endanum færir þetta okkur nær einhverju sem getur talist eðlileg samskipti á milli kynja. Þess vegna á ég erfitt með að sjá nokkuð ann- að en bara góða hluti við þetta. Það er líka gott við þetta ár að Katrín Jakobsdóttir er orðin forsætisráðherra. Þótt ég hefði frekar kosið að hún væri í betri félagsskap þá er ég nokkuð bjartsýnn á að ríkisstjórn undir forystu hennar geti látið gott af sér leiða. Það versta: Versta á árinu eru samfélagsmiðlar og sú ógnvænlega þróun sem þar á sér stað. Fólk virðist upptekið af því að skapa sér eitthvað annað sjálf sem oft og tíðum segir ósatt og er óhugnanlegt í nafni einhvers réttlætis. Raunverulegum mannréttindum og góð- mennsku verður ekki komið á með því að hliðra til sannleikanum eða heimta ritskoðun á list eða skoðanir fólks. Fólk er alls konar og fólk á að fá að vera alls konar. Þessir sýndar-dyggðar-statusar verða að fara hætta. Það er fátt sem göfgar manninn eins mikið og að gera góðverk. Að þurfa að tilkynna öllu samfélaginu að þú sért að láta gott af þér leiða eða sért með réttu skoðunina á einhverju máli er ekkert annað en rúnk fyrir eigið egó. Það getur vel verið að einhver kaupi þetta kjaftæði en ef það er eitthvað sem mannkynssagan hefur kennt okkur er það að fólkið sem lætur hæst um eigið ágæti er ekkert sérstaklega vandað fólk. Björn Valur Gíslason, fyrrv. þingmaður Það besta: MeToo er þó án vafa það besta sem gerðist á árinu þótt áhrif þess séu langt frá því komin í ljós að fullu. Það má svo nefna að karlalands- liðið í fótbolta komst í fyrsta sinn á HM í fótbolta, Katrín Jakobsdóttir myndaði nýja ríkisstjórn sem nýtur mikils trausts landsmanna og allur almenningur virðist sáttari við hlutskipti sitt en áður. Það versta: Fjögur morð það sem af er ári og opinberun á ótrúlegu ofbeldi gegn konum í tengslum við MeToo og hliðarverkanir þess eru án vafa það versta sem kom upp í þjóðfélags- málunum á árinu 2017. Það bliknar allt annað í samanburði við það. Ris og fall ríkisstjórna, kjólamál ráð- herra og kosningabaráttan í haust fyllir síðan í aðrar lægðir ársins sem voru þó óvenju fáar og grunnar miðað við undanfarin ár. Það var fátt sem reis ofar öðru á árinu.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.