Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2017, Qupperneq 39
umræða 39Áramótablað 29. desember 2017
Passamyndir Einars Más og
sumardvöl nafna í Færeyjum
Færeyjar, Bretland, Frakkland
Ég varð furðu góður í að tala fær-
eysku á þessum tveimur sumr-
um, þótt ég sé til allrar skammar
að mestu búinn að týna henni aft-
ur niður. Það dugði reyndar ekkert
annað en að reyna að ná málinu
þegar ég var háseti á færeyskum
útilegubát, ef maður ætlaði ekki
að vera gersamlega utanveltu í
áhöfninni. Þegar við nafnar vorum
að kveðja eyjarnar þarna í ágúst-
mánuði 1978 biðum við í Þórs-
höfn eftir að ferjan Smyrill legði úr
höfn áleiðis til Skotlands, en þang-
að var ferð okkar heitið fyrst um
sinn. Ég var að kjafta við einhver
færeysk ungmenni á veitingastað
í „Havninni“ og þau höfðu orð
á því að þótt ég talaði rétta fær-
eysku þá væri hún samt lituð af
hreim; spurðu hvaðan ég væri. Ég
sagðist vera frá Klakksvík, við töl-
uðum bara svona þarna á norð-
ureyjunum. Tilfellið er að það er
töluverður mállýskumunur á milli
staðanna; ef Klakksvíkingar tala
um beinustu leið – beina veginn
– þá bera Klakksvíkingar það fram
„bojna veginn“ en í Þórshöfn er
sagt „bæna veginn“. Ekki held ég
samt að ungmennin sem ég var að
tala við hafi fyllilega keypt þessa
skýringu mína.
En semsé, við Einar héldum af
stað þarna um kvöldið siglandi til
Skotlands, fórum þaðan á putt-
anum suður allar Bretlandseyjar
og alla leið til Dover, þaðan sem
við sigldum til Frakklands, og eft-
ir þvæling um það land þvert og
endilangt komum við loksins
heim eftir tæplega hálfs árs úthald.
Um ævintýri okkar má semsé lesa
í bókinni minni Hvar frómur flæk-
ist og vilji menn vita hvað á daga
Einars Más dreif sumarið eftir, þá
má mæla með nýju bókinni hans,
Passamyndir. n
Það besta og versta í
samfélaginu árið 2017
M
eToo-byltingin, stöð-
ugt efnahagsástand og
gróska í íslensku menn-
ingarlífi er það sem álits-
gjafar DV nefna þegar þeir eru
beðnir um að lýsa því besta í ís-
lensku samfélagi árið 2017. Morð,
ákvarðanir kjararáðs um launa-
hækkanir, gróðafíkn og aukin
ítök stórfyrirtækja eru meðal þess
versta. DV leitaði til nokkurra
álitsgjafa og fékk þá til að lýsa því
besta og versta sem einkenndi
samfélagið á árinu sem er að líða.
Álitsgjafar DV segja frá því sem stóð upp úr á árinu 2017 að þeirra mati
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri á
Útvarpi Sögu
Það besta:
Það sem var best fyrir samfélagið í heild var að verðbólgan hélst niðri á árinu og stöð-
ugleiki var á skuldastöðu fólks og fyrirtækja. Ferðamönnum heldur áfram að fjölga og
krónan hefur ekki verið að veikjast mikið. Þetta eru utanaðkomandi áhrif sem hafa þessi
góðu áhrif á efnahagslífið.
Það versta:
Ákvörðun kjararáðs að stórhækka laun alþingismanna, eða um 45%, og æðstu emb-
ættismanna landsins var eitt af því versta sem gerðist á árinu. Þessi ákvörðun hleypir
óánægju af stað í þjóðfélaginu og margir upplifa þetta sem verulega mismunun á milli
þegnanna. Það er til skammar að ríkisstjórnin sjái ekki ástæðu til að bæta kjör þeirra
sem verst standa á sama tíma og þetta gerist. Það virðast vera til peningar þegar um
„gæluverkefni“ er að ræða og menn hika ekki við að setja inn í fjáraukalög ótrúlegustu
kostnaðarliði. Kjarasamningar eru lausir á næstunni og þarna skapast viðmið sem
atvinnulífið á erfitt með að standa undir með tilliti til þess að skattaálögur á fyrirtæki
eru enn háar og gætu leitt til uppsagna í atvinnulífinu í stórum stíl. Að auki gætu þessar
ákvarðanir skapað hættu á aukinni verðbólgu.
Hilda Jana Gísladóttir, sjónvarpsstjóri á N4
Það besta:
Sem móðir þriggja stúlkna, ekki síður en sem kona, eiginkona og vinkona, þá tel ég að
#metoo-byltingin sé stórkostlegt framlag og geti, ef við veljum það, orðið til aukinna
mannréttinda, a.m.k. í hinum vestræna heimi. Ég vona að okkur, bæði körlum og konum
samstiga, öðlist að sjá hvað það er sem byltingin er að segja okkur og hvernig við getum
bætt samskipti okkar þannig að hún hafi jákvæð áhrif á sem flesta, til lengri tíma litið.
Það versta:
Þegar Donald Trump var vígður í embætti forseta Bandaríkjanna og bætist þar með í
vafasaman hóp valdamestu manna heims. Ég skil ekki hvernig hann, Vladimir Pútín,
Kim Jong-un, Bashar al-Assad og Xi Jinping, svo einhverjir séu nefndir, séu menn sem við
sem mannkyn sættum okkur við að hafi jafn mikil völd og raun ber vitni. Þá er auðvitað
staða Róhingja mér ofarlega í huga enda er hún alveg hryllilega sorgleg.
Egill Helgason fjölmiðlamaður
Það besta:
Mér dettur fyrst í hug látlaus gróska í íslensku menningarlífi. Bókmenntum, tónlist,
leikhúsi, kvikmyndum. Ég nefni dæmi úr tveimur fyrstu greinunum, ég hef mestan
áhuga á þeim. Ég hef haldið því fram að í bókmenntunum séum við að lifa gullöld. Það
er ekki síst vegna þess að íslenskir höfundar eru núorðið þýddir á fjölmörg tungu-
mál, einangrunin hefur verið rofin, lesendahópurinn hefur stækkað og um leið hafa
höfundarnir okkar orðið djarfari í efnistökum. Sumir af stóru eldri höfundunum gáfu
ekki út bækur á þessu ári, en í staðinn fáum við bækur eftir ungt fólk sem margar lofa
afar góðu.
Víkingur Heiðar Ólafsson á eina af vinsælustu klassísku plötunum í heiminum á
þessu ári, hljóðritanir á verkum Philips Glass, hann er heimspíanisti. Það er haldin
íslensk tónlistarhátíð í tengslum við Los Angeles Philharmonic í Disney Hall í LA. Þar er
fremstur í flokki tónskáldið Daníel Bjarnason. Verk eftir Önnu Þorvaldsdóttur eru flutt
víða um heim. Hljómsveitin Kaleo er heimsfræg og túrar með Rolling Stones. Það er
líka mikil gróska í djassinum, hann mætti fá meiri athygli. Músíklífið byggir á gríðarlega
góðu starfi sem er unnið í tónlistarskólum landsins.
Það versta:
Það sem mér er efst í huga þegar spurt er hvað sé verst á árinu er síaukin völd stór-
fyrirtækja í heimi upplýsinga- og nettækni. Áhrif Google, Facebook og Amazon eru
fordæmalaus. En það er eins og ekki megi hrófla við þessum fyrirtækjum – þá virkar
það eins og maður sé á móti framtíðinni. Við lifum á tíma blindrar tæknihyggju, við
látum tæknina stjórna því hvert við förum í stað þess að reyna að stjórna því sjálf hvert
tæknin leiðir okkur.
Við erum að færast inn á svið gervigreindar. Mannshöndin verður óþörf við ýmis
störf og mannshugurinn líka. Fjöldi fólks tapar vinnunni, verður jafnvel utanveltu í
samfélögunum, en gróðinn safnast á sífellt færri hendur án þess að við höfum nokkra
hugmynd um hvernig við ætlum að deila honum réttlátlegar eða nokkur áform þar um.
Stóru fyrirtækin safna sífellt meiri upplýsingum um einstaklingana sem veldur því
að erfiðara verður að keppa við þau eða hrinda þeim af stallinum. Við sjáum út um allt
misnotkun þessara upplýsinga, hún á bara eftir að færast í aukana. Falskar fréttir og
markauglýsingar eru bara byrjunin. Á sama tíma mega hefðbundnir fjölmiðlar – sem
eru nauðsynlegir fyrir siðuð og heilbrigð samfélög – sín einskis gagnvart netrisunum.
Þeir stjórna aðganginum.
Illu heilli er það gróðafíknin ein sem knýr stórfyrirtækin áfram, viljinn til að stækka
sífellt og öðlast meiri völd. Það er helst að Evrópusambandið skynji hættuna og reyni
að koma böndum á risana, en það virðist því miður vera vonlítið verk. Menn hefðu þurft
að vakna fyrir alllöngu og byrja að brjóta upp þessi fyrirtæki, líkt og Roosevelt gerði
með auðhringana í upphafi tuttugustu aldar.
Máni Pétursson, útvarpsmaður á X-inu 977
Það besta:
Það besta á árinu er klárlega metoo-
byltingin. Menn sjá það kannski ekki strax
en komandi kynslóðir munu sjá það og
upplifa. Auðvitað er hægt að setja út á
eitthvað í þessari byltingu eins og öllum
byltingum á undan þessari. En á endanum
færir þetta okkur nær einhverju sem getur
talist eðlileg samskipti á milli kynja. Þess
vegna á ég erfitt með að sjá nokkuð ann-
að en bara góða hluti við þetta. Það er líka
gott við þetta ár að Katrín Jakobsdóttir er
orðin forsætisráðherra. Þótt ég hefði frekar kosið að hún væri í betri félagsskap þá er
ég nokkuð bjartsýnn á að ríkisstjórn undir forystu hennar geti látið gott af sér leiða.
Það versta:
Versta á árinu eru samfélagsmiðlar og sú ógnvænlega þróun sem þar á sér stað. Fólk
virðist upptekið af því að skapa sér eitthvað annað sjálf sem oft og tíðum segir ósatt
og er óhugnanlegt í nafni einhvers réttlætis. Raunverulegum mannréttindum og góð-
mennsku verður ekki komið á með því að hliðra til sannleikanum eða heimta ritskoðun
á list eða skoðanir fólks. Fólk er alls konar og fólk á að fá að vera alls konar. Þessir
sýndar-dyggðar-statusar verða að fara hætta. Það er fátt sem göfgar manninn eins
mikið og að gera góðverk. Að þurfa að tilkynna öllu samfélaginu að þú sért að láta gott
af þér leiða eða sért með réttu skoðunina á einhverju máli er ekkert annað en rúnk fyrir
eigið egó. Það getur vel verið að einhver kaupi þetta kjaftæði en ef það er eitthvað sem
mannkynssagan hefur kennt okkur er það að fólkið sem lætur hæst um eigið ágæti er
ekkert sérstaklega vandað fólk.
Björn Valur
Gíslason,
fyrrv. þingmaður
Það besta:
MeToo er þó án vafa það besta sem
gerðist á árinu þótt áhrif þess séu
langt frá því komin í ljós að fullu.
Það má svo nefna að karlalands-
liðið í fótbolta komst í fyrsta sinn á
HM í fótbolta, Katrín Jakobsdóttir
myndaði nýja ríkisstjórn sem nýtur
mikils trausts landsmanna og allur
almenningur virðist sáttari við
hlutskipti sitt en áður.
Það versta:
Fjögur morð það sem af er ári og
opinberun á ótrúlegu ofbeldi gegn
konum í tengslum við MeToo og
hliðarverkanir þess eru án vafa það
versta sem kom upp í þjóðfélags-
málunum á árinu 2017. Það bliknar
allt annað í samanburði við það. Ris
og fall ríkisstjórna, kjólamál ráð-
herra og kosningabaráttan í haust
fyllir síðan í aðrar lægðir ársins sem
voru þó óvenju fáar og grunnar
miðað við undanfarin ár. Það var
fátt sem reis ofar öðru á árinu.