Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2017, Page 40
40 umræða Áramótablað 29. desember 2017
Eftirminnileg ummæli sem féllu á árinu
„Nú bíð ég bara
eftir að einhver
kenni mér að loka þess-
um fjanda.
n Brynjar Níelsson, þingmað-
ur Sjálfstæðisflokksins, tók þá
ákvörðun að hætta á Facebook
eftir kosningar í haust. Skrafað
var um það að Brynjar hafi ver-
ið beðinn um að hætta vegna
óheflaðra skoðana sem hann
lét gjarnan falla á Facebook.
Sjálfur sagðist Brynjar hætta af
heilsufarsástæðum.„Vond tilfinning að
hafa verið lélegt
foreldri.
n Kári Stefáns-
son, forstjóri Ís-
lenskrar erfða-
greiningar, talaði
tæpitungulaust
þegar hann viður-
kenndi að hafa verið lélegt for-
eldri þegar hann var ungur.
„Maðurinn var
elskulegur og
bauð mér bílstjórann
sinn því hann veit að ég
er ekki með bílpróf.
n Það vakti athygli þegar Inga
Sæland, formaður Flokks fólks-
ins, og Sigmundur Davíð Gunn-
laugsson, formaður Miðflokksins,
komu saman til fundar við forseta
eftir kosningarnar í haust. Var
jafnvel talið að með því að koma
saman væru þau að senda skýr
skilaboð um viljann til myndunar
kosningabandalags. Inga sagði þó
að Sigmundur hefði einfaldlega
boðið henni far.„Þetta er reynd-
ar kjóll og dáldið
stuttur í þokkabót.
n Fjölmiðlamaðurinn Ei-
ríkur Jónsson vakti athygli á
brjóstaskoru Kolbrúnar Bene-
diktsdóttur varahéraðssak-
sóknara í dómsal í sumar. Lét Ei-
ríkur að því liggja að Kolbrún væri
djörf að mæta í svo flegnum bol
í dómsal. Sjálf sagði Kolbrún að
um kjól væri að ræða.
„Hugur Græn-
lendinga er með
ykkur í dag.
n Vittus Qujaukitsoq, utan-
ríkisráðherra Grænlands, sendi
Guðlaugi Þór Þórðarsyni utanrík-
isráðherra bréf eftir að lögregla
tilkynnti að Birna Brjánsdóttir
hefði fundist látin.„Ég er bara eins og
aðrir Íslendingar,
held ég, að þegar kyn-
ferðisafbrot eru annars
vegar þá vill maður helst
að brotamaðurinn sé
læstur inni og lyklinum
hent.
n Guðni Th. Jó-
hannesson,
forseti Íslands,
um mál Róberts
Downey í sumar.„Ég er að horfast
í augu við að ég
á við skapgerðarvanda-
mál að stríða og hef leit-
að mér aðstoðar í þeim
efnum.
n Leikarinn og vöðvafjallið Haf-
þór Júlíus Björnsson steig fram
eftir að hafa verið
ásakaður um of-
beldi gegn fyrr-
verandi kærust-
um sínum.
„Fólk á bara að láta
manninn í friði.
n Jón Steinar Gunnlaugsson,
fyrrverandi hæstaréttardómari, í
viðtali við Eyjuna um málefni Ró-
berts Downey.„Ég sagði til dæm-
is að ef ekkert yrði
gert fyrir þetta fólk þá
væri ég tilbúinn að fórna
lífi mínu fyrir framan Al-
þingishúsið. Ég sagði það
og meinti það. Bara fyrir-
fara mér fyrir framan Al-
þingishúsið í mótmæla-
skyni.
n Gylfi Ægisson tónlistarmað-
ur í viðtali við DV um
stöðu húsnæðis-
mála á Íslandi.
Sjálfur hefur
Gylfi búið í hús-
bíl í Laugardaln-
um að undanförnu.
„Skal ég láta
orðsveðju hvína
yfir stjórnarmönnum.
Ársins 2017 verður ef til vill minnst sem árs óstöðugleika á sviði stjórnmála, efna-
hagsuppgangs en einnig ársins þar sem konur hættu að láta karla vaða yfir sig á
skítugum skónum. Það hafa því verið ýmis tilefni fyrir þjóðþekkta einstaklinga til
að tjá sig í ræðu og riti um málefni líðandi stundar. Mörg eftirminnileg ummæli
féllu á árinu; jákvæð, neikvæð og sum kannski eilítið kjánaleg. Hvað sem því líður
hefur DV tekið saman eftirminnilegustu ummæli ársins og er af nógu að taka.
Þeir hvöttu til
nauðgana á
mér.
n Steinunn
Valdís Ósk-
arsdóttir,
fyrrverandi
þingmaður
og borgarstjóri,
gerði upp áreiti
sem hún varð fyrir eftir hrun.
Hópur fólks safnaðist saman
fyrir utan heimili hennar svo
vikum skipti, sagði hún að
þjóðþekktir nafngreindir menn
hafi hvatt aðra menn til að fara
heim til hennar og nauðga
henni.
Hvað er það oft
sem við erum
með tíu þúsund kall í
vasanum? Það er nán-
ast aldrei.
n Benedikt
Jóhannesson,
þáverandi
fjármálaráð-
herra, vildi
taka fimm og tíu
þúsund króna seðla úr umferð.
Hugmynd Benedikts féll í grýtt-
an jarðveg víða.
Ég var í ofbeldissambandi við fyrrum vinnu-
staðinn minn, Stígamót.
n Helga Baldvinsdóttir Bjargardóttir, fyrrverandi
framkvæmdastjóri Samtakanna 78, sagðist hafa
orðið fyrir andlegu ofbeldi og einelti af hálfu yfir-
manna Stígamóta meðan hún starfaði þar.
Þá erum við
að leita að
pókemon
n Vigfús Jóhannesson var
sakaður um að elta fyrrver-
andi bocchia-liðsmenn á Lödu
Sport.