Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2017, Blaðsíða 42
42 Áramótablað 29. desember 2017Völvuspáin 2017
Eldgos og
jarðskjálftar
Völvan segir að náttúruöflin
muni minna rækilega á sig á ár-
inu. Eldgos verður á Suðurlandi
sem valda mun nokkru eigna-
tjóni. Þessi eldsumbrot tengjast
Kötlueldstöðinni og vatn mun
flæða frá Mýrdalsjökli.
Umbrotin verða þó
á óvæntum stað
og flóðin verða
ekki eins og
vísindamenn
hafa gert sér
í hugarlund.
Byggð í sveit-
um er þó í mik-
illi hættu og víst
er að einhverjir
þurfa að flýja heimili
sín fyrirvaralaust. Flug-
umferð mun leggjast af um tíma
og íslenska og erlenda pressan
fylgjast vel með. Björgunarsveitir
landsins standa vaktina svo eftir
verður tekið.
Öræfajökull heldur áfram að
byggja sig upp fyrir næsta gos,
þótt ekki sé líklegt að það verði
alveg á næstunni. Kröftugur
jarðskjálfti verður í grennd við
Tröllaskaga og vekur ótta á Akur-
eyri og nágrenni. Eignatjón
verður þó ekki mik-
ið. Völvan segir að
nokkuð verði um
jarðhræringar á
næstu árum en ít-
rekar að fólk verði
að halda ró sinni.
Farsælt
fyrsta ár
Völvan segir að ný ríkisstjórn
muni ekki sitja út kjörtímabilið.
Fyrsta árið verði þó fremur far-
sælt. Samstarf leiðtoga stjórnar-
flokkanna mun ganga vel, þeir
virka samstíga og styðja hver
annan, segir hún. Það mun þó
valda nokkurri óánægju innan
Framsóknar og Vinstri grænna
hversu fast Bjarni Benediktsson
mun halda í budduna í ýms-
um málaflokkum sem þessir
tveir flokkar vilja eyða ómæld-
um peningum í. Bjarni mun
standa fastur fyrir þótt einhver
útgjaldaaukning verði.
Vegna þessa mun
núningur meðal
þingmanna ríkis-
stjórnarinnar valda
meiri erfiðleikum
en ella hefði ver-
ið. Óeining muni
síðan blossa upp
2019, samstarfið muni
laskast mjög og stjórnar-
slit verði ekki umflúin. Völvan
ítrekar um leið að
á árinu 2018 muni
samt ekkert benda
til annars en að sam-
starfið muni halda út
kjörtímabilið, en síðan
muni heldur betur halla
undan fæti. „Þetta mun enda
með ósköpum,“ segir hún.
Velsæld í
efnahagslífinu
Völvan segir að áframhaldandi
velsæld verði í efnahagslífi
þjóðarinnar. Þar verður ekkert
bakslag næstu árin þótt verð-
bólga aukist eitthvað vegna of
mikillar þenslu í ríkisútgjöldum.
Það er ekki fyrr en 2027 sem hún
sér kreppuástand. Það verður þó
ekki jafn slæmt og á hrunárun-
um. Þjóðin þarf sem sagt engu
að kvíða á næstunni. Góðær-
ið mun þó leiða til þess að bilið
á milli þeirra ríkustu og þeirra
sem minnst eiga verður æ meira
áberandi.
Þegar líður á árið kemur í ljós
að Katrín Jakobsdóttir mætti vera
röskari við verkstjórn sem hún
sinnir ekki nægilega.
Erfiðar
vinnudeilur
Árið mun einkennast af titringi
og erfiðum vinnudeilum. Rík-
ið verður gagnrýnt harkalega
fyrir að koma ekki inn í kjara-
deilurnar sem slíkar með sér-
tæk útspil. Það kemur til vinnu-
deilna og verkfalla en flest
mál munu leysast þannig að
vinnuveitendur og viðsemj-
endur munu telja sig hafa náð
eins viðunandi niðurstöðu og
hægt er. Þetta mun hins vegar
ekki vera skoðun launamanna
og í einhverjum tilvikum verða
Sannspá
spákona
Á síðasta ári reyndist völvan afar
sannspá og hér skulu nokkur
atriði nefnd af mörgum. Hún sá
myndun þriggja flokka ríkisstjórnar
Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og
Bjartrar framtíðar sem myndi eiga í
erfiðleikum. Hún sá ljóshærðar konur
taka við varaformennsku í Sjálfstæð-
isflokki og Viðreisn og það rættist
þegar Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
tóku við þeim embættum. Hún sá
Pál Val Björnsson yfirgefa Bjarta
framtíð og að Heiða B. Hilmisdóttir
yrði varaformaður Samfylkingarinn-
ar. Hún sagði Dag B. Eggertsson ná
vopnum sínum þegar liði á árið. Einnig
sagði hún að tilkoma Costco myndi
verða mikil blóðtaka fyrir íslenska
heildsala. Hún sá menningarsinnaða
konu með viðskiptavit verða forstjóra
Hörpu en Svanhildur Konráðsdóttir
var ráðin í það starf. Til marks um það
hversu nákvæm völvan getur verið
í spádómum sínum skal að lokum
nefna að hún sá Bubba Morthens
senda frá sér ljóðabók og sagði:
„Bókin mun fjalla um verbúðarlíf og
vera mjög persónuleg.“
Blaðamaður heldur á fund spákonunnar sem reyndist svo sannspá á síðasta
ári. Hún býr í litlu grænmáluðu húsi rétt fyrir utan höfuðborgarsvæðið. Hún
kemur til dyra og heilsar hlýlega og býður blaðamanni til stofu. Sem fyrr er
kristalskúlan góða á stofuborðinu. Það er vistlegt og jólalegt hjá völvunni sem
segir blaðamanni að hún sé mikið jólabarn og hafi alltaf verið. Hún býr ein en
eiginmaður hennar lést fyrir einhverjum árum. Aðspurð segist hún halda jólin
hátíðleg á heimili sonar síns og tengdadóttur í Kópavogi. Blaðamaður fær sér
sæti í IKEA-sófanum og völvan sest andspænis honum. Eins og á síðasta ári
vekja augu völvunnar sérstaka athygli blaðamanns, þau eru ekki bara góðleg,
það er hreinlega eins og þau sjái í gegnum holt og hæðir.
Eldgos, hneykslismál og
skelfingu lostin heimsbyggð