Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2017, Page 43
Áramótablað 29. desember 2017 43Völvuspáin 2017
kjarasamningar, sem samn-
inganefndir verkalýðsfélaganna
hafa náð, felldir í almennri at-
kvæðagreiðslu.
Forsetinn
vekur reiði
Vinstri grænna
Það mun verða áframhald á því
að flóttafólki og barnafjölskyld-
um verði vísað úr landi sem mun
valda Vinstri grænum talsverð-
um erfiðleikum í umræðunni
þar sem stjórnarandstöðuflokk-
arnir, og þá sérstaklega Sam-
fylking og Viðreisn, munu beina
spjótum að Vinstri grænum og
flokkurinn getur illa varið sig.
Þetta mun ekki breyta stuðn-
ingi við Vinstri græna með-
al þjóðarinnar en reynast þeim
erfitt innan flokks. Forseti Ís-
lands, Guðni Th. Jóhannesson,
blandar sér í málið og talar með
þeim hætti að hluti stjórnarand-
stöðunnar mun verða ánægður
með hann en ríkisstjórnarflokk-
arnir allir verða hinir æfustu og
segja að þarna hafi hann farið
út fyrir verksvið sitt. Það mun
koma mörgum í opna skjöldu
hversu Vinstri græn bregðast
illa við orðum forsetans miðað
við ímynd flokksins i þeim mál-
um en þarna munu hagsmunir
Vinstri grænna sem ríkisstjórn-
arflokks hafa meira vægi en
margur kynni að ætla fyrirfram.
Það verður enn frekari aukn-
ing á erlendu vinnuafli til dæmis
vegna samgönguframkvæmda.
Þar munu líka sjást mikil merki
um félagsleg undirboð og illa
meðferð á því erlenda fólki sem
hingað kemur. Ríkisstjórnin mun
liggja undir gagnrýni fyrir það,
einkum og sér í lagi Vinstri græn.
Stórbruni í
starfsmannaleigu
Stórbruni verður í ólöglegu húsi
starfsmannaleigu og íbúar kom-
ast út við illan leik. Eigendurn-
ir eru dregnir fyrir dómstóla.
Hneykslið snýr þó fyrst og fremst
að eftirlitsaðilum, heilbrigðis-
eftirlitinu og brunaeftirlitinu,
sem hafa látið slíkt fyrirkomulag
óátalið vegna húsnæðisskorts.
Tekið verður á vandamálinu.
Stjórnmálamenn
í eldlínunni
Guðmundur Ingi Guðbrandsson
umhverfisráðherra mun verða
verulega í eldlínunni og sæta
mikilli gagnrýni landsbyggðar-
manna, einkum Vestfirðinga og
Austfirðinga, vegna mjög hertra
krafna í sjávarfiskeldi,
auk þess sem hann
mun beita sér
gegn vegagerð
á ákveðnum
svæðum. Þetta
mun skapa
honum veru-
legar óvinsældir
úti á landi en að
sama skapi mun
hann eignast ákafa
stuðningsmenn í hópi
vinstri sinnaðra menntamanna á
höfuðborgarsvæðinu.
Völvan sér mikla óánægju í
garð Svandísar Svavarsdóttur
heilbrigðisráðherra frá af-
mörkuðum hópi innan heil-
brigðisgeirans vegna máls sem
hópurinn telur ganga gegn hags-
munum sjúklinga. Mikil ánægja
verður þó með framgöngu Svan-
dísar í málinu hjá þorra þjóðar-
innar. Gagnrýnendur ráðherrans
munu fara offari og ein tiltekin
ummæli eins gagnrýnanda í fjöl-
miðli munu gjaldfella orðræðu
þeirra til frambúðar og verða
vatn á myllu Svandísar. Svan-
dís mun hins vegar ekki verða
vinsæl í öllum málum og verður
sökuð um að bregðast hægt við
bráðavanda.
Tekið verður eftir framtaks-
leysi og litlum gangi mála í fé-
lagsmálaráðuneytinu. Mennta-
málaráðherra, Lilja Alfreðsdóttir,
mun liggja undir verulegri
gagnrýni innan kennarastétt-
arinnar og mun eiga erfitt með
að svara henni. Hún mun hins
vegar njóta mikillar velvildar
listamanna, sérlega rithöfunda
og bókaútgefenda, sem þakka
henni að virðisaukaskattur af
bókum er loks felldur niður
þegar líða tekur á árið.
Sauðfjárbændur munu verða
mjög óánægðir með framgöngu
þessarar stjórnar sem mun að
þeirra mati alls ekki gera nóg
til að styðja við bændur í mikl-
um kröggum. Finnst þeim þeir
illa sviknir hafandi fengið stjórn
flokka sem hafa í sögulegu sam-
hengi verið hvað vinveittastir
bændastéttinni.
Framhjá-
haldshneyksli
Framhjáhaldsmál stjórnmála-
manns kemst í fréttir og
vekur þjóðarathygli.
Erlend pressa mun
einnig fjalla um
málið. Þetta fram-
hjáhaldsmál hef-
ur tímabundin
áhrif á verri veg á
samskipti leiðtoga
stjórnarflokkanna,
enda málið hið óþægi-
legasta. Ekki líður þó á
löngu áður en samheldnin
verður aftur við völd í þeim sam-
skiptum. Facebook mun loga
sem aldrei fyrr og mörg ljót orð
munu falla. Eftir að maki við-
komandi stjórnmálamanns stíg-
ur fram í einlægu viðtali mun
umræðan róast. „Ótrúlegt hvað
fólk getur orðið æst vegna einka-
mála náungans,“ segir völvan
og hristir höfuðið. Hún segir að
annað mál, ótengt þessu muni
einnig vekja athygli en þar er um
að ræða skilnað leiðtoga stjórn-
málaflokks, sem mun koma þó
nokkuð mikið á óvart.
Brottfall
hjá VG
Seint á árinu
munu tveir þing-
menn, Andrés Ingi
Jónsson og Rósa
Björk Brynjólfsdóttir,
yfirgefa VG og verða óháðir
þingmenn. Brotthvarfið mun ekki
tengjast sérstaklega neinu því sem
upp á kemur á þeim tíma held-
ur telja þingmennirnir sér orðið
óvært innan VG vegna persónu-
legrar óvildar í þeirra garð.
Steingrímur J. Sigfússon mun
koma mönnum á óvart með því
að reynast mannasættir hinn
mesti sem forseti þingsins og
mun hafa alveg sérstakt lag á að
róa órólega þingmenn Pírata.
Nýr varaformaður
Sjálfstæðis-
flokksins
Innan Sjálfstæðisflokks-
ins munu menn eiga
í erfiðleikum vegna
þess hversu mjög
ýmsir þingmenn
verða tilbúnir að
lýsa skoðunum sín-
um á óvinsælum mál-
um. Þar verða
mest áberandi
þeir Pál Magn-
ússon, Ásmund-
ur Friðriksson og
Brynjar Níels-
son. Jón Gunnars-
son mun reynast
stjórninni erfiður, á
tíðum ígildi stjórnar-
andstöðuþingmanns.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð
Gylfadóttir verður nýr varafor-
maður Sjálfstæðisflokksins og Ás-
laug Arna Sigurbjörnsdóttir verð-
ur áfram ritari flokksins.
Engin breyting
hjá Framsókn
Það verða ekki breytingar á for-
ystu Framsóknarflokksins á
árinu. Sigurður Ingi Jóhanns-
son verður áfram formaður og
Lilja Alfreðsdóttir varaformað-
ur. Framsóknarmönnum mun
bætast einn þingmaður á árinu
þegar Anna Kolbrún Árnadóttir,
fyrrverandi formaður Landssam-
bands Framsóknarkvenna, geng-
ur úr Miðflokknum og fer yfir í
Framsókn. Það gerir að verkum
að stjórnin styrkist aðeins eft-
ir að hafa misst tvo þingmenn
Vinstri grænna úr liði sínu.
Lítill sýnileiki
Sigmundar Davíðs
Tekið verður eftir litlum sýnileika
Sigmundar Davíðs Gunnlaugs-
sonar, formanns Miðflokks-
ins. Bæði verður lítill sýnileiki
í þingsölum og embættisstörf-
um hans og hann mun lítið sjást
opinberlega. Þingmenn munu
ergja sig á fjarveru hans og hjá
hluta stjórnarandstöðunnar gæt-
ir pirrings vegna þess að hann
verður ekki til staðar til að veita
lið í þungum málum. Aðrir þing-
menn Miðflokksins munu einnig
vera tiltölulega ófyrirsjáanlegir
og jafnvel hallast á sveif með rík-
isstjórninni í ýmsum málum.
Írafár í
kringum Ingu
Mikið írafár verður í kringum
Flokk fólksins í fjölmiðlum. Inga
Sæland mun vekja athygli í fjöl-
miðlum og þá fyrst og
fremst varðandi mál
er varða fátækt.
Flokkurinn verður
uppvís að vafa-
samri afstöðu í
málum er varða
hælisleitend-
ur og útlendinga
og sætir fyrir vik-
ið mikilli gagnrýni.
Þingmönnum flokks-
ins finnst gaman að vera á
þingi og völvan sér þá iðna við að
mæta í ræðustól Alþingis.