Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2017, Side 44
44 Áramótablað 29. desember 2017Völvuspáin 2017
Staða Heiðu
Bjargar veikist
Staða formanns Samfylkingar-
innar, Loga Einarssonar, er sterk.
Staða varaformanns Samfylk-
ingarinnar, Heiðu Bjargar Hilm-
isdóttur, mun hins vegar veikjast
þegar hún nær ekki þeim árangri
sem hún hafði æskt á framboðs-
lista Samfylkingarinnar fyrir
borgarstjórnarkosningar. Þetta
mun valda nokkrum titringi og
óróa innan flokksins. Ræður
Guðmundar Andra Thorsson-
ar munu vekja athygli og þykja
bæði innihaldsríkrar og ljóð-
rænar. Á netmiðlum mun hann
ítrekað vera kosinn besti ræðu-
maður þingsins.
Fjarar undan
Pírötum
Það verður
skellur fyr-
ir Pírata
að ná ekki
inn manni
í borgar-
stjórn sem
mun verða
enn frekara lóð
á vogarskál þess
að undan fjarar í flokksstarfi og
innan flokksins. Flokkurinn er
tvískiptur, framlínan vill gera
flokkinn að flokki með strúktur
líkt og hjá hefðbundnum stjórn-
málaflokkum en það mun mæta
andstöðu og deilum í grasrót og
baklandi.
Viðreisn í
stuði í stjórn-
arandstöðu
Viðreisn siglir tiltölulega
lygnan sjó og sækir í sig
veðrið í skoðanakönnun-
um eftir því sem á árið líð-
ur á kostnað Sjálfstæðisflokks-
ins. Einangrunarhyggjan sem
mun einkenna þessa ríkisstjórn
mun valda framsæknum hægri
mönnum miklum vonbrigðum.
Þeir munu horfa í kringum sig í
leit að framsæknari kosti á hægri
vængnum og Viðreisn verð-
ur fyrir valinu. Viðreisn mun
standa sig með prýði í
stjórnarandstöðu, vera
öfgalaus og fara fram
af sanngirni og festu.
Þingmaður
hneykslast
Eitthvert hneyksli mun koma
upp sem tengist þingmanni og
óæskilegri hegðun hans utan
þings þar sem hann er staðinn
að því að láta öllum illum látum.
Það sem gerir málið verra er að
athæfi hans er tekið upp á síma
og sett á netið. Þingmaðurinn
mun biðjast margfaldlega afsök-
unar en pólitískir andstæðingar
munu ekki gleyma þessu at-
viki og nota það gegn honum
í færslum á netinu. En eins og
flestar aðrar uppákom-
ur í íslensku samfé-
lagi gleymist málið á
nokkrum vikum.
Enginn
kvennalisti
Blaðamaður spyr um úr-
slit í sveitarstjórnarkosning-
um. Spáin kemur á óvart. Völvan
segir að hugmyndir og tilraun-
ir til að bjóða fram kvenna-
lista í borginni muni
deyja í höndun-
um í þeim sem
það vilja reyna.
Fjöldi flokka
mun bjóða fram
í borgarstjórn-
arkosningum í
Reykjavík. Flokk-
ur fólksins mun leita
logandi ljósi að odd-
vita á sæti listans. Á lokametr-
unum stígur Ólafur Arnarson
fram sem málsvari þeirra sem
minna mega. Píratar munu ekki
verða jafn áberandi og áður. Eld-
ur Birgittu Jónsdóttur er þó ekki
slokknaður og hún mun með
einhverjum hætti blanda sér inn
í kosningabaráttuna í Reykjavík.
Sú innkoma mun fara illa í kjós-
endur og flokkurinn nær ekki ár-
angri í kosningunum.
Samstarf sem
kallar á viðbrögð
Þrátt fyrir mikið framboð flokka
í borginni munu einungis sex
flokkar komast inn í borgar-
stjórn: Vinstri græn, Sjálfstæð-
isflokkurinn, Samfylkingin,
Framsókn, Viðreisn og Flokk-
ur fólksins sem mun rétt merja
það að komast inn. Gísla Mart-
eini Baldurssyni verður boðið að
leiða Viðreisn en hann hafnar
því og heldur áfram í sjónvarpi
en einhver uppákoma verður í
þætti hans og tengist stjórnmál-
um. Pawel Bartoszek mun leiða
Viðreisn. Birgir Örn Guðjónsson
(Biggi lögga) mun leiða Fram-
sókn í borginni og vekja mikla
athygli fyrir jákvæðni og sam-
vinnufýsi. Meirihlutasamstarfið
mun koma á óvart en þar munu
leiða saman hesta sína Sam-
fylking, Viðreisn og Sjálfstæð-
isflokkur. Unnur Brá Konráðs-
dóttir leiðir Sjálfstæðisflokkinn
og verður formaður borgarráðs
og Dagur B. Eggertsson verð-
ur borgarstjóri. Samstarfið mun
ganga prýðisvel en mun fara í
taugarnar á ýmsum, ekki síst
Sjálfstæðismönnum í hinni
svokölluðu „skrímsladeild“.
Mörg Reykjavíkurbréf verða
skrifuð gegn meirihlutanum
þar sem greinarhöfundur dreg-
ur ekki af sér og krefur Bjarna
Benediktsson ítrekað svara.
Bjarni þegir þunnu hljóði.
Samfylkingin vinnur sigur
í Hafnarfirði og Einar Bárðar-
son verður ráðinn bæjarstjóri og
njóta vinsælda í því starfi. Eft-
ir borgarstjórnarkosningarnar
mun verða rætt af alvöru í Graf-
arvogi um að segja sig úr Reykja-
vík. Meirihlutinn mun reyna að
kveða þær raddir niður með því
að lofa auknu valdi til hverfis-
ráða.
Björt á önnur mið
Á landsbyggðinni verður óvenju
mikil vakning varðandi bland-
aða lista og lista sem eru ekki
beinlínis undir hatti stjórn-
málaflokkanna. Í sveitarstjórn-
arkosningum í stærri
sveitarfélögum munu
hinir hefðbundnu
stjórnmálaflokkar
þó bera nær full-
kominn sigur úr
býtum. Tími upp-
hlaupsflokka eins
og Pírata og Bjartr-
ar framtíðar er liðinn.
Björtu Ólafsdóttur mun
mistakast að halda Bjartri fram-
tíð saman og leita á önnur mið
fyrir árslok 2018.
Stjórnmálamenn
í klóm fjölmiðla
Einn frambjóðenda Miðflokksins
til sveitarstjórnar á eftir að lenda
í klóm fjölmiðla vegna vafa-
máls. Formaðurinn kemur við-
komandi einstaklingi til varnar
og fær bágt fyrir hjá sumum en
mikið lof hjá stuðningsmönnum
flokksins. Orðið „loftárásir“ ber
á góma.