Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2017, Síða 48
48 Áramótablað 29. desember 2017Völvuspáin 2017
enn meiri kappi í gagnrýnend-
ur. Menntamálaráðherra, Lilja
Alfreðsdóttir, mun koma RÚV
til varnar. Innan Miðflokksins
og Flokks fólksins eru þing-
menn sem skipa sér í hóp gagn-
rýnenda. Þar á meðal er Sig-
mundur Davíð Gunnlaugsson
sem skýtur föstum skotum á
fyrrum flokkssystur sína, Lilju
Alfreðsdóttur. Verður þetta síst til
að sætta þingmenn Framsóknar-
flokks og Miðflokksins.
Feminískt
fjölmiðlaveldi
Nýtt fjölmiðlaveldi verður til,
þar verða í einum pakka sjón-
varpsstöð, útvarpsstöð og dag-
blað sem fær nafnið Samtíminn.
Meðal eigenda er sterkefnuð
kona og mikla athygli vekur að
yfirmenn og fréttastjórar sam-
steypunnar eru að mestu leyti
konur. Feminískar áherslur
verða áberandi í ritstjórn-
arstefnu fjölmiðl-
anna og vekur það
blendin viðbrögð.
Völvan seg-
ir að fjölmiðl-
ar muni ganga
þokkalega á ár-
inu, vegna þess að
ríkir menn eru til-
búnir að setja pening
í þá. „Það er nú bara eins
og er með flesta fjölmiðla hér á
landi, þeir myndu deyja án ríku
karlanna," segir völvan orðrétt.
Mogginn lifir allt af, segir hún
aðspurð, og bætir við að hjá DV
og Fréttablaðinu muni ganga
þokkalega og hún sér flutninga
á báðum vígstöðvum. Frétta-
blaðið flytur í miðbæinn en DV
mun verða lengra í burtu. Völvan
tekur síðan fram að þeir starfs-
menn 365 sem fari yfir til Voda-
fone þurfi ekki að hafa áhyggj-
ur af stöðu sinni þetta árið en
breytingar verði seinna.
Hún segir að nokk-
uð verði um að blaða-
menn flytji sig á milli
fjölmiðla og ráðn-
ing nýrra yfirmanna
veki athygli og komi
á óvart. Þegar blaða-
maður spyr nánar út
í þau mál verður völvan
leyndardómsfull og segir að
sumt verði að koma á óvart.
Erlendur
var myrtur
Blaðamaður spyr um menning-
arárið 2018. Völvan, sem seg-
ist vera mikil áhugamanneskja
um glæpasögur og á allar bæk-
ur Arnaldar Indriðasonar, seg-
ir ekkert lát verða á vinsældum
glæpasagnahöfunda þjóðarinn-
ar. Þegar hér er komið sögu tekur
hún sér smáhlé frá spádómum
til að dásama Arnald og aðspurð
segir hún Grafarþögn uppá-
haldsbók sína eftir hann. Blaða-
maður spyr hvort hún sjái hvort
lögreglumaðurinn Erlendur
muni aftur skjóta upp kollinum
í sögu eftir Arnald. Hún segir að
í næstu bók Arnaldar muni líkið
af Erlendi finnast og í ljós komi
að hann hafi ekki orðið úti held-
ur hafi andlát hans borið að með
saknæmum hætti. Sú uppljóstr-
un mun komi miklu róti á aðdá-
endur Erlendar en bókin muni
vitaskuld verða metsölubók.
Mistur slær í
gegn erlendis
Skáldsaga Ragnars Jónasson-
ar, Mistur, á eftir að njóta sér-
lega mikillar velgengni erlend-
is. Skáldið Sjón er að stíga upp
frægðarstigann í hinum alþjóð-
lega bókmenntaheimi og viður-
kenning, sem vekur athygli, fell-
ur honum í skaut. Jón Kalman
Stefánsson á eftir að fá Nóbels-
verðlaun í bókmenntum, en ekki
mun það þó verða á allra næstu
árum, segir völvan.
Ólafur Jóhann vill
ekki lengur vera
forstjóri
Ólafur Jóhann
Ólafsson læt-
ur af störfum
sem forstjóri
í Bandaríkj-
unum. Hon-
um finnst nóg
komið af við-
skiptastússi og
vill breyta til. Hann
á eftir að fá starf hér á landi
sem tengist pólitík á einhvern
hátt. Völvan tekur fram að Ólafur
Jóhann sé ópólitískur maður og
bætir við að hann sé heilsteypt-
ur maður sem eigi eftir að gera
þjóð sinni mikið gagn. Honum
mun áfram vegna vel í ritstörfum
en bækur hans munu verða þó
nokkuð vinsælli í enskumælandi
löndum en hér á landi. Í Banda-
ríkjunum munu hefjast tökur
á kvikmynd byggðri á einni af
skáldsögu hans. Cate Blanchett
verður í einu af aðalhlutverkun-
um.
Björk fær
alþjóðleg
verðlaun
Björk fær stór
og virt alþjóð-
leg verðlaun fyrir
sitt merka fram-
lag til tónlistarinnar
í gegnum árin. Verð-
launin verða veitt á þekktri hátíð
sem sjónvarpað er beint frá víða
um heim. Þarna verða flestar
stórstjörnur tónlistarheims-
ins samankomnar. Völvan sér
Adele syngja á hátíðinni en mis-
stíga sig illa og detta. Það fall
mun vekja enn meiri athygli
heimspressunnar en verðlaun
Bjarkar og verður sýnt hvað eftir
annað í fréttum heimspressunn-
ar.
Baltasar Kormákur land-
ar kvikmyndasamningi. Þar
er stórmynd á ferðinni með
Hollywood-stjörnum. „Efni
hennar sýnist mér tengjast Ís-
landi á einhvern hátt, allavega
verður hluti hennar tekinn upp
hér á landi þegar að því kemur.“
Víkingur Heiðar heldur áfram
að vinna stóra sigra úti í heimi
og við honum blasa alls kyns
tækifæri. Samstarf hans við stór-
stjörnu í hinum klassíska heimi
mun vekja athygli.
Kári Egilsson, píanóleikari og
tónskáld, sonur Egils Helgason-
ar, leikur eigin verk á tónleikum
Sinfóníuhljómsveitarinnar og
slær rækilega í gegn. Plötusamn-
ingur kemur í kjölfarið.
Landsþekkt listakona mun
hníga niður í stórafmæli, at-
vikið verður fest á filmu og fer
í dreifingu á netinu. Völvan sér
konuna í viðtali stuttu síðar að
ræða um breyttan lífsstíl.
Enn ein Euro-
vision-vonbrigðin
Eurovision-áhugi þjóðarinnar er
ekki að dala. Íslendingar munu
freista þess að senda lítt þekkt-
an einstakling í Eurovision en
við munum eftir sem áður ekki
uppskera eins og við sáðum.
Það mun valda mikilli gremju
meðal margra og háværar radd-
ir heyrast sem krefjast þess að
fyrirkomulagi keppninnar verði
breytt. „Furðulegt hvað þessi
þjóð getur endalaust æst sig yfir
þessari keppni," segir völvan og
dæsir, en sjálf segist hún eink-
um hlusta á íslensk lög með „al-
mennilegum söngvurum", eins
og hún orðar það.
Lítill árangur
í Rússlandi
Völvan segist ekki vera
mikil íþróttakona en
býðst þó til að skyggn-
ast inn í íþróttaheim
næsta árs. Þar ber vitanlega
hæst Heimsmeistaramótið í
knattspyrnu í Rússlandi. „Rið-
illinn er of erfiður fyrir okkar
menn,“ segir völvan og liðið mun
ekki komast áfram. „Við töp-
um leiknum við Argentínu 3-0
þar sem Lionel Messi skorar eitt
mark. Við vinnum leikinn við
Nígeríu og mætum Króatíu í síð-
asta leik og töpum honum.“ Hún
segir stemningsfulla stuðnings-
menn Íslands verða þjóðinni til
sóma í Rússlandi og munu þeir
vekja mun meiri athygli fjöl-
miðla en liðið sjálft. Gleðin verð-
ur við völd hjá Íslendingum þrátt
fyrir tapið.
Völvan segir að Brasil-
ía og Þýskaland muni
mætast í úrslitum á
Heimsmeistara-
mótinu í Rússlandi.
Brasilía vinnur
nauman 2-1 sigur
þar sem Neymar
skorar bæði mörk
Brasilíu og verður
kjörinn besti leikmað-
ur mótsins.