Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2017, Blaðsíða 54
54 sport Áramótablað 29. desember 2017
Álitsgjafar gera upp Árið
Á
rið er senn á enda og í
íþróttaheiminum hef-
ur það verið afar fróð-
legt. Sérstaklega hér á
Íslandi þar sem mörg mögn-
uð afrek áttu sér stað,
þar má nefna það
þegar karlalandsliðið
í knattspyrnu tryggði
sig inn á Heimsmeistaramótið
í fyrsta sinn. Ólafía Þórunn
Kristinsdóttir vann hug og hjörtu
þjóðarinnar með frammistöðu
sinni á meðal atvinnukylfinga
í Bandaríkjunum. Kvenna-
landsliðið í fótbolta olli von-
brigðum á Evrópumótinu
í Hollandi en kom síð-
an til baka með góðum spretti
í undankeppni HM. Aníta Hin-
riksdóttir átti gott ár í hlaupum
og Helgi Sveinsson gerði það
gott í spjótkasti fatlaðra, svo eitt-
hvað sé nefnt. DV leitaði til álits-
gjafa sem gera upp helstu afrek
innanlands og erlendis á þessu
íþróttaári. n hoddi@433.is
Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson
- íþróttafréttamaður á RÚV
Innlent:
Við Íslendingar eigum orðið
svo flott íþróttafólk að það
er úr mörgu að velja. Aníta
Hinriksdóttir vann brons á EM
innanhúss í frjálsum íþróttum
í 800 m hlaupi á árinu, Helgi
Sveinsson setti heimsmet í
sínum fötlunarflokki í spjótkasti,
kraftlyftingafólkið okkar, Júlían
Jóhannsson og Fanney Hauks unnu glæsta sigra, Ólafía
Þórunn stóð sig gríðarlega vel á stóra sviðinu í golfinu og
svona mætti lengi áfram telja. En í mínum huga er stærsta
íslenska íþróttaafrek ársins það að íslenska karlalandsliðið
í fótbolta hafi tryggt sér sæti í lokakeppni HM í fótbolta.
Það er risastórt afrek.
Erlent:
Ég ætla að leyfa mér að segja sigur Svisslendingsins Rogers
Federer á Wimbledon-risamótinu í tennis. Sett í samhengi
finnst mér það allavega eitt af stærstu íþróttaafrekum
ársins. Eftir að hafa verið bestur í mörg ár voru menn
eiginlega búnir að afskrifa Federer fyrir þetta ár, enda hafði
hann ekki unnið risamót síðan 2012. En þá mætti kappinn
bara og vann bæði Opna ástralska og Wimbledon-mótið.
Hann hefur unnið Wimbledon-mótið oftast allra í ein-
liðaleik karla, eða átta sinnum, og hefur unnið flest risamót
í tennis í sögunni, 19 talsins. Ótrúlegur íþróttamaður.
Jóhann Laxdal
- leikmaður Stjörnunnar í fótbolta
Innlent:
Það kemur ekkert annað til greina en þegar Siggi Dúlla og
vinir komust á Heimsmeistaramótið, knattspyrnuáhugafólk
á Íslandi hefur það gott og þeim finnst ekki leiðinlegt að venj-
ast því að vera í svona partíi. Við munum síðar meir horfa til baka
og átta okkur á því hversu stórt afrek það var að komast á HM.
Erlent:
Real Madrid tók virkilega gott ár í fótboltanum erlendis , þar sópaði
liðið að sér titlum og Ziedine Zidane, þjálfari liðsins, var aðalmaður-
inn. Endurkoma New England Patriots í úrslitaleiknum, Super Bowl,
var einnig rosaleg. Það var magnað að fylgjast með því.
Stefán Árni Pálsson
- blaðamaður á Fréttablaðinu
Innlent:
Að mínu mati kemur aðeins eitt til
greina og það er árangur karlalandsliðs
Íslands í knattspyrnu. Það að tryggja
sig á lokamót HM í fyrsta sinn í sögunni
er ótrúlegt afrek. Og að gera það með því að
vinna þennan sterka riðil gerir afrekið enn ótrúlegra.
Að komast á HM er ótrúlega erfitt og ég mun kannski aldrei
aftur sjá íslenskt karlalandslið á Heimsmeistaramóti í
knattspyrnu.
Erlent:
Sigur New England Patriots á Atlanta Falcons í Superbowl
í byrjun ársins. Liðið lenti 28-3 undir og vann að lokum
34-28 í einhverjum ótrúlegasta íþróttaleik sögunnar.
Minnti óneitanlega á endurkomu Liverpool gegn AC Milan í
Istanbúl um hér um árið.
„Þetta er risaafrek,
eitt það stærsta í
íþróttasögu þjóðarinnar