Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2017, Blaðsíða 55
sport 55Áramótablað 29. desember 2017
Álitsgjafar gera upp Árið
Ríkharð Óskar Guðnason
- íþróttafréttamaður á Stöð2 Sport
Innlent:
Tvennt sem kemur upp í huga mér í fljótu bragði. Íslenska landsliðið
tryggði sér sigur í mjög erfiðum undanriðli og í leiðinni farseðil á HM í
fyrsta sinn í sögu fótboltans. Það verður erfitt að toppa. Ólafía Þórunn
náði frábærum árangri og stóð sig heilt yfir vel á LPGA-mótaröðinni og
varð fyrst íslenskra kylfinga til að ná inn á túr bestu kylfinga heims. Hún varð
golfíþróttinni hér heima til mikils sóma og ætti að ýta ungum krökkum í golfið.
Erlent:
Erlenda afrekið myndi ég segja Real Madrid. Skráðu sig á spjöld sögunnar með að verða fyrsta
liðið til að vinna Meistaradeild Evrópu tvö ár í röð, þ.e.a.s. í núverandi mynd keppninnar. Það
hafði engu liði tekist að gera.
Magnús Már Einarsson
- ritstjóri Fótbolta.net
Innlent:
Það að Ísland hafi tryggt sér sæti á
HM í fótbolta í fyrsta skipti í sögunni er
stórkostlegt afrek. Ísland var eitt af níu
liðum sem vann sinn riðil í undankeppninni
í Evrópu og það er ótrúlegt. Heimsbyggðin
fylgdist með ævintýrinu í haust og öll augu verða á
Íslandi í Rússlandi næsta sumar.
Erlent:
Af Íslendingum erlendis þá er ekki hægt annað en að nefna
árangurinn hjá Ólafíu Þórunni Kristinsdóttur í golfinu.
Frábær árangur og gaman að sjá hana á stóra sviðinu. Hún
er líka bara rétt að byrja.
Þorkell Máni Pétursson
- útvarpsmaður á X977
Innlent:
Strákarnir á HM. Er líklega stærsta afrek í sögu íslenskra íþrótta og verður
seint toppað. Síðan verður að nefna sigur íslenska kvennalandsliðsins í
fótbolta á Þjóðverjum sem var fyrsta tap Þjóðverja í 30 ár á heimavelli.
Erlent:
Þar stendur upp úr sigur Manchester United í Evrópudeildinni, að fá stórlið til að spila
eins og lítilmagninn gegn unglingaliði frá Hollandi er stórkostlegt afrek. Helst í ljósi þess
að í þessum leik dó líklegast síðasta gildi United frá tíma Sir Alex Ferguson.
Kjartan Atli Kjartansson
- stjórnandi Körfuboltakvölds
Innlent:
Afrekið hérlendis er þegar íslenska landsliðið
komst á HM í knattspyrnu. Ísland er auðvitað
langfámennasta þjóðin til að komast á HM og
að vinna riðilinn var stórkostlegt. Þetta er risaafrek,
eitt það stærsta í íþróttasögu þjóðarinnar, landsliðið verður nú á
stærsta sviði heims næsta sumar.
Erlent:
Slóvenar skrifuðu söguna þegar þeir urðu Evrópumeistarar í
körfubolta. Þessi litla þjóð náði ótrúlegum árangri á mótinu, níu
sigurleikir í röð. Goran Dragic fór á kostum í mótinu, en sat samt á
bekknum á ögurstundu, eitthvað sem maður sér ekki oft. Magnaður
árangur hjá flottri liðsheild.
Benedikt Bóas
Hinriksson
- blaðamaður á Fréttablaðinu
Innlent:
Það er Ísland
á HM, ekki
spurning. Að
enda sem
sigurvegar-
ar í riðlinum
er eitthvað
það ótrúleg-
asta sem ég hef
orðið vitni að. Að
sitja bara rólegur yfir umspilsleikj-
unum, horfa á HM-dráttinn og
fleira og fleira. Þetta er bara afrek
sem heldur áfram að gefa.
Erlent:
Sigur New England Patriots í
NFL. Þetta er einhver magnað-
asti íþróttaleikur sem ég man
eftir. Toppar eiginlega endurkomu
Liverpool árið 2005. Tilþrif Julian
Edelman, þegar hann greip boltann
í fjórða leikhluta munu lifa um aldir
og ævi. Ég vissi ekki að ég hefði
svona sterkar taugar til New Eng-
land Patriots, en guð minn góður
hvað var ljúft að mæta of seint
til vinnu þennan mánudag. Hver
elskar ekki góðar endurkomur?
m
y
n
d
d
a
v
íð
þ
ó
r