Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2017, Síða 65
menning - Menningarannáll 2017 65Áramótablað 29. desember 2017
Eins og í tveimur síðustu þingkosninga-
baráttum kom Ragnar Kjartansson inn í
umræðuna á síðustu stundu með stuttum
grínlegum áróðursmyndböndum merkt
„skrímsladeildinni“ til stuðnings Vinstri
grænum. Ásgeir Ingólfsson, skáld og menn-
ingarrýnir, nefnir eitt þessara myndbanda
eftirminnilegasta listaverk ársins: „Bestu
listaverkin verða stundum stærri en lista-
maðurinn – og afhjúpa jafnvel eitthvað sem
honum er sjálfum hulið. Besta dæmið um
slíkt í ár er myndband Ragnars Kjartans-
sonar fyrir síðustu kosningar,“ segir Ásge-
ir. Myndbandið, þar sem kampavínsská-
landi og smókingklæddur Ragnar ímyndar
sér í gríni framtíð þar sem Sjálfstæðisflokk-
ur og Miðflokkur vinna að velferð fólksins í
landinu, hafði kaldhæðnislegt forsagnagildi
en samflokksmenn Ragnars, Vinstri græn,
skáluðu í kampavíni, þegar samið hafði ver-
ið um stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar
þeirra með Sjálfstæðisflokki og Framsókn.
Við borgum (loksins)
myndlistarmönnum
Undanfarin ár hefur Samband íslenskra
myndlistarmanna gagnrýnt að listamenn
fái ekki þóknun né útgjöldum þeirra mætt
þegar settar eru upp sýningar á verkum
þeirra í opnberum söfnum. Áfangasigur
vannst í baráttunni, sem hefur verið háð
undir yfirskriftinni Við borgum myndlistar-
mönnum, þegar borgarráð veitti Listasfni
Reykjavíkur viðbótarframlag til að greiða
listamönnum.
„Snemma á árinu voru kjör og staða
listamanna rædd á þingi og það rætt út frá
átaksverkefni SÍM, Við borgum myndlistar-
mönnum, sem vakti marga til umhugsunar
um mat á og afstöðu til starfsframlags lista-
manna og stöðu þeirra neðst í lífkeðju list-
anna,“ segir Birta Guðjónsdóttir.
Yean Fee Quay, verkefnastóri við Lista-
safn Reykjavíkur, nefnir þetta sem eitt það
markverðasta í íslensku menningarlífi á
árinu: „Þetta er stórt stökk fram á við, sem
Jóna Hlíf Halldórsdóttir, formaður Sam-
bands íslenskra myndlistarmanna, er upp-
hafsmaðurinn að, og skref í átt að þeirri
fagmennsku sem margir myndlistarmenn
eiga að venjast í öðrum borgum.“
Pönkbylgja í
tölvuleikjagerð
Það tóku eflaust einhverjir eftir því að ris-
inn í íslenska tölvuleikjaheiminum CCP
tilkynnti á fyrri hluta ársins um besta af-
komuár fyrirtækisins frá stofnun, en fyrir-
tækið skilaði 21,5 milljóna dollara hagn-
aði árið 2016. Það var hins vegar ekki síður
merkileg sú sprenging sem varð í íslensku
tölvuleikjagrasrótinni.
„Oft er sagt að pönkið sé dautt, en sama
er ekki hægt að segja um pönk tölvuleikja-
geirans. Ég vildi að ég gæti valið einhvern
einn leik sem leik ársins, en það sem hef-
ur heillað mig hvað mest á þessu ári er
ekki endilega leikirnir sjálfir, heldur frekar
magnið og fjölbreytileikinn. Í ár gerðist
nefnilega eitthvað merkilegt sem olli því að
„pönk-tölvuleikjahönnun“ sprakk út og óx
margfalt á við síðustu ár. Maður var van-
ur að sjá undir 5 leiki á ári í það mesta, í ár
erum við að tala um marga tugi,“ segir Jó-
hannes Gunnar Þorsteinsson, tölvuleikja-
smiður og einn álitsgjafa DV, og nefnir
sérstaklega leikjasmiðjur Samtaka leikja-
framleiðanda, IGI, sem ástæðu fyrir grósk-
unni.
Bókaskattur og
framtíð íslenskunnar
Í ár hefur mikið verið rætt um stöðu og
framtíð íslenskunnar. Flestir virðast sam-
mála um að hinum stafræna og snjalltækja-
vædda samtíma fylgi hættur fyrir íslenska
örmálsvæðið. Bóklestur minnkar og í stað-
inn dvelur fólk æ stærri hluta dagsins í
ýmsum snjalltækjum með erlent viðmót.
Krafan um aðgerðir jukust í aðdraganda
kosninga og í stjórnarsáttmála sínum svör-
uðu nýju ríkisstjórnarflokkarnir kallinu,
annars vegar með loforði um aðgerðáætl-
un til að gera íslenska tungu gjaldgenga
í stafrænum heimi og hins vegar afnámi
virðisaukaskatts á bækur. Reyndar sáust
þess engin merki í fyrsta fjárlagafrumvarpi
stjórnarinnar og bókmenntafólk þurfti að
draga í land með lofsyrði sem þau höfðu
látið falla í garð Lilju Alfreðsdóttur og
Framsóknarflokksins.
Nokkrir álitsgjafar DV nefna þetta sem
helstu umræðu ársins á sviði menningar-
innar. Silja Aðalsteinsdóttir segir þá til-
kynningu nýrrar ríkisstjórnar að afnema
virðisaukaskatt á bókum vera þá mark-
verðustu á árinu: „Ég fyrirgef stjórnvöldum
aldrei ef þau standa ekki við þetta loforð.
Að skattleggja bókaútgáfu á einum minnsta
bókamarkaði heimsins er eins og að leggja
tekjuskatt á framlög til björgunarsveita,“
segir Silja.
Stefán Baldursson er á svipaðri línu og
segir þetta hafa verið tvær ánægjulegar
menningarpólitískar ákvarðanir. „Annars
vegar niðurfelling á virðisaukaskatti á bæk-
ur sem er löngu tímabær. Eitthvað babb
virðist hafa komið í bátinn á síðustu dögum
en vonandi dregst ekki úr hömlu að hrinda
þessu í framkvæmd. Hitt er hin ánægjulega
ákvörðun stjórnvalda að koma íslensku í öll
stafræn samskiptatæki og veita til þess 450
milljónum á næsta ári. Við erum í gríðar-
legri hættu á að þjóðin tapi niður móður-
máli sínu ef ekki er gripið til róttækra að-
gerða. Þessi ákvörðun er ein þeirra og getur
skipt sköpum fyrir þjóðarheill.“
Trollað í
Feneyjum
Á myndlistarsviðinu hefur
verið gróska í gjörningum
og leikrænni listsköpun.
Verk Egils Sæbjörnssonar
á Feneyjavíæringnum var
þannig uppfullt af leik og lífi.
Hann tilkynnti með viðhöfn að
það væri ekki hann sjálfur heldur
tröllin Ūgh og Bõögâr sem myndu sjá
um listsköpunina. Þetta leikrit skilaði sér
svo í verkum í ýmsum miðlum og form-
um: þarna voru myndbands-skúlptúrar,
skartgripir, ilmvatn, tónlist, samfélagsmið-
laglens og svo framvegis.
Birta Guðjónsdóttir, myndlistarkona og
sýningarstjóri, segir vinsældir og velgengni
Egils í Feneyjum hafa verið eitt af því sem
stóð upp úr á myndlistarsviðinu á árinu:
„Sýning hans þar var valin ein af fimm eða
tíu áhugaverðustu sýningum tvíærings-
ins af helstu listmiðlum heims. Hún dró
að sér mikinn fjölda gesta og er enn einn
siguráfanginn í ferli Egils, og eykur auk
þess hróður annarra íslenskra myndlistar-
manna.“
Tónlistarsenan
flutt til LA
Áhugi heimsins á Íslandi er ekki bara
bundinn við náttúruna sem skýtur kollin-
um ennþá reglulega upp í kvikmyndum
og sjónarpsþáttum. Áhuginn á íslenskri
list utan landsteinanna virðist heldur ekk-
ert vera að minnka. Í vor var til að mynda
haldin vegleg listahátíð tileinkuð íslenskri
tónlist á vegum fílharmóníu Los Angel-
es-borgar. Krútt- og klassískutónlistarsenu
landsins var flogið út á einu bretti og vakti
hátíðin mikla athygli.
Stefán Baldursson, fyrrverandi þjóðleik-
hús- og óperustjóri, nefnir hátíðina sem
Blússandi góðæri, bókaskattur og #Metoo