Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2017, Qupperneq 68
68 menning Áramótablað 29. desember 2017
Bryndís Schram
ritstjorn@dv.is
Leikhús
Hafið
Höfundur: Ólafur Haukur Símonarson
Leikstjóri: Sigurður Sigurjónsson
Leikarar: Þröstur Leó Gunnarsson, Elva Ósk
Ólafsdóttir, Guðrún S. Gísladóttir, Sólveig
Arnarsdóttir, Baldur Trausti Hreinsson,
Snorri Engilbertsson, Snæfríður Ingvars-
dóttir, Oddur Júlíusson, Baltasar Breki
Samper, Birgitta Birgisdóttir
Leikmynd og búningar: Finnur Arnar
Arnarson og Þórunn María Jónsdóttir
Lýsing: Ólafur Ágúst Stefánsson
Tónlist: Guðmundur Óskar Guðmundsson
Frumsýnt í Þjóðleikhúsinu 26. des. 2017
Þ
að ríkti ekki bara þessi
hefðbundni jólafiðringur
á göngum Þjóðleikhússins
á síðustu frumsýningu
ársins annan í jólum. Stemningin
var rafmögnuð – aldrei þessu vant
klæddust karlarnir stífpressuðum
svörtum buxum, voru með hvítt
um hálsinn og í þröngum jökk-
um, og konurnar státuðu öllum
skala tískunnar, ýmist í dragsíðum
svörtum kjólum eða knallstuttum
pínupilsum, sem ekkert gátu falið.
Það stóð eitthvað mikið til. Við
biðum öll í ofvæni. Sýning kvölds-
ins var til heiðurs leikskáldinu
góða, Ólafi Hauki Símonarsyni,
sjötugum.
Snertir kvikuna
Ólafur Haukur á glæsilegan feril
að baki. Hann hefur samið fjölda
leikrita, bæði fyrir leiksvið, út-
varp og sjónvarp. Hver man ekki
eftir Gauragangi eða Bílaverk-
stæði Bubba? Allt verk sem gengu
endalaust og öll þjóðin var farin
að kunna utanbókar. Að ég tali nú
ekki um söngtextana hans – Eniga
meniga eða Ryksugan á fullu, sem
Olga Guðrún gerði heimsfrægt á
sínum tíma.
Ólafur Haukur hittir alltaf í
mark og talar bara um það sem
máli skiptir. Textar hans eru ein-
faldir, rökvísir og oft miskunnar-
lausir. Hann er snillingur orð-
ræðunnar. Samtölin verða eins og
tónverk, þar sem aldrei er slegin
feilnóta. Maður má ekki missa af
einu orði. Á sinn einlæga og bein-
skeytta hátt tekst honum að snerta
kvikuna – gera okkur varnarlaus.
Og þannig er Hafið. Hvert orð
hefur djúpa merkingu og langa
sögu. Sögu þjóðar, því að Hafið er
ekki bara um venjulega fjölskyldu
í sjávarplássi og ómerkilegar erjur
hennar. Hafið er spegilmynd heill-
ar þjóðar – er og verður. Það fjallar
um græðgi, öfund og illsku – allar
lægstu hvatir manneskjunnar. Og
þó að Hafið hafi verið skrifað fyr-
ir tuttugu og fimm árum, þá er það
jafn ferskt og grimmt í dag og það
var þá. Hittir í mark – ef það er gert
af fagmennsku. Hafið er íslenskt
þjóðfélag í hnotskurn. Höfundur-
inn okkar Ibsen.
Þegar textinn er svona frábær
og maður má ekki missa af einu
orði, þá skiptir öllu að maður heyri
það sem sagt er á sviðinu. Jafnvel
Guðrúnu Gísladóttur – sem er al-
deilis stórkostleg í hlutverki Kötu
gömlu og hreytir út úr sér hverj-
um hatursfullum gullmolanum á
fætur öðrum – tekst ekki að láta
heyrast aftur á 13. bekk það sem
hún segir. (Ég hélt mér væri far-
ið að daprast heyrn, en ég heyrði
fleiri kvarta undan þessu). Svo var
líka með aðra leikara, einkum þá
yngri. Ef þeir töluðu ekki beint út
í salinn, þá missti setningin flug-
ið og dó í þykkum hliðartjöldun-
um og í gímaldinu þar á bak við.
Þetta er veruleg synd, því að það
er svo auðvelt að laga þetta, beita
röddinni, nota magann og hugsa
um fólkið á aftasta bekk á efri svöl-
um. Það er engu líkara en að leik-
listarnemar séu aðeins með hug-
ann við kvikmyndina, þar sem
hægt er að hvísla en heyrast þó.
Forneskjulegur ættfaðir
Nema hvað, sýningin fór hægt af
stað, það voru óþægilegar þagnir
hér og þar, eins konar hik á fram-
vindunni, sem lagaðist þó þegar á
leið. Kannski fannst okkur Þröstur
Leó full ungur til að leika Þórð,
forneskjulegan ættföður, sem
stjórnar öllu með harðri hendi
og er miskunnarlaus í svokallaðri
sérvisku sinni. En Þröstur Leó er
traustur leikari sem aldrei klikk-
ar, og að lokum erum við sann-
færð um að hann hafi tekið rétta
ákvörðun. Samúð okkar er öll með
honum, einkum þegar hann sýn-
ir mannlegan veikleika og lætur
vel að Kristínu, vinnukonunni og
barnsmóðurinni, sem hann hafði
aldrei gifst en bara sængað hjá í öll
þessi ár. Elva Ósk dregur upp skýra
og aðlaðandi mynd af hinni klass-
ísku íslensku húsmóður, sem sinn-
ir skyldum sínum í þögn og um-
ber allt og alla. Hún umber jafnvel
börn Þórðar, fordekruð og sjálf-
hverf sem þau eru. Þau eru sam-
ankomin í húsi föður síns yfir ára-
mótin. Aftur komin heim í þorpið,
þar sem allt snýst um fisk. Upp-
gjör í vændum. Faðir gerir upp við
börn sín. Þau bíða í ótta og ofvæni.
Elstur er Haraldur, sem aldrei
fór að heiman, en sér um dag-
legan rekstur fyrirtækis föðurins –
og hefur hagnast vel. Kona hans er
Áslaug, sem dreymir um að verða
rík og komast burt úr þessu öm-
urlega þorpi, burt, burt. Það sóp-
ar að Baldri Trausta og Birgittu í
þessum skrítnu hlutverkum, sem
verða æ farsakenndari, eftir því
sem fyrsta nótt ársins lengist og
vínið endist.
Hin systkinin tvö,
sem bæði fóru til
náms í útlöndum
– á kostnað föður-
ins – eru komin um
langan veg til fund-
ar við fjölskylduna.
Hvað er pabbi að
bralla núna?
Bráðfyndinn Snorri
Sólveig Arnardóttir er
skemmtilega töff í hlutverki
Ragnheiðar, kvikmyndagerðar-
konunnar sem yrkir ljóð i tóm-
stundum. Sólveig hefur þennan
galsafengna húmor og kemur til
leiks eldhress og kraftmikil. Það
gerir Guðmundur líka, maður
hennar, leikinn af Snorra Eng-
ilbertssyni. Guðmundur er alger
sveimhugi, stingur í stúf við alla
hina, enda kjörinn ræðumaður
kvöldsins. Að lokum varð Snorri
svo bráðfyndinn að fólk grét af
hlátri allt um kring.
Gústi bróðir er óráðin gáta.
Hann fór utan og átti að leggja
fyrir sig fiskifræði, en í raun er
hann bara píanóleikari á djass-
búllu í Berlín. Jafnvel búinn að
barna eina þýska, en er á sama
tíma ástfanginn af hálfsystur
sinni, Maríu, heima á Íslandi. Mér
fannst einhvern veginn að Oddur
Júlíusson – sem komst reyndar að
lokum mjög vel frá hlutverki sínu
sem Gústi bróðir – hefði kannski
passað betur í hlutverk Bergs,
fóstursonarins og sjóarans, sem
pabbi elskaði meira en sín eigin
börn. Oddur er ekta töffari í útliti,
þrekvaxinn og jarðbundinn. Og
þá hefði Baltasar Breki verið upp-
lagður í hlutverk Gústa, fínlegt yf-
irbragð, bóhemskur í útliti, lista-
maður, augljóslega aldrei migið í
saltan sjó.
María, hálfsystirin, ekki má
gleyma henni. Hún er lausa-
leiksbarnið, sem pabbi átti með
Kristínu – vinnukonunni, systur
mömmu – og kom í heiminn eft-
ir að mamma dó. Snæfríður Ingv-
arsdóttir smellpassar í hlutverk
hennar, glaðlynd, barnsleg, ein-
læg, falleg og fim. Og hvað hún
dansaði vel! Gaman.
Sýning sem á erindi
Sýningin lifnaði skyndilega við
eftir hlé. Þá fóru hlutirnir að ger-
ast. Áramótapartí í algleymi, all-
ir mígandi fullir og mismunandi
skemmtilegir, eins og gengur.
Pabbi lætur bíða eftir sér, er að
undirbúa uppgjörið. Hann hefur í
huga að hefna sín á börnum sín-
um, gera þau eignalaus.
En honum verður ekki kápan
úr því klæðinu. Dauðinn bíður á
næsta leiti.
Allt fer á uppboð, kvótinn seld-
ur, bátarnir brenndir, þorpsbúar
missa vinnuna. Þetta er saga þjóð-
ar.
Hvar stöndum við í dag?
Allt tæknilið Þjóðleikhússins á
hrós skilið. Leikmyndin er látlaus,
einföld – en skýr. Lýsing óaðfinn-
anleg, nákvæm og hvergi um of
né van. Búningarnir undirstrika
karakterana sem klæðast þeim og
segja okkur meira en orð fá lýst.
Og ekki má gleyma tónlistinni,
sem kom hvað eftir annað á óvart
með seiðandi djúpum tónum og
gerði okkur viðvart þegar höggin
dundu.
Siggi minn, til hamingju með
þetta afrek. Þessi sýning á erindi
og nýtur vonandi langra lífdaga. n
„Allt fer á uppboð,
kvótinn seldur,
bátarnir brenndir, þorps-
búar missa vinnuna.
Þetta er saga þjóðar.
Forneskjulegur ættfaðir Þröstur Leó leikur
ættföðurinn Þórð sem stjórnar öllu með harðri
hendi og er miskunnarlaus í sérvisku sinni. Upp-
gjör er í vændum þegar börnin snúa aftur í hús
föður síns í sjávarþorpinu.
Spegilmynd þjóðar Bryndís Schram
leikhúsgagnrýnandi segir Hafið vera íslenskt
samfélag í hnotskurn.
Okkar Ibsen