Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2017, Síða 78

Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2017, Síða 78
Vikublað 29. desember 2017 78 Afmælisbörn vikunnar Vel mælt „Einhvern tímann var talað um manninn sem musteri Guðs. Nú líkist hann mest hljóðveri þar sem hann þrammar um göturnar með heyrnartæki á höfði, segulband og útvarp í vasa og sífellt fleiri furður byrjaðar að ferðast með honum: sími, sjónvarp, geislaspilari, vasamyndavél, tölvur. - Pétur Gunnarsson – Vasabók Orðabanki Birtu: Kredda ekki sannprófa neitt! ef menn ljúga, þá það. ef þeir eru komnir upp með einhVerja kreddu, þá þess heldur! Úr íslensku orðabókinni Orðið kredda rekur uppruna sinn til latneska orðsins credo, sem þýðir að trúa eða „ég trúi“. Við notum hins vegar orðið „kredda“ þegar trúin er byggð á úreltu eða þröngsýnu viðhorfi sem þykir ekki við hæfi. Að vera kreddufastur eða kredduföst er sagt um fólk sem hangir fast í bókstafstrú og treystir sér ekki til að taka ákvarðanir sem eru byggðar á eigin dómgreind. Kredda er einnig notað um hjátrú, bábiljur og hvers konar hégiljur. Samheiti bull, hégilja, hérvilla, hindurvitni, hjátrú, kerlingabók, kerlingavilla, kredda 51 árs 51 árs 35 ára 63 ára jón gnarr Starf: Leikari og grínisti Fæddur: 2. janúar 1967 ingibjörg sólrún gísladóttir Starf: Stjórnmálakona Fædd: 31. desember 1954 björk jakobsdóttir Starf: Leikkona Fædd: 28. desember 1966 erna björk sigurðardóttir Starf: Fótboltakona Fædd: 30. desember 1982 Umbi og biskupinn ræða um kreddur og sannleiksgildi þeirra Umbi: En ef þeir taka sig til og ljúga mig fullan? Biskup: Ég borga spóluna. Bara að þeir ljúgi ekki í gegnum yður. Passa að fara ekki að ljúga sjálfur! Umbi: Einhvern veginn verð ég þó að sannprófa það sem þeir segja. Biskup: Ekki sannprófa neitt! Ef menn ljúga, þá það. Ef þeir eru komnir upp með einhverja kreddu, þá þess heldur! Gleymið ekki að fáir eru líklegir til að segja nema soldið satt; einginn mjög satt, því síður hreina satt. Töluð orð eru staðreynd útaf fyrir sig sönn og login. Þegar menn tala þá tjá þeir sjálfa sig hvortheldur þeir ljúga eða segja satt. Umbi: Og ef ég stend þá að lygi? Biskup: Tala aldrei illa um nokkurn mann í skýrslu. Munið að því sem logið er að yður jafnvel vísvitandi, það er oft merkilegri staðreynd en sönn saga sem menn segja í einlægni. Leiðréttið þá ekki, gefið ekki heldur um útleggíngar. Það er vor hlutur. Sá sem vill halda á sínu fyrir þeim, hann gæti þess að gánga ekki af trúnni sjálfur. Halldór Laxness: Kristnihald undir jökli, 2. kafli, síða 16
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.