Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2017, Blaðsíða 78
Vikublað 29. desember 2017 78
Afmælisbörn vikunnar Vel mælt
„Einhvern tímann var talað um
manninn sem musteri Guðs. Nú
líkist hann mest hljóðveri þar sem hann
þrammar um göturnar með heyrnartæki
á höfði, segulband og útvarp í vasa
og sífellt fleiri furður byrjaðar að ferðast
með honum: sími, sjónvarp, geislaspilari,
vasamyndavél, tölvur.
- Pétur Gunnarsson – Vasabók
Orðabanki Birtu: Kredda
ekki sannprófa neitt! ef menn ljúga,
þá það. ef þeir eru komnir upp með
einhVerja kreddu, þá þess heldur!
Úr íslensku orðabókinni
Orðið kredda rekur uppruna sinn til latneska
orðsins credo, sem þýðir að trúa eða „ég trúi“.
Við notum hins vegar orðið „kredda“ þegar
trúin er byggð á úreltu eða þröngsýnu viðhorfi
sem þykir ekki við hæfi. Að vera kreddufastur
eða kredduföst er sagt um fólk sem hangir
fast í bókstafstrú og treystir sér ekki til að
taka ákvarðanir sem eru byggðar á eigin
dómgreind. Kredda er einnig notað um hjátrú,
bábiljur og hvers konar hégiljur.
Samheiti
bull, hégilja, hérvilla, hindurvitni, hjátrú,
kerlingabók, kerlingavilla, kredda
51
árs
51
árs
35
ára
63
ára
jón gnarr
Starf: Leikari og grínisti
Fæddur: 2. janúar 1967
ingibjörg sólrún gísladóttir
Starf: Stjórnmálakona
Fædd: 31. desember 1954
björk jakobsdóttir
Starf: Leikkona
Fædd: 28. desember 1966
erna björk sigurðardóttir
Starf: Fótboltakona
Fædd: 30. desember 1982
Umbi og biskupinn ræða um kreddur og sannleiksgildi þeirra
Umbi: En ef þeir taka sig til og ljúga mig fullan? Biskup: Ég borga spóluna. Bara að þeir ljúgi ekki í gegnum
yður. Passa að fara ekki að ljúga sjálfur! Umbi: Einhvern veginn verð ég þó að sannprófa það sem þeir segja.
Biskup: Ekki sannprófa neitt! Ef menn ljúga, þá það. Ef þeir eru komnir upp með einhverja kreddu, þá þess
heldur! Gleymið ekki að fáir eru líklegir til að segja nema soldið satt; einginn mjög satt, því síður
hreina satt. Töluð orð eru staðreynd útaf fyrir sig sönn og login. Þegar menn tala þá tjá þeir sjálfa
sig hvortheldur þeir ljúga eða segja satt. Umbi: Og ef ég stend þá að lygi? Biskup: Tala aldrei illa
um nokkurn mann í skýrslu. Munið að því sem logið er að yður jafnvel vísvitandi, það er oft
merkilegri staðreynd en sönn saga sem menn segja í einlægni. Leiðréttið þá ekki, gefið ekki
heldur um útleggíngar. Það er vor hlutur. Sá sem vill halda á sínu fyrir þeim,
hann gæti þess að gánga ekki af trúnni sjálfur.
Halldór Laxness: Kristnihald undir jökli, 2. kafli, síða 16