Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2017, Blaðsíða 80
80 Áramótablað 29. desember 2017
Hvers vegna kyssumst við á miðnætti?
Þegar klukkan slær tólf á gamlárskvöld grípum við næstu manneskju og kyssum
hana gleðilegt nýtt ár. Helst þarf
þetta að vera sú eða sá heittelskaði
… en af hverju?
Stutta svarið er auðvitað einfald-
lega af því okkur finnst það gaman,
langa svarið er hins vegar gömul
hjátrú sem rekur uppruna sinn til
Englands og Þýskalands. Sú trú
byggir á því að fyrsta manneskjan
sem maður faðmar að sér á nýju ári
muni móta hamingju þína næstu
tólf mánuðina og þá er eins gott
að líka vel við viðkomandi. Helst
mjjööög vel því ef þér líkar bara
„aðeins“ við hana (eða hann) þá
er ekki líklegt að hamingjan fái að
blómstra það árið.
Hjátrúin byggir enn fremur á
því að ef þú kyssir ástmann þinn,
ástkonu eða elskhuga á miðnætti
muni allt árið hafa góðar fréttir í
för með sér, en ef þú ert alein/n
og hefur engan til að kyssa þá er
nokkuð ljóst að árið verði heldur
leiðinlegt, já, ef ekki bara nokkuð
lélegt.
Burtséð frá hjátrúnni þá kyssum
við samt fólkið okkar einfaldlega
af því okkur þykir vænt um það, og
þar fyrir utan finnst mörgum bara
nokkuð gaman að kyssast.
MússíMússí Það er
betra að hafa eitthvert
afbragðs eintak sér við hlið
þegar klukkan slær tólf.
„Hjátrúin byggir enn fremur á því að
ef þú kyssir ástmann þinn, ástkonu
eða elskhuga á miðnætti muni allt árið
hafa góðar fréttir í för með sér, en ef þú ert
alein/n og hefur engan til að kyssa þá er
nokkuð ljóst að árið verði heldur leiðinlegt,
já, ef ekki bara nokkuð lélegt.
vatnslosandi
Heilsudrykkur
UPPsKRIFT
INNIHALD
n 450 g vatnsmelóna, skorin í bita
n 2 tsk. fersk engiferrót, söxuð
n 2 tsk. fersk minta, söxuð
n Appelsínusafi ef vill, annars vatn
eða t.d. kókossafi.
AÐFERÐ
Þeyta melónu, engifer og mintu í
blandara. Hella í glas hálfa leið og
fylla upp með appelsínusafa ef vill.
Þannig verður drykkurinn lagskiptur
en það lítur vel út í glasi.
Athugið að víða má kaupa frosna
ávexti og vatnsmelóna í heilsudrykk
er ekki síðri þótt hún sé keypt frosin.
vatnslosandi Heilsu-
drykkur fyrir nýársdag
vatnsmelóna er afar
hreinsandi fyrir líkamann.
Hún er bólgueyðandi,
vatnslosandi og full af
a- og C-vítamínum en
a-vítamín er mikilvægt
fyrir augun og húðina.
einnig styrkir a-vítamín
frumuhimnurnar og gefur
þeim raka sem er mjög
styrkjandi fyrir ónæm-
iskerfið og hressandi
eftir áfengisneyslu.
Hér er uppskrift að
hreinsandi og vatnslos-
andi heilsudrykk sem er
tilvalinn í blandarann á
nýársdag.