Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2017, Síða 82
82 Áramótablað 29. desember 2017
Unglingar
ákærðir
fyrir morð
Fjórir unglingar í Ohio í
Bandaríkjunum, einn 13
ára og þrír 14 ára, hafa ver-
ið ákærðir fyrir morð eftir
heimskupör á brú í borginni
Toledo. Piltarnir vörp-
uðu þungum sandpoka af
brúnni með þeim afleiðing-
um að hann lenti á fram-
rúðu bifreiðar sem ekið
var undir brúna. Farþegi
í bifreiðinni, hinn 22 ára
Marquise Byrd, lést af völd-
um höfuðáverka sem hann
hlaut. Piltarnir eiga þunga
fangelsisdóma yfir höfði sér
verði þeir fundnir sekir.
Amman
verður ekki
tekin af lífi
Áströlsk kona, Maria Elvira
Pinto Exposto, hefur verið
sýknuð af ákæru um að hafa
flutt eiturlyf til Malasíu. Hver
sem gerist sekur um fíkni-
efnainnflutning til Malasíu
fær sjálfkrafa dauðarefsingu
og því má segja að Maria hafi
sloppið vel.
Hún var ákærð fyrir að
flytja 1,1 kíló af metam-
fetamíni til landsins árið
2014 en dómstóll komst að
þeirri niðurstöðu að Maria
hefði ekki vitað að fíkni-
efnin væru falin í farangri
hennar. Þrír Ástralar hafa
hlotið dauðadóm og verið
teknir af lífi í Malasíu fyr-
ir fíkniefnasmygl; Michael
McAuliffe árið 1993 og Kevin
Barlow og Brian Chambers
árið 1986.
7 karla myrti raðmorðinginn Aileen Wuornos á árunum 1989 og 1990. Wuornos var einn fyrsti kvenkyns fjöldamorðingi Bandaríkjanna. Wu-ornos starfaði sem vændiskona og bar við sjálfsvörn; sagði að mennirnir
hefðu nauðgað henni eða reynt að nauðga henni. Wuornos var tekin af lífi árið
2002. Myndin Monster með Charlize Theron var byggð á sögu Wuornos.
Paris var þrettán ára þegar hann lagði til systur sinnar með hníf
Þ
að er erfitt að gera sér í
hugarlund hvað fór í gegn-
um huga Charity Lee, ein-
stæðrar móður tveggja
barna, þegar lögregla hringdi í
hana þann 5. febrúar árið 2007.
Charity hafði skilið börn sín tvö,
soninn Paris Bennett, 13 ára, og
dótturina Ellu, 4 ára, eftir hjá barn-
fóstrunni meðan hún reyndi að sjá
börnum sínum – og sjálfri sér – far-
borða með vinnu sem gengilbeina
á skyndibitastaðnum Buffalo Wild
Wings í bænum Abilene í Texas.
Í haldi lögreglu
Það kom Charity í opna skjöldu,
vitandi að börn hennar væru í ör-
uggum höndum, þegar lögregla
hringdi í hana skömmu eftir mið-
nætti þetta örlagaríka kvöld. Lög-
reglumaður sagði henni að dótt-
ir hennar væri slösuð og brást
Charity við með því að óska eft-
ir að fá að hitta hana. Lögreglu-
maðurinn tjáði henni að það væri
ekki hægt, dóttir hennar væri látin.
Og þegar Charity spurði lögreglu-
manninn hvort sonur hennar væri
heill heilsu, svaraði hann stutt og
skorinort á þá leið að hann væri í
haldi lögreglu.
„Þá hætti ég að skilja þetta,“
segir Charity í heimildarmyndinni
The Family I Had sem nýlega var
sýnd á Investigation Discovery
í Bandaríkjunum. Hið óhugs-
andi hafði gerst; þrettán ára son-
ur Charity hafði lagt til litlu systur
sinnar með hníf og veitt henni
banvæna áverka.
Bráðgáfaður piltur
Sonurinn Paris var ekki beint
vandræðagemlingur þó hann hafi
þótt um margt sérstakur piltur.
Hann þótti bráðgáfaður piltur sem
átti mjög auðvelt með að læra. Fyrr
um kvöldið hafði hann sannfært
barnapíuna um að hún gæti farið
heim, hann gæti vel hugsað um sig
og litlu systur sína enda kominn
á táningsaldur. Síðar um kvöldið
náði hann í hníf og lagði til systur
sinnar með hníf þar sem hún
lá sofandi í rúminu sínu. Að því
loknu hringdi hann í vin sinn áður
en hann hafði sjálfur samband við
neyðarlínuna og tilkynnti morðið.
Langaði til að drepa
En hvað varð til þess að þessi
ungi drengur ákvað að fremja svo
skelfilegan glæp? Paris sagði í
fyrstu við yfirheyrslur hjá lögreglu
að hann hefði séð ofsjónir, systir
hans hefði breyst í einhvers konar
djöful og því hafi hann gripið hníf-
inn í sjálfsvörn. Síðar viðurkenndi
hann að það væri lygi, hann hefði
einfaldlega vaknað þennan dag
og langað til að drepa einhvern.
Ætlun hans hafi verið að drepa
systur sína, bíða svo eftir að móð-
ir hans kæmi heim og drepa hana.
Áætlanir hans hefðu farið út um
þúfur vegna þess að það var erf-
iðara en hann hélt að drepa systur
sína. Auk þess myndi móðir hans
aðeins þjást í 10 til 15 mínútur
ef hann myndi stinga hana, en
hún myndi þjást alla ævi ef hann
myndi þyrma henni, vitandi það
að Ella væri látin.
Vildi hefna sín á móður sinni
Í heimildarmyndinni kemur fram
að Paris hafi viljað hefna sín á
móður sinni. Sjálf hafði Charity
ekki átt sjö dagana sæla á sín-
um yngri árum. Hún ánetjaðist
heróíni ung en kom sér á beinu
brautina áður en hún eignaðist
Paris. Tólf árum síðar, skömmu
fyrir voðaverkið, féll hún og
fór að neyta eiturlyfja á nýjan
leik. Paris var móður sinni reið-
ur af þessum sökum og sagði að
hún hefði valið eiturlyfin fram yfir
börnin.
Í myndinni er þó ákveðnu ljósi
varpað á hugarheim piltsins sem
greindur var með siðblindu á
háu stigi. Hann viðurkenndi
að hafa glímt við svart-
ar hugsanir um morð
og ofbeldi frá átta ára
aldri en útrásina fékk
hann með því að
teikna ofbeldisfull-
ar myndir.
40 ára fangelsi
Paris var ákærð-
ur og dæmdur
fyrir morðið
á systur
sinni og var
niðurstað-
an 40 ára
fangelsi
fyrir þenn-
an barnunga
morðingja.
Hann er 24 ára
í dag og getur sótt
um reynslulausn eft-
ir tíu ár, árið 2027.
„Ég hef fyrirgef-
ið honum en
ef hann myndi
ganga laus væri
ég hrædd við
hann,“ segir hún
í myndinni og
bætir við að
það veiti
henni
ákveðna hugarró að vita af hon-
um í fangelsi. Sjálfur segir Paris í
myndinni að hann glími ekki við
geðræn vandamál; hann
hafi ákveðið að fremja þennan
glæp og hann taki fulla ábyrgð á
gjörðum sínum.
Þrátt fyrir allt sem á und-
an er gengið heimsækir Charity
son sinn reglulega. Hún eignað-
ist dóttur árið 2012 en kemur ekki
með hana í fangelsið. Lög í Texas
banna Paris að fá heimsókn-
ir frá einstaklingum undir átján
ára. Ástæðan er sú að hann var
dæmdur fyrir að drepa barn.
Charity ætlar að halda áfram að
heimsækja son sinn í fangelsið.
„Ég ætla ekki að vera móðir sem
yfirgefur barn sitt.“n
Systkinin Paris með systur sinni, Ellu, nokkru áður en ósköpin dundu yfir.
Með dóttur sinni Charity eignaðist dóttur árið 2012.
Lítill snáði Charity með Paris
þegar hann var nýfæddur.
Sakamál
Vaknaði einn daginn
og langaði að drepa