Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2017, Síða 88
88 fólk Áramótablað 29. desember 2017
É
g er á Facebook, þess vegna
er ég til.“ Hefði franski
heimspekingurinn og
stærðfræðingurinn René
Descartes verið uppi á okkar tím-
um er mögulegt að hann hefði
látið þessa setningu frá sér fara.
Til fróðleiks var Descartes kunn-
astur fyrir róttækan efa og þaðan á
hans frægasta setning rætur sínar:
„Ég hugsa, þess vegna er ég til.“
Fjölmiðlar birta á hverju ári
fréttir um fólk sem hefur fallið frá
á árinu. Það sem ekki hefur verið
fjallað um áður eru þeir sem hafa
fallið frá á Facebook. Þá er átt við
þá sem hafa ákveðið að loka Face-
book-síðum sínum. Í litlu samfé-
lagi eins og Íslandi þar sem nánast
öll þjóðin er á Facebook þykja það
tíðindi þegar fólk lokar síðu sinni.
Það jafnvel syrgir viðkomandi
eins og í tilfelli Brynjars Níelsson-
ar þingmanns. Sumir fögnuðu
dauða hans á Facebook á meðan
stærri hópur sá eftir þingmann-
inum sem var iðinn og oft fjör-
ugur á Facebook. Aðdáendum til
huggunar eru talsverðar líkur á
að Brynjar muni einn daginn rísa
upp frá dauðum. „Ég er á Face-
book, þess vegna er ég til.“ n
Þau hættu á
á árinu
Jónína
Benediktsdóttir
„Hæ hæ ekkert drama í
gangi hér eða „persónu-
árásir“, þessi fjölmiðill
minn er bara einfaldlega
„gjaldþrota“ því eig-
andinn fjárfesti um of“.
Þetta sagði Jónína Ben
sem ákvað að loka nú-
verandi Facebook-síðu
sinni. Ástæðuna sagði
hún vera að hún hafi
skrifað „tóma dellu“ und-
ir áhrifum áfengis á síð-
una og baðst hún afsökun-
ar á því.
Brynjar Níelsson Þingmaður Sjálfstæðisflokksins
ákvað af heilsufarsástæðum að hætta á Facebook. Brynjar sagði
samskipti á samfélagsmiðlinum vandmeðfarin. Kímnigáfa og skop-
skyn fólks mismunandi og sumir beri lítið skynbragð á kaldhæðni.
„Viðbrögðin geta því verið ansi harkaleg og jafnvel ógeðfelld.
Einn góður vinur minn sagði að ég gæti lagað það að mestu með
því að læra að nota alla þessa bros- og skeifukarla sem í boði eru.“
Hermann
Stefánsson
Rithöfundurinn og
ólíkindatólið hætti
á Facebook á árinu.
Hann hætti einnig
um stund í Rithöf-
undasambandinu
en gekk svo í það
aftur. Hann hefur
hins vegar ekki
látið sjá sig á ný á
Facebook.
Ragnar Bragason
Ragnar er einn besti leikstjóri
landsins. Hann ákvað að hætta á
Facebook fyrir skömmu til að fá
frið yfir jólin.
„Nei ég hætti mjög tímabund-
ið núna bara í aðdraganda jól-
anna. Það gerðist bara í fyrradag.
Hvað eruði að njósna? Það er
bara mjög tímabundið hjá mér.
Engar stórar ástæður á
bak við það heldur
en bara að fá frið í
aðdraganda jól-
anna.“
Jón Örn Arnarson Bestu ljóðin skora lágt í „like“ mæl-
ingum sagði ljóðskáldið Jón Örn Loðmfjörð, eða Lommi eins og hann er
oft kallaður, í viðtali við DV. Facebook-síða Lomma er lokuð og því litlar
líkur á „like“ fyrir Lomma.
Tómas
Møller
Tómas Møller
sem dæmdur var
fyrir að myrða
Birnu Brjáns-
dóttur lét loka
Facebook-síðu sinni
á meðan hann var í
varðhaldi. Líklega hefur
hann óskað eftir því við
lögmann sinn eða komið
skilaboðum áleiðis til ættingja
um að loka Facebook-síð-
unni.
Guðmundur Kjartansson
Guðmundur Kjartansson varð
Íslandsmeistari í skák. Hann
hvarf af samfélagsmiðlinum
og var sárt saknað af skák-
áhugamönnum. Hann hætti
til þess að öðlast meiri ró í lífi
sínu og ná þar með betri árangri
í skák. Það hefur ekki gengið eftir.
Jökull í Kaleo
Jökull Júlíusson er besti
söngvari landsins og
þenur raddböndin
fyrir eina vinsæl-
ustu hljómsveit
heims, Kaleo.
Hann hvarf af
Facebook í
ár. Hann er
hins vegar
virkur á
Instagram
þar sem
hann birtir
oft myndir af
sér berum að
ofan.
Robert Downey Robert Downey, sem
dæmdur var fyrir barnaníð og fékk síðar uppreist
æru, lokaði Facebook-síðu sinni þegar fjölmiðlar
greindu frá máli hans. Samkvæmt heimildum DV
opnaði hann aðra undir öðru nafni.