Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2017, Síða 92
92 fólk Áramótablað 29. desember 2017
Svarið
er já
Þau gengu í
hjónaband
á árinu 2017
Það er fátt yndislegra en þegar tveir
einstaklingar játa ást sína fyrir hvor
öðrum, vinum og vandamönnum. Á árinu
2017 gengu fjölmörg pör upp að altarinu,
hvort sem var í kirkju eða undir berum
himni og játuðu ást sína frammi fyrir
guði og mönnum. Hér eru nokkrir þekktir
einstaklingar sem settu upp hringa á árinu.
ragna@dv.is
Kristbjörg Jónasdóttir og
Aron Einar Gunnarsson
Brúðkaup ársins er 17. júní brúðkaup Krist-
bjargar Jónasdóttur, afrekskonu í fitness og
einkaþjálfara, og Arons Einars Gunnarssonar,
fyrirliða íslenska karlalandsliðsins í fótbolta
og leikmanns Cardiff í Hallgrímskirkju. Þau
eiga einn son.
Valdimar Víðisson og Sigurborg Geirdal
Valdimar Víðisson, skólastjóri í Öldutúnsskóla, og Sigurborg Geirdal
kennari giftu sig 10. júní. Valdimar hefur frá barnsaldri verið einlægur
aðdáandi þjóðargerseminnar Ragnars Bjarnasonar, sem að sjálfsögðu
tróð upp í veislunni, brúðhjónum og gestum til mikillar gleði.
Kristín Tómasdóttir og
Guðlaugur Aðalsteinsson
Kristín Tómasdóttir rithöfundur og Guð-
laugur Aðalsteinsson, auglýsingamógull í
Brandenburg, héldu glæsilegt sveitabrúð-
kaup í Borgarfirði 1. júlí.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir
og Hjalti Sigvaldason Mogensen
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og
nýsköpunarráðherra, og Hjalti Sigvaldason Mogensen lögmaður
giftu sig 19. ágúst í Akraneskirkju. Þau eiga tvö börn.
Hafdís Björk Jónsdóttir og Jón Jónsson
Jón Jónsson söngvari og Hafdís Björk Jónsdóttir tannlæknir giftu sig í Dómkirkj-
unni 1. júlí. Það var vinur Jóns, uppistandarinn Björn Bragi Arnarsson, sem kynnti
þau á sínum tíma og því vel við hæfi að hann væri veislustjóri í brúðkaupsveisl-
unni. Hjónin eiga tvö börn.
Oliver Luckett og Scott Guinn
Íslandsvinirnir Oliver Luckett og Scott Guinn giftu sig 17. júní í Grímsnesi og gaf
Hilmar Örn Hilmarsson þá saman. Hjónin hafa heillast af landi og þjóð og einu
fallegasta einbýlishúsi landsins, Kjarvalshúsinu á Seltjarnarnesi, sem þeir búa í.
Geir Ólafsson og Adriana Patricia Sánchez Krieger
Geir Ólafsson söngvari og Adriana Patricia Sánchez Krieger markaðsfræðingur giftu sig 20. ágúst í
Bústaðakirkju. Þau eiga eina dóttur.