Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2017, Blaðsíða 94
94 fólk Áramótablað 29. desember 2017
Ástin skýtur örvum
sínum í hjörtu fólks alla
daga, stundum blossar
upp sameiginlegt
ástarbál, samband
og sambúð með öllu
tilheyrandi: samkomum,
sólarlandaferðum,
börnum, óhreina tauinu,
samfélagsmiðlum,
ást og hamingju. Þessi
þekktu pör opinberuðu
samband sitt á árinu. DV
óskar þeim innilega til
hamingju með ástina og
hvort annað.
Ástin dugir að eilífu
Þau byrjuðu saman á árinu
Stundum er ástin hverful
Ástin, eins dásamlegt afl og hún er, endist ekki alltaf.
Ást milli einstaklinga getur kulnað af ýmsum ástæðum
eða jafnvel af engri ástæðu. Hér eru nokkur þekkt pör
sem slitu sambandi sínu á árinu.
Búin að flúra yfir fyrrverandi
Ellý Ármanns, eigandi Fréttanetid.is, og Steingrímur
Erlingsson bóndi, athafnamaður og fyrrverandi for
stjóri Fáfnis Offshore, eru hætt saman. Þau voru búin
að vera í sambandi í ár, en í viðtali í MAN í sumar sagð
ist hún alsæl með nýju ástina í lífi sínu. Athygli vakti
fyrir stuttu að hún hafði látið húðflúra nafn hans á
sig, án hans vitundar, en nú er sambandinu lokið og
Ellý búin að setja nýtt flúr yfir nafn Steingríms.
Single á þingi Kolbeinn Óttarsson Proppé,
þingmaður Vinstri grænna, og Hildigunnur Einars
dóttir, söngkona og kórstjóri, opinberuðu samband
sitt fyrr á árinu, en þau eru nú hætt saman.
Skildu sem vinir Rúrik Gíslason
knattspyrnumaður og Birgitta Líf Björnsdóttir,
framkvæmdastjóri World Class, voru saman í
fjögur ár og skildu fyrr á árinu sem vinir. Birgitta
Líf er nú í sambandi með Hinriki Inga Óskarssyni.
Markaðsfulltrúi á markaðnum
Heiðar Austmann, útvarpsmaður og markaðsfulltrúi, og
Stefanie Esther Egilsdóttir eru hætt saman. Parið var
búið að vera saman í nokkur ár og eiga eina dóttur saman.
Bláklædd saman Athafnamaðurinn og fyrrverandi fótboltamaðurinn Arnar Gunnlaugsson og María Builien Jóns dótt ir, sem
starfar í Arion banka, mættu saman bláklædd og glæsileg í brúðkaup Arons Einars og Kristbjargar í sumar.
Framinn vís saman Andrea
Röfn Jónsdóttir, fyrirsæta og verslunar
stjóri, og Arnór Ingvi Traustason, landsliðs
maður í fótbolta, eru ung og ástfangin.
Í viðskiptalífinu saman Rík h arður Daðason, hag fræðing ur og fjár fest ir, og
Edda Her manns dótt ir, sam skipta stjóri Íslands banka, hafa áhuga á viðskiptum og fótbolta saman.
Í stíl saman Gyða Guðmundsdóttir
læknir og Hjörtur Hjartarson fréttamaður
eru röndótt og glæsileg saman.
Í sporti saman Landsliðs
konan Sara Björk Gunnarsdóttir og Alex
ander Jura, sjúkraþjálfari hjá Wolfsburg,
kynntust í gegnum íþróttina, en Sara
spilar með Wolfsburg.
Í vellystingum saman
Ró bert Wessman, for stjóri Al vo gen,
og unn usta hans, Misska Kisska, nutu
lífsins saman á Barbados um jólin.
Á flugi saman Gríma Björg Thor ar
en sen flugfreyja og Skúli Mo gensen, forstjóri
og eigandi WOW air, eru fljúgandi flott saman.