Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2017, Side 96
96 menning - SJÓNVARP Áramótablað 29. desember 2017
Gerð meistaraverks
P
lan 9 From Outer Space,
Popeye, Showgirls og Isht-
ar eru meðal verstu kvik-
mynda sögunnar. Svo lé-
legar að þær hafa fengið költ-fylgi
sem þær eiga tæplegast skilið. Ein
mynd slær þeim þó öllum við og
það er The Room frá árinu 2003.
The Disaster Artist fjallar um gerð
þessarar lélegustu kvikmynd-
ar sögunnar sem jafnframt hef-
ur vakið svo margar spurningar í
gegnum tíðina.
Hjúpaður dulúð
The Room er langþekktasta af-
urð kvikmyndagerðarmanns-
ins Tommy Wiseau. Enginn veit
hvaðan þessi maður kom, hversu
gamall hann er eða hvernig hann
gat fjármagnað þetta verkefni.
Hann sagðist vera frá New Or-
leans en hreimur hans gefur
sterklega til kynna að hann sé frá
einhverju landi austan við járn-
tjald. Hann sagðist vera á þrí-
tugsaldri þegar hann leikstýrði
The Room árið 2013 en senni-
lega var hann á fimmtugsaldri.
Kvikmyndin kostaði sex milljónir
dollara (um 630 milljónir króna)
í framleiðslu og hann virtist hafa
dregið þá summu upp úr hatti
eins og kanínu.
The Disaster Artist er gerð eft-
ir bók sem Greg Sestero, sam-
starfsmaður Wiseau, skrifaði
ásamt blaðamanninum Tom
Bissell árið 2013 um gerð The
Room. Grínistinn Seth Rogen
keypti réttinn af bókinni og gerði
myndina í samstarfi við félaga
sinn, James Franco, sem leik-
stýrir og leikur Wiseau, og bróð-
ur hans Dave Franco sem leikur
Sestero.
Í myndinni fylgjumst við með
fyrstu kynnum Wiseau og Sestero
í leiklistarskóla í San Francisco,
hversu vel þeir ná saman en
einnig hversu litla möguleika
þeir áttu á að ná frama á sviði
leiklistarinnar á hefðbundinn
hátt. Þá ákveður Wiseau að fram-
leiða sína eigin mynd og Sestero
fær þar lykilhlutverk.
Sofandi að feigðarósi
Allt virðist ætla að ganga eðlilega
þangað til tökur hófust. Þá kom
glögglega í ljós hversu gjörsam-
lega óhæfur leikari, leikstjóri og
framleiðandi Wiseau var. Sestero
hefði mátt vita þetta fyrirfram þar
sem Wiseau talaði og hegðaði sér
á nokkuð einfeldningslegan hátt.
En þegar tækifærið til að leika í
stórri framleiðslu eins og Wiseau
gat boðið upp á gat hann ekki
sagt nei.
Persóna Wiseau er í raun allt í
öllu í The Disaster Artist og James
Franco leikur hann með stakri
prýði. Þessi persóna er reyndar
svo skrítin og ýkt að óvíst er hvort
hægt sé að leika hana illa. Hann
er hégómafullur, húmorslaus og
veruleikafirrtur en þó augljós-
lega vænsta skinn. Nema undir
álagi, þá hagar hann sér eins og
einræðisherra.
Myndin er nokkuð lengi að
fara í gang en þegar kemur að
tökunum sjálfum vaknar hún til
lífs og Franco fer að skína. Fram-
leiðslan leysist upp í hálfgerðan
farsa og enginn virðist vita út á
hvað hún gengur. Sérstaklega þar
sem Wiseu breytir sífellt hand-
ritinu. Erfiðlega gengur að ná al-
mennilegum tökum á honum
og undir lokin virðist tökuliðinu
vera nokkuð sama. Fæstir gera
sér þó grein fyrir hvers konar
lestarslys lokaafurðin verður.
Niðurstaða
Rogen og Franco eru augljóslega
að gera grín að hinum misheppn-
aða kvikmyndagerðarmanni en
þó ekki á ósmekklegan hátt. Þeir
eru augljóslega innst inni heillað-
ir af The Room, sögunni bak við
hana og hvernig hún náði viðlíka
költ-fylgi. Tommy Wiseau er líka
löngu búinn að sætta sig við hlut-
skipti sitt í kvikmyndaheiminum
og The Room er enn sýnd á mið-
nætursýningum fyrir fullu húsi
drukkinna gesta. Vandamálið við
The Disaster Artist er að hún bæt-
ir litlu við söguna. Það er einfald-
lega miklu skemmtilegra og meira
fræðandi að sjá frumafurðina og
heyra meistarann öskra: „Lisa,
you´re tearing me apart!“ n
Dave og James Franco Við tökur á myndinni
alræmdu.
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is
Kvikmyndir
The Disaster Artist
Leikstjóri: James Franco
Leikarar: James Franco, Dave Franco og Ari
Graynor
T
ímaritið Variety birti á
dögunum spá sína um
það hvaða myndir munu
hljóta náð fyrir augum
Óskarsverðlaunaakademíunn-
ar. Tilnefningar verða opinberað-
ar þann 23. janúar en sjálf Ósk-
arsverðlaunahátíðin, sú nítugasta
í röðinni, verður haldin 4. mars
næstkomandi.
Eins og venja er beinast augu
flestra að því hvaða myndir verða
tilnefndar sem besta myndin.
Að mati Variety koma eftirtaldar
myndir helst til greina: Dunkirk í
leikstjórn Christopher Nolan, Call
Me by Your Name í leikstjórn Luca
Guadagnino, The Florida Project
í leikstjórn Sean Baker, Get Out í
leikstjórn Jordan Peele, Lady Bird
í leikstjórn Gretu Gerwig, The
Post í leikstjórn Stephen Spiel-
berg, The Shape of Water í leik-
stjórn Guillerme del Toro og
Three Billboards Outside Ebb-
ing, Missouri í leikstjórn Martins
McDonagh.
Veðbankar virðast flestir vera
á því að að annaðhvort Dunkirk
eða Three Billboards Outside
Ebbing, Missouri hljóti verð-
launin á næsta ári. Síðarnefnda
myndin virðist hafa örlítið forskot
ef marka má þá veðbanka sem
blaðamaður skoðaði í vikunni.
Samkvæmt Variety munu
nokkuð kunnuglegir leikar-
ar berjast um tilnefningar sem
besti leikarinn. Hér má til dæm-
is nefna Denzel Washington fyr-
ir myndina Roman J. Israel Esq,
Daniel Day-Lawis fyrir Phanton
Thread, Gary Oldman fyrir Dar-
kest Hour og James Franco fyrir
The Disaster Artist. Hjá konun-
um má nefna Margot Robbie fyr-
ir I, Tonya, Meryl Streep fyrir The
Post og Frances McDormant fyrir
Three Billboards Outside Ebbing,
Missouri. n
Spáð velgengni Frances McDorm-
and fer með aðalhlutverkið í myndinni
Three Billboards Outside Ebbing,
Missouri.
Myndirnar
sem berjast
um Óskarinn
Tímaritið Variety birtir spá sína
nýtt og gott
Black Mirror, fjórða þáttaröð
Fjórða þáttaröðin af þessum frábæru
bresku vísindaskáldsöguþáttum fer í
loftið 29. desember. Fyrir þá sem ekki
þekkja til er hver þáttur sjálfstæður í
anda The Twilight Zone og gerast iðu-
lega í framtíðinni eða annarri vídd og eru
ádeila á nútímasamfélag og samband
mannfólks við tækninýjungar.
Dope
Heimildarþættir sem fjalla um heim eiturlyf-
ja eins og hann er í dag. Fíkniefnamarkaður-
inn er skoðaður frá öllum sjónarhornum, allt
frá heimi fíkilsins, salans og lögreglunnar.
Big Mouth
Teiknimyndaþættir sem minna örlítið
á South Park, Family Guy og slíkt efni.
Þættirnir fjalla um hóp táninga sem
þurfa að glíma við hormóna, kynþroska
og öllu sem því fylgir.
Rotten (Frumsýnt í janúar 2018)
Matur er skoðaður á sama hátt og morðmál
í þáttunum Rotten. Farið er ofan í saumana
á matarframleiðslu í Bandaríkjunum,
spillingarmál, matarsóun og hættan sem
getur leynst í unnum matvælum. Einblínt
verður á eina staka vöru í hverjum þætti, til
að mynda hunang, hvítlauk og kjúkling.
La Mante
Franskir spennuþættir sem fjalla um leit
lögreglunnar í París að raðmorðingja.
Lögreglan leitar til Jeanne Deber, annars
raðmorðingja sem er í haldi. Deber, eða
Le Mante, er leikin af Carole Bouquet
sem Bond-aðdáendur kannast við úr
myndinni For Your Eyes Only.
Trollhunters
Teiknimyndaþættir úr smiðju Guillermo
del Toro og Dreamworks. Þættirnir, sem
ætlaðir eru börnum á öllum aldri, fjalla um
ungan dreng sem kynnist samfélagi trölla
sem býr í bænum Arcadia án vitundar okkar
mannfólksins. Meðal þeirra sem ljá raddir
sínar í þáttunum eru Kelsey Grammer úr
Frasier og Anton Yelchin heitinn sem var
búinn að taka upp fyrstu tvær þáttaraðirnar
áður en hann lést.