Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2017, Page 99
fólk 99Áramótablað 29. desember 2017
heilbrigða fjölskyldu þar sem öllum líður vel. Ég er ríkur
maður eins og áður sagði, á þrjá dásamlega drengi af fjór-
um á lífi og átta gullfalleg barnabörn og dásamlega konu.
Það versta sem kom fyrir mig persónulega var að þurfa
að verða vitni að því að sjávarútvegsfyrirtækið HB Grandi
skyldi hætta starfsemi hér á Akranesi eftir hundrað ára
starfsemi hér og skilja landverkafólk eftir í átthagafjötrum
og sveitarfélagið í sárum.
Hvað varðar mitt persónulega líf þá voru það „mikil“ von-
brigði að hafa ekki náð að vinna annan flokkinn í meistara-
móti golfklúbbsins Leynis á Akranesi en ég lenti í öðru sæti
og stefni klárlega á að vinna flokkinn næsta sumar.
Reynir Traustason, fjölmiðlamaður og fyrrverandi ritstjóri DV
Þakklæti fyrir skilvirkt
heilbrigðiskerfi
Versta upplifun ársins var þegar yngsta barnabarnið mitt,
Bríet Emma Branolte, fékk skyndilega krampa og missti
meðvitund. Þetta gerðist heima hjá okkur hjónum þar sem
Bríet og foreldrar hennar búa tímabundið. Þegar stúlk-
an, sem er eins árs, fékk krampann var umsvifalaust hringt
í 112. Eftir þrjár mínútur var sjúkrabíll kominn á staðinn.
Barnið fékk strax viðeigandi meðferð og komst til meðvit-
undar. En á leiðinni á spítalann komst hún aftur í sama
ástand og var allt sett í gang til að bjarga litlu barni. Allt fór
vel að lokum. Bríet Emma sneri heim af spítalanum eftir
sólarhringsdvöl og ítarlegar rannsóknir. Líklegt er að þetta
hafi verið hitakrampi. En eftir situr léttir og þakklæti fyrir
heilbrigðiskerfi sem er svo skilvirkt.
Besta stund ársins var á Úlfarfsfelli þegar ég gekk í þús-
undasta sinn á fjallið. Ferðafélag Íslands taldi tilvalið að
halda vorhátíð á fjallinu í tilefni af 90 ára afmæli sínu og þús-
undustu tímamótunum. Úlfarsfell 1000 varð að veruleika.
Stuðmenn, Raggi Bjarna, Bjartmar Guðlaugsson, Valdimar,
Haukurinn og kór Skrefanna lögðu sitt af mörkum til að gera
viðburðinn að sannkölluðu ævintýri. Þyrla Landhelgisgæsl-
unnar mætti á svæðið með Ragga innanborðs. Markmiðið
var að ná 1.000 manns á fjallið en yfir 2.000 komu á hátíðina.
Þetta var ein magnaðasta stund ársins af mörgum góðum.
Tara Margrét Vilhjálmsdóttir, formaður
Samtaka um líkamsvirðingu
Erfið og súrrealísk reynsla
Versta reynslan á árinu voru eftirmál viðtals okkar Sindra
Sindrasonar um grasrótarráðstefnuna Truflandi tilvist í
mars. Hatrið og fordómarnir sem tröllriðu samfélaginu í
alveg heila viku á eftir voru gífurlegir og þetta var bæði erf-
ið og súrrealísk reynsla. En á sama tíma var þetta besta og
verðmætasta reynslan á árinu. Ég eignaðist nýja og dýr-
mæta vini og fékk góða áminningu um hvað ég á góða að.
Hugtökin „forréttindi“ og „fitufordómar“ voru nærri óþekkt
fram að þessu en allt í einu voru þau á allra vörum. Það má
því segja að þetta hafi verið öflugasta vitundarvakning lík-
amsvirðingarbaráttunnar hingað til.
Ágústa Eva Erlendsdóttir leikari
Best að eignast barn
Besta á árinu hjá mér í persónulega lífinu á árinu var að
sjálfsögðu að eignast mitt annað barn. Gott að enda annars
frábært ár á því. Hún kom í nóvember og þessar sex vikur
sem hún hefur verið með mér get ég ekki annað séð en að
hún sé alger snillingur eins og stóri bróðir hennar.
Margrét Friðriksdóttir frumkvöðlafræðingur
Vont að hryggbrotna
Það besta á árinu sem ég hef upplifað er án efa samtökin
sem ég stofnaði Náunginn – Hjálparsamtök fyrir heimilis-
lausa og fátæka, en við höfum fengið góðar móttökur. Það
gleður okkur mikið að sjá að það er loksins komin hreyfing
á málefni heimilislausra og borgin hefur lofað því að allir
verði komnir í öruggt skjól fyrir jólin.
Við í stjórn Náungans höfum náð að tala þá til sem neit-
uðu að fara í Víðinesið í upphafi og eru þeir komnir þang-
að núna og eru sáttir við þetta tímabundna úrræði sem er
byrjunarstig á varanlegu úrræði og fá að hafa gæludýrin
með sér sem er þeirra hjartans mál. Við munum svo halda
áfram að fylgja málunum eftir þangað til allir hafa fengið
varanlega lausn á sínum aðstæðum.
Það versta sem kom fyrir mig persónulega á árinu var
hestaslysið sem varð til þess að ég hryggbrotnaði. Ég er í
endurhæfingu í dag vegna þess hjá sjúkraþjálfara og mun
verða næsta árið.
Sema Erla Serdar, formaður Solaris
Baráttunni er ekki lokið
Árið 2017 hefur verið ansi viðburðaríkt hjá mér en það
sem stendur upp úr sem það besta á árinu, fyrir utan góða
heilsu, fjölskylduna, voffana og vini, er stofnun Solaris –
hjálparsamtaka fyrir hælisleitendur og flóttafólk á Íslandi
í janúar 2017 og sá mikli árangur sem við höfum á þessum
stutta tíma náð í að bæta stöðu og réttindi fólks á flótta sem
er hér á landi og býr við margvíslega neyð, skert réttindi og
þjónustu og jafnvel mannréttindabrot. Án góðs stuðnings
almennings hefði fátt af því sem við höfum gert orðið að
veruleika. Baráttunni er þó langt í frá lokið og mun halda
áfram á nýju ári.
Það sem stendur upp úr sem hið versta á árinu, fyrir
utan persónulega sorg, missi og aðra erfiðleika, eru enda-
lausar persónuárásir, jafnt á mig sem og fjölskyldu mína,
ítrekað netníð og annað áreiti, fordómar, hatursorðræða
og hótanir, stundum morðhótanir, sem því miður fylgir því
að ég berjist fyrir bættum kjörum og réttindum fyrir fólk á
flótta. Það er fyrst og fremst vegna uppruna míns, en það,
ásamt fjölmörgum öðrum dæmum sem til eru, segir okkur
að fordómar, öfgar og útlendingaandúð er vaxandi vanda-
mál í íslensku samfélagi. Það er mikilvægt að við bregðu-
mst öll við því og látum slíkt ofbeldi aldrei viðgangast.
Ég skipulagði í haust, fyrir hönd Æskulýðsvettvangsins,
metnaðarfulla og mikilvæga ráðstefnu um hatursorðræðu
í íslensku samfélagi. Um var að ræða fyrstu stóru ráðstefn-
una sem haldin hefur verið hér á landi um þetta hættulega
samfélagsmein og segja má að hún standi einnig upp úr
sem eitt af því besta á árinu. Hið sama má segja um ver-
kefnið hans Georg Leite, New Faces of Iceland, sem mér
hlotnaðist sá mikli heiður að taka þátt í. Um er að ræða
hrikalega flotta ljósmyndabók með mörgu flottu fólki sem
á það sameiginlegt að vera af íslenskum sem og öðrum
uppruna. Verkefni eins og þessi eru til þess fallin að vinna
gegn fordómum og útlendingaandúð og ég vil sjá meira af
slíku á nýju ári.
Halldór Auðar Svansson borgarfulltrúi
Erfitt að horfa upp á
þöggun og meðvirkni
Ég er að læra verkefnastjórnun í HR samhliða vinnunni
minni. Á vorönn þetta árið var námskeið sem snerist um
að framkvæma raunverulegt verkefni í þágu samfélagsmál-
efna. Minn hópur vann með samtökunum Hugarafli að því
að koma upp hlaðvarpi um geðheilbrigðismál. Það komst
í gang í samvinnu við Kjarnann, þættirnir heita Klikkið.
Það er alltaf gaman að sjá hugmyndir verða að veruleika og
þetta er auðvitað málefni sem ég brenn fyrir persónulega.
Þegar ég velti þessari spurningu fyrir mér tók ég eftir því
hvað vondir hlutir virðast sitja stutt í mér þessa dagana,
sem er nú bara gott mál. Ég get samt nefnt að það tók á mig
persónulega að horfa upp á augljósa þöggun og meðvirkni
með gerendum í tengslum við baráttu þolenda við að fá
svör um svokallaða uppreist æru. Ég fann til með þeim
þegar þær lýstu þjáningunum sem viðmót kerfisins olli
þeim. Við eigum langt í land sem samfélag þegar kemur að
skilningi á þessum reynsluheimi – og svo breyttist ekkert í
rauninni með nýrri ríkisstjórn.
Bergur Þór Ingólfsson leikari
Kona grét í fangi
Bergs á Austurvelli
Það besta sem gerðist árið 2017 er #höfumhátt. Við eign-
uðumst nýja vini sem verða órjúfanlegur hluti af lífi okk-
ar til frambúðar. Fólk steig fram sem hafði áður setið
inni með sögur sínar af brotum sem það hafði orðið fyr-
ir. Stúlkan sem faðmaði okkur fyrir utan Hlemm á Menn-
ingarnótt. Konan sem grét í fanginu á mér á Austurvelli.
Skeytin, stuðningurinn og sögurnar. Kerfið sem sagði okkur
að þegja þurfti að gjöra svo vel að hlusta og bregðast við.
Þagnarmúr var rofinn.
Það versta við árið 2017 var leyndar- og valdhyggjan.
Þolendum kynferðisbrota var sagt að þegja og fara með
bænirnar sínar. Fulltrúar stjórnmálaflokka gengu af fund-
um til að koma í veg fyrir að mál yrðu upplýst og gáfu í skyn
að fólk sem var að leita svara við einhverju óskiljanlegu
væri að beita ofbeldi. Æðstu ráðamenn reyndu að halda
almenningi óupplýstum með því að svæfa umræðuna
eða fela sig á bak við lög sem stóðust ekki. Tregðan og
ógagnsæið. Ástin á úr sér gengnu kerfi. Ekki tókst að koma
á lögum sem eiga að hindra að barnaníðingar gegni lög-
mannsstörfum.
Myrkur og ljós í lífi þekktra Íslendinga á árinu
n Sorg og gleði n Trúa á ástina n Perrar n Barneignir n Ást á ónýtu kerfi n Verður amma n Óvirðing við hinn látna n Erfitt að ná ekki að kveðja vinkonu