Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2017, Side 100
100 fólk Áramótablað 29. desember 2017
Edda Björgvinsdóttir leikkona
Hrakin út af eigin heimili
Það langbesta við árið 2017 var að ég eignaðist aftur heim-
ili eftir mikið flakk á milli staða mánuðum saman. Þær voru
líka ævintýri líkastar viðtökurnar sem kvikmyndin Undir tré-
nu og ég fengum eftir frumsýningu og umsagnir erlendra og
innlendra gagnrýnanda voru hreint út sagt ótrúlegar! Ferðin
til Feneyja á kvikmyndahátíðina frægu var eins og að detta
inn í ævintýramynd frá Hollywood (sem við fengum reynd-
ar að heimsækja síðar á árinu til að kynna myndina). Einnig
var sérlega skemmtilegt að byrja aftur að vinna í Þjóðleik-
húsinu eftir nokkurt hlé og sumarið færði mér ást og dásam-
legar samverustundir með börnunum mínum, fjölskyldum
þeirra og ómetanlegum vinum. Ég er lukkunnar pamfíll!
Það versta við árið 2017 var að vera hrakin út af mínu
gamla heimili af sveppum, pöddum, raka og fáeinum
leiðindaskjóðum! Það var líka fremur ónotalegt að þurfa
nokkrum sinnum að rifja upp sannindin: „Hurt people, hurt
people“ eða lauslega snarað: „meitt fólk, meiðir fólk“. Vinir
sorterast þegar þú nýtur velgengni. Þá tínast burt þeir sem
eiga erfitt með að samgleðjast og þurfa jafnvel að meiða, iðu-
lega af fyrrgreindri ástæðu, sem sagt þeir hafa verið meiddir
af öðrum. Það er auðveldara að rétta fram hjálparhönd þegar
einhver á bágt, en að hampa vinum þegar sólin skín á þá.
Ég er óendanlega þakklát fyrir hvatninguna og stuðn-
inginn frá stórum hluta hluta landa minna á árinu, en sé að
sama skapi eftir þeim vinum sem hafa horfið úr lífi mínu.
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps
Sögu og meistaranemi í viðskiptalögfræði
Aðför íslenskra stjórn-
valda að Útvarpi Sögu
Það sem var best hjá mér persónulega á árinu, var að taka
þá ákvörðun að fara í meistaranám í viðskiptalögfræði. Ég
var að ljúka nokkrum prófum núna og það er mjög góð
tilfinning og hressandi. Það er mikill erill sem fylgir starfi
útvarpsstjóra og stjórnanda fjölmiðils svo það er ákveðin
hvíld í því að einbeita sér að öðrum hlutum líka.
Það versta á árinu var að upplifa aðför íslenskra stjórnvalda
að fyrirtæki mínu. Ég er eina konan á Íslandi sem er eigandi
ljósvakamiðils en Útvarp Saga var sett á lista hjá Evrópuráðinu,
yfir þá fjölmiðla sem ætlað er að stundi meintan hatursáróður.
Þetta var gert án dóms og laga og allt í trúnaðarsamtölum sem
enginn fær að sjá. Útvarp Saga hefur aldrei fengið slíka kæru á
sig þannig að ákvörðunin var grimmdarleg og byggði á slúðri
og botnlausri meinfýsi. Vonbrigði mín voru þau að nánast
eingöngu konur í valdastöðum tóku þessa ákvörðun og komu
henni á framfæri fyrir hönd íslenskra stjórnvalda. Þær sömu
konur og segja núna metoo og boða kvennabyltingu og meiri
völd. Að svona skuli gerast á árinu 2017 veldur mér áhyggjum
og því ætla ég að fylgjast sérstaklega vel með Katrínu Jakobs-
dóttur í starfi og sjá hvort hún ætlar að viðhafa svona vinnu-
brögð áfram í boði íslenskra stjórnvalda.
Birgir Örn Guðjónsson (Biggi lögga)
Allt jákvætt
Árið sem er að líða hefur verið fáránlega viðburðaríkt og
skemmtilegt fyrir mig persónulega og þess vegna er af
mörgu að taka þegar maður á að velja það sem var best. Ég
held samt að ég velji það að ég tók mér hálft árið í frí frá lög-
gunni og skellt mér í háloftin sem flugþjónn hjá Icelandair.
Það var ótrúlega jákvæður og lærdómsríkur tími þar sem ég
fékk að heimsækja marga nýja staði, kynnast heilmörgu al-
gjörlega frábæru fólki og fá innsýn inn í snilldarfyrirtæki.
Það er náttúrlega ósanngjarnt að láta mann reyna að rifja
upp eitthvað sem var verst fyrir mann á árinu. Ég er nefnilega
ekkert að grínast þegar ég segi að mér dettur bara ekkert í hug.
Ætli það sé ekki jákvætt? Ég gæti svo sem komið með fallegt
fegurðardrottningarsvar um stríð, ófrið og alls konar vesen, en
það væri bara klisja. Og út af öllum stríðunum þá get ég heldur
ekki nefnt það að fartölvan mín kvaddi þennan heim, sem var
bömmer. Slíkt væri hégómi. Mér sýnist því bara þetta svar stefna
í að verða það versta sem komið hefur fyrir mig á árinu 2017.
Birgitta Jónsdóttir skáldkona og fyrrv. þingmaður Pírata
Hlakkar til að verða amma
Tengsl við annað fólk er eitt það mikilvægasta í lífi sérhvers
manns. Ég og dóttir mín höfum djúpstæð tengsl og því var
það svo að ég vissi vegna draumfara að hún væri að búa til
litla mannveru í líkama sínum áður en hún sagði mér frá
því. Vitneskjan um litla bumbubúann er með sanni það
besta sem ég upplifði á þessu ári sem er að líða. Hlakka svo
óendanlega mikið til þess að verða amma.
Það versta á þessu ári var að ekki tókst að koma í verk
öllu því sem við vorum búin að vera að vinna að á þinginu
út af óvæntu þingrofi. Ég horfi núna á meira en átta ára
vinnu með fjölda fólks verða að engu og það er óendanlega
sorglegt. Nýjar leikreglur eru nauðsynlegar til að sagan haldi
ekki áfram að endurtaka sig. Nýja stjórnarskráin inniber slík-
ar breytingar. En ég óttast að við fáum ekki þessar breytingar
fyrr en eftir næstu skakkaföllin í landsmálunum. Þangað til
þá munum við halda áfram að byggja samfélag á sandi.
Valur Grettisson, rithöfundur og ritstjóri Reykjavik Grapevine
Stjórnmálamenning á Íslandi
á pari við þá bandarísku
Það var töluverður áfangi í mínu lífi þegar leikrit eftir skáld-
sögu minni, Gott fólk, var frumsýnd Þjóðleikhúsinu. Þá var
ekki verra að leikritið hlaut tvenn Grímuverðlaun, annars
vegar fyrir besta leikstjórn hjá Unu Þorleifsdóttur, og svo fyrir
bestan leik í aðalhlutverki karla. Þá sýndi #meetoo-byltingin
einnig hversu þarfur efniviður leikritsins var, enda var fjallað
um blæbrigði kynferðisofbeldis sem sjaldnast er kært.
Sennilega þegar hálfvitavæðing stjórnmálanna varð algjör
eftir að Donald Trump tók við völdum. Þá má segja að stjórn-
málamenningin á Íslandi hafi verið á pari við bandaríska stjórn-
málamenningu og eyðilagði nokkurn veginn fyrir manni haustið
með falsboðum sem enduðu með því að sögulegar sættir urðu
á milli VG og Sjálfstæðisflokksins. Sættir, sem ég held að ég geti
fullyrt, að enginn vitiborinn kjósandi hafi beðið sérstaklega um.
Snorri í Betel
Réttlátir dómar Guðs
Allt samverkar þeim til góðs sem trúir! Dauðsfall tengdaföður
míns var eitt af því sem flokkast til þess versta sem við bar. Við
vorum bæði nánir og góðir vinir. Hann bjó á heimili okkar í ára-
tug. Ég var viðstaddur síðasta andvarpið. Allt tekur þetta á en
undarlegt er samt að síðustu viku þá komu barnabörnin hans og
kvöddu með vinsemd og virðingu. Sorgin kom íklædd vináttu
og eftirsjá. Það gleðilega má nefna sölu á húsi mínu til góðs fólks
sem ég er afar þakklátur fyrir að hafa átt viðskipti við. Að kynnast
ungu fólki sem á kafla í ævisögu minni er mér gleðigjafi.
Það jók á gleði mína að vinna skaðabótamálið við Akureyrar-
bæ vegna ólögmætrar uppsagnar úr Brekkuskóla. Samt bar
skugga þar á. Ég taldi mig eiga rétt til þeirra bóta sem ég krafðist
enda reiknað út af tryggingafræðingi. Það jók á sorg mína sú af-
staða Akureyrarbæjar að áfrýja og halda áfram ranglátu máli.
Kannski fæ ég betri bætur fyrir bragðið og má því gleðj-
ast í voninni að réttlátir dómar eru í hendi Guðs og verði
enn eina ferðina mér til bóta! Þannig hefur árið boðið upp
á gott og slæmt en „allt breytist í blessun um síðir“.
Erna Ýr Öldudóttir blaðamaður á Morgunblaðinu
Afi gekk Ernu í föðurstað
Ég hef verið alveg sérlega heppin þetta árið jafnvel þótt
áföll hafi einnig dunið yfir. Ég stofnaði tvö fyrirtæki á ár-
inu með aðstoð traustra vina. Þar með er fræjunum að við-
skiptastórveldi mínu og félaga minna sáð og það gengur þó
hægt fari sökum anna hjá öllum hlutaðeigandi.
Frumkvöðullinn, fjölmiðlafrömuðurinn og kjarnorku-
konan Arnþrúður Karlsdóttir bauð mér að vera með viku-
legan útvarpsþátt á Útvarpi Sögu. Í vor sótti ég svo um og
fékk vinnu sem blaðamaður hjá Árvakri, nánar tiltekið á
fréttadeild Morgunblaðsins.
Morgunblaðið gæti jafnast á við að vera blaðamannaskóli
Íslands sökum þess hve mikið af metnaðarfullu og vönduðu
fólki, mörg með áratuga reynslu, vinnur þar baki brotnu við
að færa lesendum fréttir og hvaðeina fróðlegt og skemmtilegt.
Ég hef hvergi fundið betri líkamsrækt, með meiri líkams-
virðingu og skemmtilegri tónlist en súludans, fyrir utan hvað
það eru glaðar, sterkar, flinkar og skemmtilegar stelpur í
þessu. Það fer engum sögum af því enn hvenær ég get farið
að sýna eða vinna fyrir mér á súlunni en gleðin og bætt heilsa
og álfakroppurinn gera mig hamingjusama. Afi minn sem
gekk mér í föður stað og ól mig upp féll frá í byrjun október.
Hann var 96 ára og saddur lífdaga en ég missti eina föðurinn
sem ég þekkti. Þrír aðrir ættingjar og fjölskyldumeðlimir féllu
frá á árinu, síðan í maí. Í samanburði við þetta er annað sem
fór úrskeiðis ekki þess virði að minnast á það.
Ég hef enn ekki haft krafta í að skrifa minningargreinar
eða hugsa of mikið um þessa atburði, til þess voru þeir of
margir og snerta mig of djúpt. Jólahátíðin nú verður með
öðru og rólegra sniði en áður, ef til vill mun tíminn nýtast
til að minnast og sakna að þessu sinni.
Gunnar Lárus Hjálmarsson tónlistarmaður
Ældi á gangstéttina
við Trump Tower
Best var að komast aftur til Finnlands og hitta þar stráka
sem ég var að spila og túra með rétt upp úr 1990. Ég var
þarna á frumsýningu myndar númer tvö um finnsku pönk-
arana í PKN og kom fram í eftirpartíinu. Svo fór ég í eitt al-
heitasta sána sem ég hef farið í og kom heim alslakur.
Ekkert gríðarlega vont henti mig á árinu en ég var ansi
aumingjalegur úti í New York þangað sem ég fór til að sjá tón-
leika með Ringo Starr og Billy Joel. Ég hlýt að hafa étið eitr-
að grænmeti á salatbarnum í Whole Foods því ég fékk þessa
hressilegu matareitrun og ældi eins og múkki á gangstéttina við
Trump Tower. Ég hélt ég væri orðinn góður en þá tók þetta sig
upp aftur og ég ældi út allt herbergið á YMCA-hótelinu, ef hótel
má kalla. Ég var settur í nýtt herbergi og var þar að mestu til friðs.
Logi Einarsson þingmaður og formaður Samfylkingarinnar
Ég mun leggja mig fram
Það besta er að fjölskyldan hefur verið heilsuhraust og ég hef
átt því láni að fagna að fylgjast með börnunum mínum vaxa