Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2017, Page 101

Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2017, Page 101
KYNNING Mynd: hugmyndiradhollustu.is Veganúar – vinsælasta áskorun nýs árs Veganúar er viðburður, eða áskorun, sem haldinn er í janúarmánuði ár hvert og hefur það að markmiði að vekja fólk til umhugsunar um áhrif neyslu dýra- afurða og kynna kosti vegan-fæðis fyrir heilsu, umhverfi og dýravernd. Veganúar er hluti af alþjóðlegri Veganuary-hreyfingu sem hófst í Englandi í janúar 2014 og hefur hreyfingin nú náð til margra landa. Samtök grænmetisæta á Íslandi hafa staðið fyrir þessari árlegu Veganú- ar-áskorun síðan 2015 og verður því Veganúar 2018 í fjórða skipti sem áskorunin er haldin hérlendis. Með- al þess sem er á dagskrá Veganúar 2018 eru fræðslufundir, málþing og kvikmyndasýning. Skorað er á þátt- takendur að neyta eingöngu vegan grænmetisfæðis í janúarmánuði og upplifa af eigin raun hversu gefandi, heilsueflandi og auðvelt það getur verið. Núna stendur þér til boða að taka þátt í Veganúar – frábær leið til að byrja nýtt ár. Kynningarfundur um Veganúar verður haldinn í Bíó Paradís miðvikudagskvöldið 3. janúar kl. 20.00. Hvers vegna vegan? Það eru margar og fjölbreyttar ástæður fyrir því að fólk gerist vegan. Fyrir flesta er dýravernd aðalhvatinn. Suma langar að líða betur og hafa jákvæð áhrif á jörðina. Aðrir sækj- ast eftir árskoruninni en margir nota Veganúar sem áramótaheit og líta á mánuðinn sem heilsusamlega byrjun á árinu. Við það að gerast vegan í einn mánuð upplifir þú nýjar víddir í mat- argerð og aukna líkamlega og and- lega vellíðan. Vegan er ekki kál í öll mál Veganúar er ekki endilega heilsuátak, sykur og hveiti er t.d. vegan og það er fullt af snakki og nammi vegan án þess þú vitir það, (t.d. Oreo, margt dökkt súkkulaði, Svart doritos og flest snakk). Það er hægt að fá safaríka veganborgara og franskar á flestum veitingastöðum bæjarins og pitsur með vegan osti (eða án osts, kemur á óvart að hann þarf ekki). Það verða tilboð frá veitingastöðum á síðunni veganuar.is og þar verður margt fróðlegt og girnilegt að sjá. Aðalstyrktaraðilar veganúar í ár eru verslanir Nettó, sem bjóða upp á mjög gott úrval vegan matvara, og Landsbankinn, sem veitti Samtökum grænmetisæta samfélagsstyrk til verkefnisins. Fræðsla um vegan – hvernig á að komast í gírinn? Flestir sem eru vegan hafa horft á eftirtaldar þrjár heimildamynd- ir: Cowspiracy, sem fjallar um áhrif dýraafurða-iðnaðarins á umhverfið og náttúruna, Forks Over Knives fjall- ar um heilsusamlegan ávinning þess að vera vegan, og Earthlings fjallar um aðbúnað dýra í iðnaðinum. Einnig eru margar bækur gagn- legar, t.d. Eating Animals eftir Jonathan Safran Foer, How Not To Die eftir Michael Greger M.D og Animal Liberation eftir Peter Singer. Til að koma sér í gírinn er gott að losa sig við alla matvöru með dýra- afurðum fyrir áramót, annaðhvort með því að klára hana eða gefa hana. Þá er kjörið að sækja matarplan á vefsíðuna veganuar.is og kaupa í matinn eftir því. Hægt er að fá sér vegan sponsor (stuðningsaðila) sem fer með út í búð, kaupir inn með þér og eldar jafnvel með þér. Hægt er að sækja um vegan sponsor á veganu- ar.is eða á kynningarfundinum í Bíó Paradís 3. janúar. Þá er skemmtilegt að fylgjast með Veganúar-snappinu en þar er nýr að- ili að miðla upplýsingum og fræðslu daglega í janúar. Allir sem hafa áhuga á að taka þátt eru velkomnir á kynningarfund Veganúar í Bíó Paradís miðviku- daginn 3. janúar kl. 20.00. Benjamín Sigur- geirsson, formaður samtakanna, og Valgerður Árnadóttir framkvæmdastjóri tóku við samfélags- styrk Landsbankans. Veganismi er lífsháttur þar sem leitast er við að útiloka og forðast – eftir fremsta megni – hagnýtingu og ofbeldi gagn- vart dýrum, hvort sem það á við um fæðu, fatnað, skemmt- un eða aðra neyslu.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.