Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2017, Síða 101
KYNNING
Mynd: hugmyndiradhollustu.is
Veganúar –
vinsælasta áskorun nýs árs
Veganúar er viðburður, eða áskorun, sem haldinn er í janúarmánuði ár hvert og
hefur það að markmiði að vekja fólk til
umhugsunar um áhrif neyslu dýra-
afurða og kynna kosti vegan-fæðis
fyrir heilsu, umhverfi og dýravernd.
Veganúar er hluti af alþjóðlegri
Veganuary-hreyfingu sem hófst
í Englandi í janúar 2014 og hefur
hreyfingin nú náð til margra landa.
Samtök grænmetisæta á Íslandi hafa
staðið fyrir þessari árlegu Veganú-
ar-áskorun síðan 2015 og verður því
Veganúar 2018 í fjórða skipti sem
áskorunin er haldin hérlendis. Með-
al þess sem er á dagskrá Veganúar
2018 eru fræðslufundir, málþing og
kvikmyndasýning. Skorað er á þátt-
takendur að neyta eingöngu vegan
grænmetisfæðis í janúarmánuði og
upplifa af eigin raun hversu gefandi,
heilsueflandi og auðvelt það getur
verið.
Núna stendur þér til boða að taka
þátt í Veganúar – frábær leið til að
byrja nýtt ár. Kynningarfundur um
Veganúar verður haldinn í Bíó Paradís
miðvikudagskvöldið 3. janúar kl. 20.00.
Hvers vegna vegan?
Það eru margar og fjölbreyttar
ástæður fyrir því að fólk gerist vegan.
Fyrir flesta er dýravernd aðalhvatinn.
Suma langar að líða betur og hafa
jákvæð áhrif á jörðina. Aðrir sækj-
ast eftir árskoruninni en margir nota
Veganúar sem áramótaheit og líta á
mánuðinn sem heilsusamlega byrjun
á árinu.
Við það að gerast vegan í einn
mánuð upplifir þú nýjar víddir í mat-
argerð og aukna líkamlega og and-
lega vellíðan.
Vegan er ekki kál í öll mál
Veganúar er ekki endilega heilsuátak,
sykur og hveiti er t.d. vegan og það
er fullt af snakki og nammi vegan án
þess þú vitir það, (t.d. Oreo, margt
dökkt súkkulaði, Svart doritos og flest
snakk). Það er hægt að fá safaríka
veganborgara og franskar á flestum
veitingastöðum bæjarins og pitsur
með vegan osti (eða án osts, kemur
á óvart að hann þarf ekki). Það verða
tilboð frá veitingastöðum á síðunni
veganuar.is og þar verður margt
fróðlegt og girnilegt að sjá.
Aðalstyrktaraðilar veganúar í ár
eru verslanir Nettó, sem bjóða upp á
mjög gott úrval vegan matvara, og
Landsbankinn, sem veitti Samtökum
grænmetisæta samfélagsstyrk til
verkefnisins.
Fræðsla um vegan – hvernig á að
komast í gírinn?
Flestir sem eru vegan hafa horft
á eftirtaldar þrjár heimildamynd-
ir: Cowspiracy, sem fjallar um áhrif
dýraafurða-iðnaðarins á umhverfið
og náttúruna, Forks Over Knives fjall-
ar um heilsusamlegan ávinning þess
að vera vegan, og Earthlings fjallar
um aðbúnað dýra í iðnaðinum.
Einnig eru margar bækur gagn-
legar, t.d. Eating Animals eftir
Jonathan Safran Foer, How Not
To Die eftir Michael Greger M.D og
Animal Liberation eftir Peter Singer.
Til að koma sér í gírinn er gott að
losa sig við alla matvöru með dýra-
afurðum fyrir áramót, annaðhvort
með því að klára hana eða gefa
hana.
Þá er kjörið að sækja matarplan
á vefsíðuna veganuar.is og kaupa í
matinn eftir því. Hægt er að fá sér
vegan sponsor (stuðningsaðila) sem
fer með út í búð, kaupir inn með þér
og eldar jafnvel með þér. Hægt er að
sækja um vegan sponsor á veganu-
ar.is eða á kynningarfundinum í Bíó
Paradís 3. janúar.
Þá er skemmtilegt að fylgjast með
Veganúar-snappinu en þar er nýr að-
ili að miðla upplýsingum og fræðslu
daglega í janúar.
Allir sem hafa áhuga á að taka
þátt eru velkomnir á kynningarfund
Veganúar í Bíó Paradís miðviku-
daginn 3. janúar kl. 20.00.
Benjamín Sigur-
geirsson, formaður
samtakanna, og
Valgerður Árnadóttir
framkvæmdastjóri
tóku við samfélags-
styrk Landsbankans.
Veganismi er lífsháttur þar
sem leitast er við að útiloka og
forðast – eftir fremsta megni
– hagnýtingu og ofbeldi gagn-
vart dýrum, hvort sem það á
við um fæðu, fatnað, skemmt-
un eða aðra neyslu.