Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.2017, Page 104
Áramótablað 29. desember 2017
68. tölublað 107. árgangur Leiðbeinandi verð 999 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000
Gleðilegt
nýtt ár!
Auðvelt að versla á byko.is
-30% AF HARÐPARKETI -30% AF FLÍSUM -30% AF HÁÞRÝSTI-DÆLUM
-30% AF EINHELL RAFMAGNSVERKFÆRUM -40% AF HOUSE OF YARN
GARNI -40% AF PLASTBOXUM -30% AF POTTUM OG PÖNNUM -30% AF
BARNABÍLSTÓLUM -40% AF GLÖSUM, BOLLUM OG KÖNNUM -30% AF HUNDA-
OG KATTAMAT -30% AF MYNDARÖMMUM -40% AF SPILUM OG LEIKFÖNGUM
-40% AF KLUKKUM -40% AF JÓLAVÖRU -30% AF LJÓSUM - 30% AF LOFTAÞILJUM
-30% AF MOTTUM OG DREGLUM -40% AF BAÐFYLGIHLUTUM
-30% AF BÍLAHREINSIVÖRUM -30% AF ÖRYGGISSKÓM -30% AF ÁLTRÖPPUM OG
STIGUM -30% AF CAT VINNUSOKKUM -30% AF JÁRNHILLUM -30% AF TRANEMO
VINNUFÖTUM -40% AF KAFFI- OG MATARSTELLUM
VALDAR VÖRUR Á ENN BETRI AFSLÆTTI!
Komdu og gerðu góð kaup!
BÚMM!
KA
VÁ!
Vélarvana
þingmaður
n Snemma á fimmtudags-
morgun barst Landhelgis-
gæslunni tilkynning um
vélarvana fiskibát um tvær
sjómílur vestan við höfnina
á Rifi. Björgun bátsins gekk
hratt og vel fyrir sig án þess að
teljandi hætta væri á ferðum.
Um var að ræða bátinn Kára
SH-78, sem er í eigu Sigurðar
Páls Jónssonar. Sigurður Páll,
sem náði nýlega kjöri á Al-
þingi fyrir hönd Miðflokksins,
var þó ekki um borð í bátnum
heldur tveir starfs-
menn hans. „Ég
hef ekki farið á
sjó síðan í haust.
Ég er orðinn
landkrabbi,“
sagði alþingis-
maðurinn í
samtali við
DV.
Greta Salóme
komin í æfinga-
búðir í Taílandi
n Söngfuglinn og fiðlusnill-
ingurinn Greta Salóme er ný-
lent í Taílandi, ásamt kærasta
sínum, Elvari Þóri Karls-
syni, og þremur öðrum. Þar
hyggjast þau stunda æfingar í
bootcamp/fitness-æfingabúð-
um næsta mánuðinn.
„Við gerðum þetta á sama tíma
í fyrra og þetta er bara með því
besta sem ég hef gert,“ segir
Greta Salóme. „Ég fúnkera ekki
vel í svona algjöru fríi og þetta
er geggjuð leið til að sameina
frí og æfingar.“
Þetta er í annað sinn sem
Greta Salóme er í búðunum,
en hún var þar í fyrra líka og
byrjaði þá á nýársdag. Æfingar
eru alla daga í um
þrjá klukkutíma á
dag og utan æf-
inga ætla Greta
Salóme og vin-
ir hennar að
skoða og njóta
alls þess sem
Taíland hef-
ur upp á að
bjóða.
Jakkinn hefur komið ríkulega við sögu í lífi Almars
A
lmar Atlason, sem varð
þjóðþekktur fyrir tveim-
ur árum þegar hann varði
viku nakinn í kassa, leit-
ar logandi ljósi að leðurjakkanum
sínum. Hann segir á Facebook-
síðu sinni að jakkanum hafi verið
stolið á skemmtistaðnum Húrra
um miðjan mánuð. Almar og jakk-
inn, sem er svartur mótorhjóla-
jakki, eiga sér saman langa sögu
og vonar hann að þeirri sögu ljúki
ekki nú.
„Þessi jakki hefur fylgt mér nán-
ast hálfa ævina. Ég var í þessum
jakka þegar mamma hjólaði fram
hjá mér 13 ára að spreyja anar-
kistamerki á rafmagnskassa í El-
liðaárdalnum (þar lauk graffiti-
ferli mínum sama dag og hann
byrjaði). Ég var í þessum jakka
þegar ég fór fyrst heim með stelpu.
Ég var í þessum jakka þegar ég
fattaði að AC DC hefði aldrei hætt
að vera uppáhalds hljómsveitin
mín og ég var í þessum jakka þegar
Sigurgeir skildi við eiginkonuna
mína. Ég var í þessum jakka þegar
Bubbi Morthens sagði mér að fara
í meðferð á Ísafirði og ég var í þess-
um jakka þegar ég fór í meðferð 3
árum seinna,“ segir Almar.
Almar segir að hafi einhver tek-
ið jakkann í misgripum þá væri
hann mjög þakklátur ef viðkom-
andi skilaði honum. Hafi einhver
stolið jakkanum þá er sverði hans
að mæta. „Ef þið tókuð hann í mis-
gripum er það ekkert stress en væri
yndislegt að fá hann aftur. Ef þið
tókuð hann af því hann er geggjað
töff er það heldur ekkert mál ef ég
má fá hann aftur. En ef ég sé ykkur
að sporta uppáhalds leðurjakkan-
um mínum á götum Reykjavíkur
samviskubitslaust, þá er spurning
hvort maður dragi fram sverðið,
poti létt í öxlina á viðkomandi og
segi: „hey, ég held þú sért í jakkan-
um mínum“,“ segir Almar. n
hjalmar@dv.is
Almar í kassanum leitar að jakkanum
Almar í kassanum Almar leitar nú að jakkanum.