Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.08.2017, Blaðsíða 8
VETTVANGUR
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20.8. 2017
Ég minnist þess að hafa gengiðút af nefndarfundi á Alþingiþegar krafist var trúnaðar
um mál sem ég taldi að trúnaður
ætti ekki að ríkja um. Ég sagði að
væru mér færðar upplýsingarnar á
fundinum myndi ég ekki gangast
undir trúnað. Þeir sem í hlut áttu
vildu við svo búið ekki leysa frá
skjóðunni og ákvað ég þá að ganga
af fundi. Gerði ég opinberlega grein
fyrir þessari afstöðu minni. Um-
ræðuefnið á fundinum var orku-
verð.
Í vikunni gerðist hins vegar sá
furðulegi atburður að út af fundi
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar
Alþingis gengu nefndarmenn sem
vildu ekki fá vitneskju um efnis-
þætti máls sem var til umfjöllunar!
Í þessu átti að vera fólgin einhvers
konar prinsipafstaða, nefnilega að
mótmæla því að upplýsingarnar
sem átti að reiða fram hefðu þýð-
ingu – og ef þá einhverja, þá væru
þær beinlínis afvegaleiðandi og ekki
til þess fallnar að stuðla að óhlut-
drægri nálgun. Þannig skildi ég
þetta.
Málefnið var uppreist æru ein-
staklings sem brotið hafði alvarlega
á börnum og unglingum en hafði
öðlast endurnýj-
aðan rétt sem
lögmaður fyrir
tilstuðlan
stjórnvalda.
Nú skal játað
að málið er
margslungið.
Í fyrsta lagi
hljómar undar-
lega að þeir að-
ilar sem eiga að
taka upplýsta
ákvörðun um hugsanlega endur-
skoðun á lögum vilji ekki fá á sitt
vinnsluborð allar upplýsingar sem
málið varðar. Í mínum huga er
þetta í hæsta máta óábyrgt. Það
mál sem um ræðir hefur valdið
straumhvörfum í þjóðfélagsumræð-
unni og hlýtur í því ljósi að þurfa að
skoðast sérstaklega.
Í öðru lagi má um það deila hvort
yfirleitt sé rétt að krefjast leyndar
um einhverja þætti þessa tiltekna
máls og þá sérstaklega hverjir
skrifuðu undir meðmæli þess efnis
að viðkomandi einstaklingur yrði
gerður laus allra mála.
Á þessu stigi er ekki úr vegi að
leiða hugann að grundvallarspurn-
ingu: Skipta leikendur og gerendur
í kerfinu einhverju máli, hverjir
þeir eru, nöfn þeirra og kennitölur?
Hér vegast á tvö sjónarmið.
Í fyrsta lagi er ekkert kerfi án
nafns og kennitölu. Ekkert kerfi
þrífst án gerenda – án þess að ein-
hverjir láti það þrífast með verkum
sínum. Ekkert alræðiskerfi hefði
þannig mátt starfrækja án þeirra
sem báru það uppi með gjörðum
sínum. Í þessum skilningi getur
enginn hlaupist undan siðferðilegri
ábyrgð sinni.
Á hinn bóginn er einnig hægt að
koma sameiginlegri siðferðilegri
ábyrgð á herðar einstaklinga að
ósekju. Frægur að endemum varð
Landsdómur sem vildi láta einn
mann axla pólitíska ábyrgð á stefnu
sem hlotið hafði lýðræðislegt heilsu-
farsvottorð í kosningum. Annað
dæmi er tvískinnungur þeirra sem
samþykkja lög og reglur um hælis-
leitendur en gagnrýna síðan þá sem
ætlað er það hlutverk að framfylgja
þeim.
Varðandi upp-
reist æru, sem
svo er kölluð,
hafa menn kom-
ið sér saman um
ákveðið fyrir-
komulag. Til að
það fái gengið
upp þarf að full-
nægja forms-
atriðum, að fyrir
liggi meðmæli
og að tilteknir
aðilar staðfesti með undirskrift
sinni að ferlið sé á þann veg sem
lög og reglur kveða á um. Sé þann-
ig litið á málið hætta nöfn og kenni-
tölur að skipta máli og gætu vissu-
lega verið afvegaleiðandi í almennri
umræðu um fyrirkomulagið.
Hitt er nú orðið morgunljóst, að
barátta þeirra sem vilja breytt fyr-
irkomulag hefur skilað árangri.
Fyrir þeirra tilstuðlan virðist nú
vera vilji til að breyta lögum þannig
að barnaníðingur geti aldrei öðlast
rétt til að gegna varðstöðu í réttar-
kerfinu. Þegar upp er staðið er
þetta það eina sem hefur raunveru-
lega þýðingu.
Þegar þessum sigri er náð má
segja að annað sé fremur til þess
fallið að þjóna gægjuþörf og löngun
til að geta haft þá til sýnis sem
mundað hafa penna sinn í þessu
ógæfumáli og þar með axlað þá
ábyrgð sem í reynd hvíldi á okkur
öllum sem samfélagi.
Um einstaklingsábyrgð
og samábyrgð
’Það hljómar undarlegaað þeir aðilar sem eigaað taka upplýsta ákvörðunum hugsanlega endur-
skoðun á lögum vilji ekki fá
á sitt vinnsluborð allar
upplýsingar sem málið
varðar. Í mínum huga er
þetta í hæsta máta óábyrgt.
Morgunblaðið/Þórður
Úr ólíkum
áttum
Ögmundur Jónasson
ogmundur@althingi.is
Margt bar á góma á Facebook.
Gunnar Lárus Hjálmarsson –
Dr. Gunni: „Fíla að vinna innan um
túrista. Það er hægt að bulla í þeim
og fræða um hitt og þetta og þeir
gapa bara og eru fegnir að einhver
lókal nennir að tala við þá. Ímynda
mér að þetta sé svona svipað og að
vinna á sambýlum. (Plís ekki neinn
verða brjáluð/aður
að ég sé að van-
virða túrista, fatl-
aða, eða fatlaða
túrista) …“
Guðmundur
Andri Thorsson rithöfundur:
„Öldum saman var merki íslensku
þjóðarinnar útflattur þorskur með
kórónu, sem átti rætur að rekja til
Hamborgarkaupmanna um alda-
mótin 1500. Mörgum Íslendingum
var geysilega illa við merkið og
skáru upp herör gegn því undir for-
ystu Sigurðar málara á 19. öld. Þessi
táknmynd útflutnings og verðmæta-
sköpunar í sjávarútvegi – skreiðin –
þótti bændunum
hér á landi svívirði-
leg og frámunalega
niðurlægjandi; þeir
heimtuðu fálka
þegar alþingishúsið
var reist og urðu miklar deilur um
málið og fóru svo í Heimskringlu og
fundu landvættirnar þar í Ólafs sögu
Tryggvasonar. Sum sé: bændum er
illa við táknmyndir sem gera sjávar-
útvegi of hátt undir höfði.“
Einar Scheving slagverksleik-
ari vill fá sjómannsmyndina aftur á
Sjávarútvegshúsið.
„Fyrst fór sem
fór, er þetta þá
ekki bara spurning
um Gunnlaug
Scheving? Eða
kannski ljósmynd eftir Jón Kaldal,
eða mynd eftir einhvern samtíma-
listamann … Þótt það væri ekki
nema af prinsip-ástæðum þá á að
mála þennan vegg aftur. Áfram líf og
litir – nóg er af grámyglu!“
AF NETINU
og svo margt, margt fleira!
Austurvegur 69 - 800 Selfoss // Lónsbakk i - 601 Akureyr i // Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir
Sími 480 0400 // jotunn@jotunn.is // www.jotunn.is
Aukahlutir fyrir fjórhjól
Aukahlutir á fjórhjól á hagstæðu verði
Áhaldafestingar SkyggniFarangurskassar
Active Liver stuðlar að
eðlilegum efnaskiptum
Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna
Heilbrigð melting
Inniheldur:
• Kólín sem stuðlar að:
- eðlilegum fituefnaskiptum
- viðhaldi eðlilegrar starfsemi lifrarinnar
• Mjólkurþistil og ætiþistil sem talin eru
stuðla að eðlilegri starfsemi lifrar og galls
• Túrmerik og svartan pipar