Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.08.2017, Blaðsíða 31
Vafalítið er þó að þegar landfræðileg yfirráð ISIS
á stórum svæðum í Írak og Sýrlandi verða endur-
heimt mun grunnur þessara samtaka veikjast mjög.
Þegar til lengri tíma er horft mun það einnig draga
úr getu þeirra til að skipuleggja hermdarverk ann-
ars staðar. En þetta gerist hægt og mun jafnvel
aldrei nást með öllu.
Óleystur vandi
Því miður höguðu fyrirmenni ESB og einstakra
ríkja þess sér glannalega og ábyrgðarlaust þegar
ákvarðanir voru teknar um að hleypa aðkomufólki
varanlega inn fyrir landamærin, að svo miklu leyti
sem þau eru enn til staðar. Afleiðingar yfirþyrmandi
stefnuleysis og þróttleysis þessara ríkja verða ekki
lagfærðar í bráð.
Það var kallað á það að fólk í milljónatali stefndi
sér í lífsháska til að ná fótfestu á álfunni opnu. Mjög
stór hópur fólks er í miklum vandræðum á megin-
landi Evrópu og er þar í sífellt meiri óþökk þeirra
sem eru þar fyrir.
Miklu stærri hópur er geymdur innan gaddavírs-
girðinga í Tyrklandi, Grikklandi og á Ítalíu og svo
víðar í minni skömmtum. Þetta eru milljónir manna.
ESB greiðir Tyrkjum milljarða evra á ári fyrir að
halda fólki, sem taldi sig velkomið til Evrópu og
hafði ástæðu til, við þessar aumu aðstæður, sem eng-
inn endir er á. Lítið land eins og konungsríkið Jórd-
anía var eitt sárafárra Arabaríkja sem brugðust við
af ábyrgð. En það er nú að kikna undan þeirri byrði
sem nálega milljón flóttamenn eru fámennu ríki.
Þar og annars staðar innan flóttamannagirðing-
anna er fólk fullt vonbrigða yfir „svikum Evrópu“
sem af sögulegri fljótfærni hafði opinberlega boðið
allt þetta fólk velkomið til sín, en reyndi svo að
skella í lás við nefið á því. Vonbrigði, reiði og niður-
læging í bland við eilífðar ömurleika er kröftug upp-
eldisstöð þess sem Evrópuríkin þurfa síst á að halda.
Þessar hrjáðu milljónir innan girðinganna eru
óneitanlega hluti af mannkyni veraldar. Það er þó
ekki víst að þær liggi yfir ávarpi píratans Halldórs
Auðar Svanssonar, oddvita í meirihluta borgar-
stjórnar Reykjavíkur. Og jafnvel þótt það gæfi sér
tíma til, bíðandi í biðröðunum í 40 stiga hita eftir
vatns- og matarskammtinum sínum, að glugga í
ávarpið, þá er óvíst að það eigi eitthvað sökótt við
Donald Trump. Hann stóð ekki fyrir „vorhreingern-
ingunum“ sem settu allt í öngþveiti í Líbíu, Túnis,
Egyptalandi og Sýrlandi. Fyrsta „hreina vinstri-
stjórnin“ stóð að því innan NATO að knýja með valdi
til stjórnarskipta og breytinga, og ýta undir ólgu í
löndunum og borgarastyrjöld í Sýrlandi, sem er ein
hin mannskæðasta á síðari tímum.
Litið sér nær
Á Íslandi eru innflytjendamálin vita stjórnlaus.
Táknmynd þess er að milljarða vantar upp á að ný-
samþykkt fjárlög um það efni standist. Hvernig í
ósköpum má þetta vera? Og hvers vegna þessi ær-
andi þögn?
Á sama tíma er öllum fjölmiðlum send frétt frá
fjármálaráðherra um að ríkisstjórnin hafi ákveðið að
skylda ráðuneyti ríkisins til að greiða framvegis 10
milljóna króna áfengisgjald til ríkisins.
Bréfritari, sem ætíð vill leggja sitt af mörkum,
ákvað í tilefni dagsins að flytja fimmhundruð króna
seðil, sem hann var með í vasanum, yfir í rassvasann
og mun næstu þrjá mánuði flytja seðilinn vikulega á
milli vasanna í buxunum. Í lok tímabilsins mun hann
fara yfir bókhaldið og kanna hver staðan sé og
ákveða framhaldið með hliðsjón af því.
Samansúrrað stefnuleysi
En þótt sex mánaða gömul fjárlög séu með gat upp á
marga milljarða vegna innflytjendamálanna einna
hafa íslenskir „stjórnmálamenn“ aldrei rætt þennan
málaflokk af alvöru. Í þessum efnum, eins og svo
mörgum öðrum, eru allir íslenskir stjórnmálamenn í
sama flokknum. Það væri ósanngjarnt að segja að
þeir stæðu þar allir hreyfingarlausir. Öðru nær. Þeir
eru allir á harðahlaupum. Allir stefna þeir blindandi
að sama markinu, hengifluginu, sem þeir vita hvorki
né vilja vita hvar er.
Vissulega mætti ætla að þeir sem hlaupa svona
hratt og með bundið fyrir augu séu ólíklegir til að
ljúka hlaupinu. En menn geta ekki treyst því. Þegar
allir eru jafn einbeittir í að vita ekki hvað þeir eru að
gera skiptir þá engu þótt þar bruni blindingjar.
Vissulega detta þeir reglubundið hver um annan
þveran. En það er hluti af lögmálinu um að sælt sé
sameiginlegt skipbrot og breytir engu um aðferða-
fræðina.
Ónæmir fyrir dæmum
Nýlegir atburðir í Svíþjóð, Danmörku, Þýskalandi,
Belgíu, Tyrklandi, Frakklandi, Bretlandi og nú á
Spáni breyta heldur ekki neinu. Sá óþægilegi sann-
leikur, sem lengi var afneitað, um að lögregla,
sjúkralið og slökkvilið neiti að fara inn í fjölmörg
hverfi í þessum sómakæru lýðræðislöndum, nema
með góðum fyrirvara og í fylgd með þungvopnuðum
vígasveitum, breyta heldur engu. Blindingjaleikur-
inn sér til þess.
En það væri óneitanlega fróðlegt að fá svar við því
hverjum datt það í hug að eina leiðin til þess að kom-
ast að sæmilegri niðurstöðu, bæði í umboði og í þágu
almennings, væri að „valdamennirnir“ þreifuðu sig
áfram í heimatilbúnu niðamyrkri og fylgdu eingöngu
stígum sem sannreynt hefði verið annars staðar að
leiddu alla í ógöngur.
Mörgu þótti hnigna á hinum „myrku miðöldum“,
sem voru kannski ekki eins einsleitnar og yfirskrift-
in. En svarti dauði var ekki ónýtur lokadráttur slíkr-
ar myndar.
Hin heimamyrkvaða „öld okkar“ er önnur tíð og
stendur vonandi styttra við.
Ef einhver þeirra sem lofað hafa að gæta hags-
muna þjóðarinnar hefði uppurð til að opna augun,
jafnvel bara að píra aðeins, gætum við hugsanlega
enn náð að koma betur út úr sameiginlegum ógöng-
um en stefnir í. Einkum þó ef í framhaldinu myndu
augu nægjanlegra margra opnast fyrir því að við
eigum síst að öllu að hengja okkur aftan í þá sem
lakast hafa haldið á sínum málum síðustu misseri og
ár.
En meðal annarra orða. Hefur Benedikt
Jóhannesson sagt umheiminum frá því snilldar-
bragði sínu og ríkisstjórnarinnar að láta stofnanir
ríkisins framvegis færa 10 milljónir króna á milli
vasa þess?
Kannski ætti ríkisstjórnin að segja frá þessu í
ávarpi til mannkynsins. Vera má að Svíar myndu þá
láta Bensa fá nóbelinn í hagstjórn. Eða þá að kunn-
gera að þeir myndu hér eftir kalla hann Bensa Vasa,
sem í Svíþjóð er talinn enn meiri heiður.
Hver veit?
Kannski bílstjórinn.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
20.8. 2017 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31