Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.08.2017, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.08.2017, Blaðsíða 17
Tveir leikmenn Ís- lands í 14:2 leikn- um urðu seinna landsliðsþjálfarar. Jóhannes Atlason þjálfaði lið Íslands 1982 og 1983 en Guðni Kjartans- son var við stjórnvölinn1980 til 1981. Guðni var síðan aðstoð- armaður Tonys Knapp og Sieg- frieds Held á seinni hluta níunda áratugarins. Tveir þjálfuðu landsliðið Guðni Helgina eftir leikinn á Idræts- parken birtist þessi brandari á íþróttasíðu Morgunblaðsins: Daginn eftir ósigurinn mikla fyrir Dönum kom kona nokkur í Útvegs- bankann til að borga víxil. Hún seg- ir við gjaldkerann sem afgreiðir hana: „Voru það ekki fimmtán og tvö?“ Gjaldkerinn svarar annars hugar: „Nei, það var 14 og 2.“ Nei, 14 og 2 20.8. 2017 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17 Björgvin Schram, formaður KSÍ,var sem lamaður vegna úr-slitanna í Kaupmannahöfn eins og fleiri. „Ég er næstum orðlaus. Leikur þessi lagðist mjög illa í mig þegar í byrjun, og ég bjóst við, að Danir sigruðu með 4-5 marka mun. En að þeir skoruðu 14 mörk, tekur út yfir allan þjófabálk,“ sagði formað- urinn í samtali við Vísi. Björgvin, sem komst ekki utan með liðinu vegna anna, hélt áfram: „Ég myndi segja, að þetta væri mesta hneyksli íslenzkrar íþróttasögu. Lið, sem hefur fengið á sig 6 mörk í fyrri hálfleik, hefur ekki leyfi til að fá á sig 8 í þeim síðari. – Með þeirri varnar- taktík, sem þekkt er nú hjá öllum knattspyrnuþjóðum, á að vera unnt að koma í veg fyrir slíka útreið. Mér er algerlega óskiljanlegt, hvernig Ís- lendingarnir hafa látið danska liðið brjóta sig niður.“ Þegar blaðamaður spyr Björgvin, hvað verði gert í framhaldinu, svarar hann: „Ja, hvað gerir maður við krakka, sem hafa fallið á prófi? Send- ir þá heim og lætur þá læra betur. Ég held, að hér sé um eitthvað óeðlilegt að ræða. Að vísu vissi maður, að Dan- irnir væru fremri íslenzka liðinu, en að munurinn væri tólf mörk, það er eitthvað óeðlilegt.“ Fróðlegt er að bera saman ummæli formannsins og þjálfara liðsins, bæði í ágúst 1967 og síðar. Leikinn bar t.d. á góma í viðtali Morgunblaðsins við þjálfarann, Reyni Karlsson, þegar hann lét af störfum sem íþróttafulltrúi ríkisins árið 2003. „Styrkur Íslend- inga á þessum árum var vel skipu- lagður varnarleikur, en þannig leikur fór greinilega allt í einu í taugarnar á stjórnarmönnum Knattspyrnu- sambands Íslands.“ Þeir hefðu fyrir- skipað að sent yrði lið til Danmerkur, sem væri léttleikandi, og því verið horft til ungu mannanna sem staðið hefðu sig svo vel gegn Norðmönnum og Svíum fyrr um sumarið. Reynir er spurður, í viðtalinu, hvort hann hefði farið með sömu leik- menn utan ef hann hefði einn fengið að ráða för og svarið var afdráttar- laust. „Nei, ég hefði valið sterkt varn- arlið til að leika á Idrætsparken.“ Mjög ungt lið Fyrirliði landsliðsins gegn Dönum, Skagamaðurinn Eyleifur Haf- steinsson, var aðeins tvítugur og án efa einn yngsti fyrirliði A-landsliðs sem um getur á þessum tíma. Aldurs- forseti liðsins var Jón Stefánsson, varnarjaxl úr ÍBA á Akureryi, raunar langelstur – þrítugur. Meðalaldur liðsins, að Jóni frátöldum, var aðeins 21,4 ár og liðsmenn áttu þá að baki 2,8 landsleiki að meðaltali. Þetta kemur fram í Sögu landsliðs karla eftir Sigmund Ó. Steinarsson. Framarinn Helgi Númason kom við sögu í báðum mörkum Íslands gegn Dönum. Skoraði fyrra markið og átti stoðsendingu, eins og það væri líklega kallað í dag, áður en Hermann Gunnarsson gerði seinna markið, þótt sendingin á Hemma hafi verið strax eftir að þeir byrjuðu á miðju eftir ní- unda mark Dana. Helgi minnkaði muninn í 6:1 á 61. mínútu, aðeins einni mínútu eftir að Danir skoruðu. Fékk knöttinn á silf- urfati frá dönskum varnarmanni, komst einn gegn markmanninum og sendi boltann undir hann og í netið. Helgi sagði það heppnismark en hið síðara hefði hins vegar verið vel skipulagt. „Við vorum að byrja leikinn á miðju eftir enn eitt mark Dananna og við Hermann ákváðum að reyna að brjótast í gegn upp á eigin spýtur. Ég fékk boltann frá Hermanni og þóttist ætla að gefa til baka en sendi í stað- inn fram á við, á Hermann. Ég tók á rás og einhverra hluta vegna eltu Danirnir mig en Hermann fékk nóg pláss, lék upp völlinn og skoraði með fallegu skoti,“ sagði Helgi, sem var 21 árs og lék þarna síðari leik sinn af tveimur fyrir Íslands hönd. „Mesta hneyksli íslenzkrar íþróttasögu“ Æfing á Idrætsparken fyrir leik. Frá vinstri: Björn Lárusson, ÍA, Sigurður Dags- son, Val, Jón Stefánsson, ÍBA, Anton Bjarnason, Fram, Þórður Jónsson, KR, Helgi Númason, Fram, Hermann Gunnarsson, Val, og Baldur Scheving, Fram. Lengi getur vont versnað, gát-um við Íslendingarnir sagt, ervið yfirgáfum Idrætsparken í gærkvöldi. Mínúturnar virtust svo lengi að líða, að það minnti á dæmi- söguna um fuglinn, fjallið og eilífð- ina. Maður sökk lengra og lengra niður í sætið og var fegnastur þeirri stund er sænski dómarinn flautaði til leiksloka. En þá hafði knötturinn lent 14 sinnum í íslenzka markinu, en tvívegis í hinu danska.“ Þannig hófst umfjöllun íþrótta- fréttamannsins Atla Steinarssonar í Morgunblaðinu 24. ágúst, morgun- inn eftir leikinn. Atli hélt áfram: „„Áminning“, „reiðarslag“, eða „stórslys“ eru allt orð, sem mætti nota um þennan leik. Því miður gleymist hann seint. En Danir fengu loksins eitthvað til þess að gleðjast verulega yfir og þar sem þetta var 300. landsleikur þeirra, kom hinn mikli sigur sem óvænt af- mælisgjöf.“ Versti dagurinn Alfreð Þorsteinsson var ekkert að skafa af því í Tímanum: „Versti dag- urinn í sögu íslenzkrar knattspyrnu fyrr og síðar var í gær á Idræts- parken. Það var allt annað en gaman að horfa upp á landa sína leikna sundur og saman af danska landslið- inu,“ sagði Alfreð. „Hvað gerðist á Idrætsparken? Ég reikna með að fólk vilji fá skýringu á ósköpunum, en þessi úrslit voru engan veginn eðlileg. Fyrsta skýringin er sú, að Danir voru fremri okkur á flestum, ef ekki öllum sviðum. En það segir ekki alla söguna. Við hefðum aldrei þurft að tapa svona stórt hefði ein- hver stjórn verið á íslenzka liðinu. Því miður var liðið eins og stjórn- laust rekald frammi fyrir um það bil tuttugu þúsund æpandi og öskrandi Dönum á áhorfendapöllunum sem kunnu sér ekki læti. Í knattspyrnu verða liðin að haga sér eftir að- stæðum. Snemma kom í ljós að danska liðið var mun sterkara – enda skoraði það 4-0 á fyrstu 15 mínútunum. Með þessu voru Danir í raun og veru bún- ir að gefa íslenzka liðinu línuna. Það varð að draga einn eða tvo menn aft- ur í vörnina til að styrkja hana. En ekkert slíkt skeði. Íslenzka liðið hélt uppteknum hætti, það hélt allan tím- ann fjórum mönnum frammi, mönn- um, sem ekkert annað höfðu að gera en að fylgjast með því, sem var að gerast upp við þeirra eigið mark. Með því að draga einhverja af þess- um mönnum aftur hefði verið hægt að styrkja vörnina og koma í veg fyr- ir markasúpuna. Ég hef persónulega aldrei verið fylgjandi því, að leggja varnartaktík fyrir, en stundum eru lið beinlínis knúð til að leggja allt upp úr vörninni. Það var óhamingja og sorgarsaga íslenzka landsliðsins að skilja ekki þessa einföldu staðreynd í gær- kvöldi,“ sagði Alfreð Þorsteinsson. Helgi Númason fagnar fyrra marki Íslands í leiknum – minnkaði muninn í 6:1 á 51. mínútu. Í fjarska er Hermann Gunnarsson, sem gerði hitt markið á 62. mín. Íþróttasíða Morgunblaðsins 24. ágúst 1967, daginn eftir leikinn ógleymanlega. Áminning, stór- slys, reiðarslag Íslenskir blaðamenn sem fylgdust með Dönum taka þeirra menn í kennslustund trúðu vart eigin augum en urðu að upplýsa þjóðina um ósköpin Aldrei var langt í kímnina hjá þeim snjalla fótbolta- manni Hermanni Gunnarssyni, sem yngri kynslóðir þekkja vel sem Hemma Gunn, sjónvarps- og útvarpsmann. Eftir leikinn í Kaupmannahöfn á hann að hafa sagt: „Ekki skamma mig. Ég skoraði helming markanna!“ Hermann Hemmi léttur Þegar íslensku landsliðsmennirnir komu á hótel sitt eftir tapið á Idrætsparken var tekið á móti þeim með viðhöfn. „Starfsfólkið gerði stólpagrín að okkur; stóð í röð, hvítklætt, og hneigði sig. Það var ekkert verið að hlífa okkur!“ segir Jóhannes Atlason. „Gerðu stólpa- grín að okkur“

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.