Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.08.2017, Blaðsíða 18
… Á baðherbergið
Svo stóran sturtuhaus að ég
fái á tilfinninguna að ég sé
undir fossi. Klukku og útvarp,
já eða bara hljóðkerfi fyrir
sturtuna, allt til þess að
tryggja að við gleymum okkur
ekki á morgnana við und-
irbúning dagsins.
… Í eldhúsið
Einkakokk og nýtt eldhúsborð. Balance-
borðið frá Bolia er veglegt og karlmann-
legt og fyrir ofan það hangir PH Artichoke-
ljósið í kopar. Þetta væri rétta umhverfið
fyrir fjölskylduna og matarboðin.
… Í stofuna
Nýjan sófa og ef ég fengi að ráða einn myndi
ég helst vilja eiga hús sem er með að minnsta
kosti tveimur stofum þar sem mig dreymir
dag og nótt um MR.BIG-sófann frá Bolia.
… Í svefnherbergið
Höfðagafl sem nær alveg upp í
loft og er úr dökku flaueli. Ég
dýrka allt sem getur kallast
„70’s“-glæsileiki.
… Í forstofuna
Ég myndi vilja henda öllum
núverandi skóm og kaupa
einungis þessa nýju tegund
sem gengur frá sér sjálf.
Andrés James Andrésson innan-
hússarkitekt starfar hjá versluninni
Snúrunni Bolia. Andrés hefur gríð-
arlega ástríðu fyrir húsgögnum,
gömlum hlutum og heimilum. Hann
segir heimilið uppsprettu orku og
jafnvægis, sem sé nauðsynlegur
grundvöllur til að fólk nái mark-
miðum sínum. Sunnudagsblaðið
fékk að forvitnast um óskalista
Andrésar James á heimilið.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Mig langar í …
… Á vinnustofuna
Ég myndi alls ekki segja nei
við mögulega … fjórum
IMAC-tölvum þar sem ég
er alltaf að vinna, skoða og
fá hugmyndir og er oftast
með of mikið í gangi fyrir
einn skjá.
… Í útópískri veröld
Ég ætti fimm hús sem hefðu mýmargar stofur og engin tvö hús væru eins. Það færi allt eftir því
hvernig skapi ég væri í hverju sinni hvaða hús yrði fyrir valinu.
Ljósmynd/apple.com
Ljósmynd/Axor Hansgrohe
HÖNNUN Laugardaginn 19. ágúst verður Pop-up-markaður haldinn í Safnbúð Listasafns Íslands í tilefniaf menningarnótt. Þar verða seld listaverkaplaköt sem Safnbúðin hefur staðið að útgáfu á.
Viðburðurinn verður haldinn í samstarfi við tímaritið Hús og híbýli á milli kl. 12 og 22.
Pop-up-markaður í Safnbúð
Listasafns Íslands
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20.8. 2017