Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.08.2017, Blaðsíða 24
HEILSA Sá tími er að renna upp að bæta þarf D-vítamíni í fæðuna. Feitur fisk-ur og lýsi er gott til að bæta upp skortinn á sólarljósinu. Þeir sem
neyta ekki dýraafurða ættu að borða vel af tófú og sveppum.
Aftur lýsið eða vel af tófú
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20.8. 2017
What the Health, heimildamynd um vegan-mataræði
á Netflix, sem notið hefur töluverðra vinsælda, hefur
verið mikið gagnrýnd af næringarfræðingum vestan-
hafs. Þannig hafa þeir bent á ýmislegt sem haldið er
fram í myndinni sem sé beinlínis rangt, til að mynda
að það sé jafnóhollt að borða eitt egg á dag og að
reykja fimm sígarettur á dag. Leikstjórar og framleið-
endur myndarinnar eru þeir sömu og gerðu aðra vin-
sæla mynd, Cowspiracy, og eru sakaðir um að fara
rangt með staðreyndir og hafa vísindin ekki á bak við
sig.
Í grein sem birtist í Time í vikunni er farið yfir fjögur
atriði sem eru stór hluti myndarinnar en röng. Ber þar
fyrst að nefna eggjaneysluna þar sem sú yfirlýsing
byggist á úreltum rannsóknum um kólesteról. Í mynd-
inni er einnig fjallað um sykurneyslu og að tengsl
hennar við slæma heilsu séu orðum aukin. Slæma
heilsu í dag megi frekar tengja neyslu á prótíni úr dýra-
afurðum en næringarfræðingar segja allar nýrri rann-
sóknir sýna mun skaðlegri áhrif sykurs en dýraprótíns.
HEIMILDAMYND UM VEGAN
Eggjaát ekki jafnhættulegt og reykingar
Ný mynd um vegan á Netflix hefur verið gagnrýnd. Sér-
fræðingar segja að sumt sem staðhæft sé í myndinni sé ekki
hægt að styðja með niðurstöðum vísindalegra rannsókna..
Oft þarf örlitla hjálp við að koma sér ígang með hreyfingu eftir sumarfríið.Hér eru nokkur góð forrit sem
hjálpa lesendum við að koma sér aftur á gott
ról.
Nike býður upp á tvö frábær öpp, Nike+
Run Club og Nike+ Training. Það fyrrnefnda
er app sem hjálpar manni að halda utan um
hlaupin sín. Notandinn byrjar að haka við
hvort hann ætli að hlaupa á bretti eða úti við,
þar næst setur hann sér markmið, hvort hann
vilji hlaupa í ákveðið langan tíma eða ákveðna
vegalengd. Appið heldur síðan utan um öll
hlaupin. Nike+ Training er síðan app sem
leiðbeinir með líkamsæfingar. Í byrjun er valið
hvort æfa skuli styrk, þol eða hreyfanleika,
hvort maður vill gera æfinguna með tækja-
búnaði eða án þess. Appið leggur þá til nokkr-
ar æfingar sem hægt er að velja á milli. Síðan
er talið niður í hverri æfingu og pásur á milli.
Mikilvægt er að muna að drekka nóg vatn
þegar maður er á mikilli hreyfingu. Hydro
Coach appið sér um þetta, en þar getur not-
andinn sett sér markmið, svo sem að drekka
tvo lítra á dag. Síðan merkir maður við hve-
nær dagsins maður vill drekka, t.d. frá því
vaknað er klukkan sjö til kannski tíu á kvöldin,
þegar farið er að hátta. Appið dreifir þessari
vatnsdrykkju jafnt og þétt yfir daginn og
minnir á tímabæran vatnssopa.
MyFitnessPal er app sem heldur utan um
mataræðið. Einnig er hægt að setja inn hvaða
æfingar maður gerir og vatndrykkju. Degin-
um er skipt niður í morgunmat, hádegismat,
kvöldmat og millimál og máltíðirnar eru flokk-
aður niður í fitu, prótein, kolvetni, vítamín,
sykur, kólesteról, trefjar og fleira. Hægt er að
setja sér markmið varðandi hvað maður vill
borða mikið magn af t.d. próteini á dag en app-
ið fylgist nákvæmlega með því hvað maður er
búinn að innbyrða mikið af því og hvað vantar
upp á.
Fyrir þá sem eiga snjallúr eins og Apple
Watch, Polar úr, Samsung Gear Fit eða
Garmin er sniðugt að tengja það við símann.
Með því að vera með úr er auðveldara að fylgj-
ast með skrefafjölda yfir daginn, æfingum,
svefni og kyrrsetu. Úrið lætur síðan vita þegar
maður er búinn að sitja of lengi t.d. í vinnunni,
en á 50 mínútna fresti minnir það mann á að
standa upp og labba um. Gott er að setja sér
nokkuð hátt skrefamarkmið því það er auð-
veldara að vera undir markmiðinu en að of-
gera sér. Með því að sofa með úrið fylgist það
með svefninum og lætur vita hvort notandinn
sé að sofa nóg og mælir djúpsvefn sérstaklega.
Mikilvægt er að vera í réttum skóm á æf-
ingum. Við lyftingar er gott að vera í vel út-
búnum lyftingaskóm og í hlaupaskóm þegar
farið er að hlaupa. Gott er að vera með það á
hreinu hvaða hlaupaskór henta fyrir hvaða
hlaup, sumir skór eru betri fyrir styttri hlaup,
eða þau sem eru styttri en fimm kílómetrar og
aðrir betri fyrir langhlaup.
Auðvelt er að festast í því að elda sama mat-
inn viku eftir viku og á endanum fær maður
leið á honum. Yummly-appið kemur í veg fyrir
það en það er uppskriftaapp, með miklu magni
af uppskriftum, myndum af matnum og inn-
kaupalistum. Þar inni er síðan hægt að stilla
uppskriftirnar eftir sínum þörfum og haka við
fæðuóþol, ofnæmi, vill vegan, grænmetisfæðu
eða til dæmis laktósafrítt fæði. Þegar búið er
að festa stillingarnar er hægt að nota leitar-
gluggann til að finna búst, kvöldverð eða hvað
sem er og þá koma upp fullt að uppskriftum.
Hægt er að vista þær og nota seinna.
Seconds er notað fyrir svokallaðar HIIT-
æfingar (High intensity interval training) eða
lotuæfingar en þær eru fullkomnar fyrir þá
sem hafa lítinn tíma til að æfa en vilja taka æf-
inguna með trompi. Æfingarnar eru teknar
með breytilegu álagi, t.d. er tekinn sprettur í
45 sekúndur og skokkað eða labbað í 45 sek-
úndur til skiptis. Í appinu velur maður hversu
oft æfingin skal endurtekin og hvað pásan á
móti er löng, t.d. æfing í 45 sekúndur og 15
sekúndur í hvíld og endurtekið fimm sinnum.
Að lokum er mikilvægt að vera með góða
tónlist sem hvetur mann áfram og er Spotify
tilvalið til að búa til lagalista eða bara finna
lista þar inni eftir einhvern annan. Leitið sér-
staklega eftir svokölluðum hlaupalistum. Til
dæmis með því að slá inn „Best songs for
running“. Tónlistin verður að sjálfsögðu að
vera með mátulega hröðum takti.
Getty Images/iStockphoto
Smá hjálparforrit
eftir sumarið
Haustið er á næsta leiti og því tími til kominn að koma sér
í gang eftir alla ísrúntana og afslöppunina í sumar.
Nína Ingólfsdóttir nina@mbl.is
Er kalt hjá þér?
Anddyris-
hitablásarar
hitataekni.is
Smiðjuvegur 10, 200 Kópavogur - Sími 588 60 70 - hitataekni@hitataekni.is