Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.08.2017, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.08.2017, Blaðsíða 29
Rauða hverfið er samheiti yfir þrjá staði í Amsterdam þar sem vændissala er ríkjandi. Rauða hverfið er eitt vinsælasta hverfi borgarinnar. Virkilega forvitnilegt að sjá fyrir þá sem ekki hafa komið þar áður. 20.8. 2017 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29 Það er alltaf gaman að prófa staði sem eru einstakir en Jacketz er ekki venjulegur veitingastaður, þar er einungis hægt að fá bakaðar kart- öflur. Þú byrjar á því að velja þér fyll- ingu síðan hvað á að vera ofan á kartöflunni og að lokum sósu til hliðar. Skammtarnir eru stórir og fyllandi og frekar ódýrir. Skemmti- legur staður á rólegum stað í borg- inni þar sem heimamenn halda sig frekar. Hentar því vel til að komast úr ferðamannastraumnum. Hægt er að velja margar tegundir af kartöflum KARTÖFLUSTAÐUR Prófaðu nýja staði REYKJANESBÆ Hafnargötu 61 | 230 Reykjanesbær | Sími 421 7104 Verslunin HÆTTIR Siemens - Adidas Under Armour - Cintamani Nú höfum við hækkað afsláttinn í 70% af fatnaði og skóm og 20% af smáraftækjum ALLT Á AÐ SELJAST Þegar veðrið er gott er tilvalið að fara í almenn- ingsgarða eða á opin svæði til að slaka á. Í görð- um finnur fólk sér ýmislegt til dundurs, svo sem léttar æfingar, slappa af, lesa bók, hlusta á tónlist, viðra hundinn, koma með nesti eða njóta sól- arinnar. Frábær staður til að virða fyrir sér menn- inguna og mannlífið. Blómamarkaðurinn í Amsterdam er eini fljót- andi markaðurinn í heim- inum. Þessi einstaki mark- aður hefur verið til síðan 1862. Blómahúsin standa á húsbátum og minna á gömlu dagana þegar blóm- in voru afhent með bát. Þar má finna alls kyns teg- undir af blómum, túlípana, rósir, kaktusa sem og fræ svo maður geti gróð- ursett sín eigin.Eitt af frægari söfnum Hollands. Flestir þekkja Önnu Frank og sögu hennar. Hægt er að panta tíma til að fara í safnið til 15.30 en eftir það er farið beint í röð, hún verður þó löng og er því best að panta tíma tímanlega. Safnið er virkilega fróðlegt að sjá og má reikna með ein- um til einum og hálfum tíma í að skoða það. Hjólamenningin í Amsterdam er mikil og fara flestir sína leið á hjólum. Þar má sjá menn í jakkafötum, ungt fólk, ferðamenn og fjölskyldufólk með börn bæði í stól aftan á og sitjandi framan á stýrinu, öll eiga þau sameiginlegt að hjóla um göt- ur borgarinnar. Hægt er að leigja hjól á mörgum stöðum í borginni, sniðugt er að leigja hjól hjá hótelinu ef það er möguleiki. Amsterdam býður upp á skemmtilega hjólaleiðir og ferðast maður hratt yfir og getur því skoðað meira.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.