Fréttatíminn - 03.02.2017, Page 4
Íslendingar voru
fleiri en Rússar á
viðskiptamannalista
Nordea hjá Mossack
Fonseca í fyrra.
Sænski skattskjólsér-
fræðingurinn Torsten
Fensby dregur upp
mynd af Íslandi þar
sem eftirlitsstofnanir
brugðust gjörsamlega.
4 | FRÉTTATÍMINN | Föstudagur 3. febrúar 2017
Stjórnmál/Skattaskjól Íslendingar
voru fjölmennastir í hópi við-
skiptavina Mossack Fonseca í
Nordea-bankanum í Lúxemborg
í fyrravor. Ef jafnmargir Rússar,
miðað við höfðatölu, hefðu stund-
að slík viðskipti í skattaskjólum
hefðu þeir verið nærri tólf þúsund
í stað 25. Skattaskjólssérfræðing-
ur dregur upp mynd af Íslandi
sem gerspilltu samfélagi þar sem
eftirlitsstofnanir samfélagsins
brugðust.
Ingi F. Vilhjálmsson
ingi@frettatiminn.is
Íslendingar voru fjölmennasti við-
skiptavinahópur panamaísku lög-
mannsstofunnar Mossack Fonseca
hjá sænska bankanum Nordea í Lúx-
emborg í apríl í fyrra. 27 Íslendingar
voru þá eigendur félaga í skattaskjól-
um í gegnum Mossack Fonseca og
sá Nordea-bankinn um samskipti
við lögmannsstofuna í Panama fyr-
ir þeirra hönd. Næst stærsti hópur-
inn voru Rússar í kúnnahópnum eða
25 og svo voru 19 Bretar og 17 Danir.
Þetta kemur fram í skýrslu um eigna-
stýringardeild Nordea-bankans og
viðskipti hennar í skattaskjólum sem
birt var í fyrrasumar. Alls var um að
ræða 161 viðskiptavin sem átti í við-
skiptum við Mosack Fonseca í gegn-
um Nordea í apríl í fyrra.
Skýrsla Nordea var unnin í kjöl-
far birtingar Panamaskjalanna
svokölluðu í fyrravor. Panamaskjöl-
in hafa verið talsvert til umræðu á
Íslandi liðnar vikur út af skýrslu um
aflandseignir Íslendinga sem fjár-
málaráðuneyti Bjarna Benediktsson-
ar beið með að birta fram yfir kosn-
ingarnar í haust. Nordea-bankinn
fjallar í skýrslunni sérstaklega um
viðskiptavini eignastýringardeildar
bankans sem áttu félög í skattaskjól-
um í gegnum Mossack Fonseca en
Panamaskjölin fjalla alfarið um við-
skiptavini þeirrar lögmannsstofu.
Ástæðan fyrir fjölda Íslendinga
sem eiga í viðskiptum við Nordea í
Lúxemborg og sem áttu félög í skatta-
skjólum í gegnum Mossack Fonseca
er sú að eftir efnahagshrunið 2008
fluttu margir Íslendingar sig frá
eignastýringardeildum íslensku
bankanna þar í landi og til Nordea-
-bankans. Ástæðan fyrir fjölda Ís-
lendinga á listanum er meðal annars
sú hversu margir Íslendingar voru
viðskiptavinir Landsbankans í Lúx-
emborg á árunum fyrir hrun en sá
banki notaðist við Mossack Fonseca
til að þjónustu viðskiptavini sína sem
áttu í viðskiptum á aflandssvæðum.
Íslendingar flestir
í skattaskjólum í fyrra
Félagi í eigu Ólafs á
Tortólu hefur verið
slitið en það var
notað til að
taka við 20
milljarða
króna láni
og kaupa
skuldabréf
Kaupþings
árið 2008.
Tortólafélagi Ólafs slitið
Viðskipti Félag í eigu Ólafs
Ólafssonar var notað í viðskipt-
um með skuldabréf Kaupþings
2008. Breska lögreglan skoðaði
málið sem mögulega markaðs-
misnotkun.
Ingi F. Vilhjálmsson
ingi@frettatiminn.is
Eignarhaldsfélagi á Bresku Jóm-
frúareyjum, sem var í eigu Ólafs
Ólafssonar fjárfestis, hefur ver-
ið slitið og er nú í slitameðferð.
Þetta kemur fram í Lögbirtinga-
blaðinu. Félagið heitir Partridge
Management Group S.A og fékk
það 125 milljóna evra, 20 millj-
arða króna, lán frá Kaupþingi í
Lúxemborg ársbyrjun 2008,
samkvæmt skýrslu rann-
sóknarnefndar Alþingis.
Lánið var notað til að
kaupa skuldabréf útgefin
af Kaupþingi sjálfu til að
reyna að lækka skulda-
tryggingarálag bankans.
Efnahagsbrotadeild
Bresku lögreglunnar rann-
sakaði viðskiptin sem
markaðsmisnotk-
un á árun-
um eftir
íslenska
efna-
hags-
hrunið
þar
sem
tilgangur þeirra var að hafa já-
kvæð áhrif á stöðu Kaupþings.
Bankinn var báðum megin við
borðið í viðskiptunum og var Ólaf-
ur Ólafsson næst stærsti hluthafi
bankans.
Í Lögbirtingablaðinu er kallað
eftir því að mögulegir kröfuhaf-
ar Partridge Management Group
S.A lýsi kröfum í félagið fyrir lok
febrúarmánaðar hjá breskum lög-
manni.
Í Lögbirtingablaðinu er önnur
auglýsing frá öðru félagi á Tortólu,
Chesterfield United Inc., sem
einnig fékk 20 milljarða lán frá
Kaupþingi til að kaupa skuldabréf
bankans. Þetta félag var meðal
annars í eigu Skúla Þor-
valdssonar, sem kennd-
ur er við Hótel Holt,
og Kevins Stanford og
Karenar Millen. Þessu
félagi hefur einnig
verið slitið og er ósk-
að eftir kröfum í bú
þess.
1400
1200
1000
800
600
400
200
0
826
936
1074
1189
1102
1266 1277
1206
1049
926
562
218
286 296 302 299 266
198
152
108114
166
2006 2016
Fjöldi aflandsfélaga hjá Nordea-bankanum
í Lúxemborg á árunum 2006-2016.
Heildarfjöldi aflandsfélaga. Fjöldi aflandsfélaga Mossack Fonseca
Rússland 24 Ísland 27
Ísland 20 Rússland 25
Bretland 17 Bretland 19
Búlgaría 10 Danmörk 17
Sviss 7 Búlgaría og
Noregur
8
Önnur 83 Önnur 57
Heildarfjöldi
UBO
161 Heildar-
fjöldi UBO
161
Búsetuland Þjóðerni
Búsetuland og þjóðerni þeirra
viðskiptavina Nordea-bankans í
Luxemborg sem áttu í viðskiptum
við Mossack Fonseca.
Þegar litið er til fjölda Íslendinga
í skýrslunni miðað við höfðatölu þá
er næstum um að ræða 0,01 prósent
allra Íslendinga. Ef sama hlutfall
Rússa eða Breta, miðað við höfða-
tölu, hefði stundað viðskipti í gegn-
um Nordea-bankann við Mossack
Fonseca hefði fjölda Rússanna numið
nærri tólf þúsund og Bretanna rúm-
lega 5300. Þessar tölur sýna enn
betur það sem Panamaskjölin hafa
leitt í ljós: Íslendingar áttu heimsmet
í notkun skattaskjóla í gegnum
Mossack Fonseca miðað við höfða-
tölu og í þessu tilfelli eru Íslendingar
efstir á blaði óháð höfðatölu. Þá
skal tekið fram að viðskipti í gegn-
um Mossack Fonseca voru einungis
tæplega 1/4 af þeim skattaskjólsvið-
skiptum sem stunduð voru gegnum
Nordea-bankann, samkvæmt skýr-
slunni. Íslendingar voru því að öll-
um líkindum miklu umsvifameiri í
skattaskjólum í gegnum Nordea en
skýrsla bankans ber með sér.
Fréttatíminn leitaði til sænska
lögfræðingsins og skattaskjólssér-
fræðingsins Thorsten Fensbys eftir
mati á því af hverju Íslendingar hefðu
notað félög í skattaskjólum svona
mikið og af hverju svo margir íslensk-
ir stjórnmálamenn gerðu það einnig.
Íslendingar áttu bæði heimsmet í per
capita notkun á skattaskjólsfélögum
og eins átti engin önnur þjóð eins
margra stjórnmálamenn per capita
sem voru viðskiptavinir Mossack
Fonseca. „Umfang spillingar í sam-
félagi helgast næstum alltaf af því
hversu vel eftirlitsstofnanir samfé-
lagsins vinna sitt verk […]. Vandamál-
ið í litlum löndum er að fjarlægðin á
milli þeirra sem hafa eftirlitið undir
höndum og þeirra sem eftirlitið skoð-
ar er oft miklu minni og getur það
spillt fyrir því hversu árangursríkt
eftirlitið er. Að skattaskjólsiðnaður-
inn náði svona sterkri stöðu meðal
stjórnenda í opinbera og einkageir-
anum á Íslandi má líklega skýra með
því að þeir gátu gert það sem þeir
vildu án eftirlits.“
Miðað við skýrslu Nordea frá því
í fyrra er þessi veruleiki, þar sem
Fensby dregur upp þessa mynd, ekki
veruleiki fortíðarinnar eða hruns-
ins heldur einnig veruleikinn eins
og hann leit út fyrir tæpu ári síðan.
Stjórnmál Varaformannskjör fer
fram á flokkstjórnarfundi Sam-
fylkingarinnar sem verður haldið
á morgun, laugardag, í Mosfells-
bæ, en þar gildir annað regluverk
en þegar landsfundir eru haldnir
og allir skráðir flokksmenn eru
kjörgengir. Þannig þvælist reglu-
verk Samfylkingarinnar í annað
skiptið fyrir Margréti Tryggva-
dóttur sem var færð niður um tvö
sæti vegna aldurs- og kynjakvóta í
síðasta prófkjöri flokksins.
Valur Grettisson
valur@frettatiminn.is
„Það hafa reyndar nokkrir haft
samband og skorað á mig að bjóða
mig fram. En eftir því sem ég kemst
næst, þá er ég ekki kjörgeng sam-
kvæmt reglum flokksins,“ segir
Margrét Tryggvadóttir, fyrrver-
andi þingmaður og rithöfundur,
en allnokkrir flokksmenn Samfylk-
ingarinnar hafa skorað á hana að
bjóða sig fram sem varaformaður
flokksins.
Eins og kunnugt er þá sagði Odd-
ný Harðardóttir af sér sem for-
maður Samfylkingarinnar eftir
kosningaúrslit flokksins í síðustu
alþingiskosningum. Logi Einarsson
tók þá við embættinu en hann var
áður varaformaður. Var því brugðið
á það ráð að boða til kosninga um
varaformann á flokkstjórnarfundi
Samfylkingarinnar. Í lögum félags-
ins er skýrt kveðið á um hverjir eiga
seturétt á fundinum, en Margrét,
sem er tiltölulega nýskráð í Sam-
fylkinguna, er ekki kjörgeng sam-
kvæmt því.
Skemmst er frá því að segja að
hún var færð niður um tvö sæti í
prófkjöri f lokksins fyrir alþing-
iskosningar á síðasta ári og þótti
niðurstaðan nokkuð umdeild. Hún
var færð niður um eitt sæti vegna
aldurskvóta, og svo um annað
vegna kynjakvóta. Þannig endaði
hún í fimmta sæti eftir að hafa verið
kjörin í það þriðja.
„Ég íhugaði auðvitað að bjóða
mig fram eftir að skorað var á mig,
en sú hugsun féll um sjálfa sig þegar
ég sá lögin. Ég mæti samt á fund-
inn,“ segir Margrét, sem lítur svo á
að flokkurinn megi einfalda reglu-
verkið sitt nokkuð.
Aðeins eitt framboð hefur borist
til varaformanns, en það er Heiða
Björg Hilmisdóttir, borgarfulltrúi
Samfylkingarinnar. Framboðs-
frestur er fram á laugardag. Það er
því ekki útilokað að mótframboð
berist fyrir þann tíma, þó það verði
líklega ekki Margrétar.
Enn þvælist regluverk Samfylkingarinnar fyrir Margréti
Margrét Tryggvadóttir hefur verið
virk í Samfylkingunni undanfarna
mánuði auk þess sem hún hefur stund-
að ritstörf.
Fararstjóri: Sigrún Valbergsdóttir
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK
Trítlað í Tíról
Bærinn Landeck í Tíról er staðsettur á ógnarfallegu
landsvæði mitt í Alpafjöllunum, þar sem glæstir tindar
gnæfa yfir hlýlegum dölum. Margar skemmtilegar og
fjölbreyttar gönguleiðir er að finna á svæðinu sem líða
í gegnum ávaxtalundi, blómstrandi engi og djúpgræna
furuskóga í snarbröttum fjallshlíðum Alpanna. Hér mætast
skemmtilegar gönguferðir og brakandi kyrrð náttúrunnar í
ferð sem er sannarlega endurnærandi á líkama og sál.
Verð: 168.600 kr. á mann í tvíbýli.
Mjög mikið innifalið!
sp
ör
e
hf
.
25. maí - 1. júní
Heimild: Skýrsla um umsvif viðskiptavina
Nordea-bankans hjá Mossack Fonseca